Tíminn - 04.03.1980, Page 7
Þriöjudagur 4. mars 1980
7
Tollkrít
og lækkun
vöruverðs
Hvernig má lækka verð inn-
fluttrarvöru? Hvaöa atriöihafa
áhrif á verö innfluttrar vöru?
Skoöum eftirfarandi atriöi:
1. kaupverð vöru, f.o.b., I er-
lendri höfn (flugelli),
2. flutningskostnaður vörunnar
frá iltskipunarhöfn til hér-
lendrar uppskipunarhafnar,
3. trygging vöru I flutningum,
4. uppskipun og vörugjöld I upp-
skipunarhöfn,
5. geymsla vöru hjá flutningsaö-
ila og tryggingar á vöru i
þeirri geymslu,
6. meöferö innflutningsskjala I
banka og tolli,
7. tollar og önnur innflutnings-
gjöld,
8. flutningur vöru frá farmflytj-
anda til innflytjanda,
9. verzlunarkostnaöur og sölu-
skattur.
Þetta eru llklegast allir helstu
liöir málsins. Viö fjöllum um
þann sföasta i ööru tilefni, en
skoöum hina átta.
Hvaö þarf til aö ná hagstæö-
um samningum um kaupverö
vöru hjá seljanda eöa framleiö-
anda erlendis?
Þetta þarf aö vera fyrir hendi
m.a.:
a) Aö samkeppni sé á markaöi
seljanda og/eöa kaupanda.
b) Aö kaupandi geti keypt i
magni, sem er seljanda svo
hagstætt, aö hann vilji greiöa
nokkuö fyrir kaupunum, t.d.
veita (magn-) afslátt.
c) Aö greiösluskilmálar séu inn-
an þeirra marka, sem al-
mennt þekkjast I landi selj-
anda og valda kaupanda ekki
kostnaöi, sem væri umfram
viöskiptavenjur I hans landi.
Auövitaö reiknum viö þá meö
aö kaupandi, eöa innflytj-
andinn, geti t.d. álagningar-
reglna vegna, aö ógleymdum
fjármögnunarþættinum, haldiö
uppi eölilegum lager.
Allt á kostnað
neytandans
Nú einföldum viö máliö svolit-
iö og gerum ráö fyrir aö samn-
ingur viö skipafélög (flugfélög)
um „stærri” sendingar, sem
féllu e.t.v. betur en aörar aö
þeirra flutningaeiningum, gæfu
lægri gjöld (hlutfallslega) og
svipað gæti oröiö uppi á ten-
ingnum meö tryggingar. Viö
ræöum ekki hér um lækkun tolla
og annarra aöflutningsgjalda:
litum bara á þau sem sam-
félagseign I þessu spjalli, en úti-
lokum hins vegar ekki umræöu
um greiösluformiö á þessum
gjöldum.
Stærsta innflutningshöfn
landsins, fyrir almennar vörur,
er Reykjavik. Þar má oft sjá á
vorkvöldum og sumarkvöldum
fólk á gangi eöa akandi viö
hafnarsvæöin. Kannski bara til
aö njóta kvöldfeguröarinnar
„úti viö sundin blá”, kannski
llka til aö skoöa og dást aö (eöa
undrast) allar þessar stóru og
miklu byggingar á hafnarsvæö-
unum.
„Þaö er nú aldeilis, hvaö mik-
iö er flutt inn af vörum og geymt
I þessum stóru skemmum”,
segir fólk. Og þó vita ekki allir
um geymslusvæöin, sem ekki
eru á sjálfum hafnarsvæöunum.
„Mikiö er nú gott hvaö skipa-
félögin eru stöndug, aö geta átt
og rekiö þessi mannvirki”,
segja menn svo.
Hér er þó ekki allt sem sýnist.
Skipafélögin eru kannski rlk, —
vonandi —, en þau borga ekki
rekstur þessara stóru bygginga
Þann kostnaö borgar neytand-
inn, þú og ég, I hærra vöruveröi
en þyrfti aö vera, ef viö kæmust
hjá þvl aö „lagera” innfluttar
vörur I þessum stóru húsum. Og
til viöbótar gætu skipafélögin
liklegast oröiö rikari, ef þeir
fengju fjármagn laust úr þess-
um stóru byggingum, og myndu
þá vafalaust auka hagkvæmni
annars staöar I rekstri slnum,
okkur neytendum til hagsbóta.
Þetta var liöur númer fimm,
og um hann var sagt I nefndar-
áliti 1978: „Geymslutlmi vöru I
vörugeymslum á hafnarsvæö-
um hérlendis, er 5-6 sinnum
lengri en annars staöar (I
nágrannalöndum)”. Og viö
itrekum: Allt er þetta á kostnaö
neytandans meö hærra vöru-
veröi.
Allt að
milljarði 1977
Stóra spurningin er nú: Er
hægt aö spara neytendum eitt-
hvaö af þessum útgjöldum, eöa
þau öll? og hvaö þá meö liöi 4, 6,
7 og 8? Má spara þér og mér
eitthvaö þar I vöruveröinu?
Svariö er: — Já, vissulega.
Þaö má spara okkur stórfé, og
þaö sem betra er: Þaö er búiö
aö sanna málið.
Lítum aftur á. Víst er höfuö-
nauösyn aö kaupa hagkvæmt
inn, kaupa á góöu veröi, en þaö
er ekki siöur nauösynlegt aö
hlaöa ekki kostnaöi, — aö ekki
sé nú talaö um óþarfa kostnað, I
meöferö vörunnar á leiö til inn-
flytjandans. Og þar er til eitt
Einar
Birnir:
mikiö töfraorö, enginn hókus
pókus: bara — tollkrlt —.
1 nefndarálitinu frá 1978, sem
ég minntist á fyrr var sýnt fram
á aö miöaö viö verölag Í977, var
hægt aö spara meö tollkrit sem
hér segir:
—á liö 5 300 millj. kr.
—á liö 6 300 millj. kr.
—I vaxtakostnaöi 200millj. kr.
(ath. ekki veröbólguvextir)
—vegna minni tjóna 50 millj.
kr. (tryggingagjöld)
Og viö þetta má bæta 100-150
millj. kr. fyrir ýmislegt annaö
sjá t.d. liöi 4 og 8., o.fl., eöa alls
950-1000 milljónir kr. á verölagi
1977. Ég minni á aö hér er aö-
eins tekinn hinn beini og reikn-
anlegi sparnaöur en ekki
margskonar annaö hagræöi.
Liggur beint við
Meö tollkrit fer vara gjarnan
beint frá skipi til móttakanda
eöa svo til, og sá hinn sami fær
greiöslufrest á aöflutnings-
gjöldum, og allur skjalafrá-
gangur einfaldast. En þá má
auövitaö spyrja: Er þorandi aö
lána þessum „innflytjenda-
skálkum” tolUnn? og þá I hvaö
langan tlma, eöa er hægt aö
skilja „sauöi frá höfrum” I inn-
flytjendahóp I þessu tilliti? og er
ekki óhagstætt fyrir rlkiö aö
blöa lengi eftir greiöslu toll-
anna?
Svör:
a) Þaö þarf ekki aö blöa neitt
verulega lengur en nú er 1
reynd. Meöalgeymslutlmi
vöru I höfn er nú 5-6 vikur.
Aætlaöur lánstimi tolls er 60
dagar, þ.e. 8 vikur, eöa auka-
biötlmi 2-3 vikur og auövitaö
bara I byrjun, þvl aö svo jafn-
ar þetta sig út.
b) Innflytjendur eru upp til hópa
grandvart og skilvlst fólk, og
alvanir aö láta ábyrgöir fyrir
slnum skuldbindingum, t.d
bankaábyrgöir, og bankarnir
þekkja þetta fólk. A hinn bóg-
inn: Hverjir sjá um greiöslu
tollanna I dag? Ætli tollurinn
þekki þá ekki pinulltiö? Og
hverjir eru I dag stærstir inn-
heimtuaöilar söluskatts fyrir
rlkiö? Þaö er einmitt verzlun-
in —: ætli tollyfirvöld t.d. I
Reykjavlk þekki ekki þaö
fólk?
Eöa meö öörum oröum: Þetta
er bæöi vandalaust og hættu-
laust.
Eitt þúsund milljónir 1977 I
hærra innflutningsverði þýöa
fimm þúsund krónur á hvert
mannsbarn I landinu og á þenn-
an kostnaö kemur verzlunar-
álagningog söluskattur, segjum
15% I heildsölu, 50% I smásölu
og 22% söluskattur. Þaö gera tlu
þúsund og fimm hundruö krón-
ur.
Viö gátum 1977 meö tollkrit
sparaö 3ja manna fjölskyldu 30
þús. og 5 manna fjölskyldu, sem
er vísitölufjölskyldan, 50 þús.,
og ekki yröi ég hissa þó aö þess-
ar tölur frá 1977 væru núna,
þrem árum seinna, nær 75 þús.
og 125 þúsund.
Ert þú sáttur eöa sátt viö aö
henda 75 til 125 þúsundum á ári I
þinni fjölskyldu?
Ekki ég.
HINT veggsamstæður
m
Húsgögn ^
mnrettmgar simi 86-?oo; - ^
Sjúkraþjá/farí
Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra óskar eftir að ráða sjúkra- og iðju-
þálfara. Sömuleiðis 2 sjúkraþjálfara til
starfa við barnaheimili félagsins i
Reykjadal, mánuðina júni/ágúst.
Upplýsingar hjá forstöðukonu.
Stjórn
Styrktarfé/ags /amaðra og fat/aðra
EFLVM TIMANN
Sjálfboðaliðar hringi i sima
86300 eða 86538, Siðumúla 15
Reykjavik, á venjulegum skrif-
^tofutima.
Þeim sem senda vilja framlög
til blaðsins er bent á að gíró-
seðlar fást i öllum pósthúsum,
bönkum og sparisjóðum. Söfn-
unarreikningurinn er hlaupa-
reikningur nr. 1295 i Samvinnu-
bankanum.
Styrkið Tímann
Fyllið út þennan seðil og sendið til Tímans
í pósthólf 370, Reykjavík
É3g undirritaður vil styrkja Timann með
því að greiða i aukaáskrift
[ j heila [ J hálfa á Hlánuðl
Nafn____________________________________________
Heimilisf.---------------------------------------
_____________________________________ Sími