Tíminn - 14.03.1980, Síða 3
Föstudagur 14. mars 1980
Riðuveikin
úr Olfusi?
HEI — „Ég tel þetta ártíöurs-
kennd skrif og mótmæli þvi harB-
lega að slegið skuli fram að kind,
sem finnst efst uppi i Biskups-
tungum, sé e.t.v. úr Fjárborg, án
þess að unnt hafi verið að færa
nokkrar sönnur á það”, sagði
Sigurleifur Guðjónsson einn að-
standenda Fjárborgar i Reykja-
vik. En Sigurleifur hafði sam-
band við blaðið vegna fréttar er
höfð var eftir Sigurði Sigurðssyni,
dýralækni á Keldum, vegna riðu-
veikitilfellis í Úthlið 1 Biskups-
tungum.
Sigurleifur taldi varla meira en
1% likur á að kindur úr Fjárborg
gætu fundist á þessum slóðum og
miklu liklegra að ætla að þangað
slæddist fé norðan af landi.
Varðandi mark umræddrar
kindar, sagði hann að verið væri
að búa til mark, sem hefði veriö
til hér i Reykjavik fyrir mörgum
árum, en ekki lengur. Hann væri
lika búinn að kynna sér það, að
engin skilagrein hefði borist nein-
um eiganda fjár f Fjárborg,
vegna afurða umræddrar kindar,
sem hlyti þó að hafa verið gert ef
vitað væri hver átti kindina.
Sigurleifur benti hins vegar á,
að riðuveiki hafi komið upp i
ölfusi árið 1978 og sennilegra
væri að þaðan hefði veikin borist
austur í Tungur en Ur Fjárborg. I
það sinn hefðiReykvikingum lfka
verið kennt um, sem aldrei hefði
þó tekist að færa sönnur á.
Gott verð fyr-
ir páskalömb
í Danmörku
HEI — Austur I Gunnarsholti er
veri'ð að gera tilraun á vegum
Markaðsnefndar landbúnaðarins,
með eldi á lömbum til slátrunar
fyrir páska. Ætlunin er að bjóða
Dönum þessilömb i páskaveislur.
Tilraun þessi er sögð hafa
gengið vel til þessa. Samtals
ganga 23 ær með 38 lömb, sem
þær báru um áramótin. Lömbin
fá fóðurblöndu með möðurmjólk-
inni og einnig geta þau étiö með
ánum töðu og grasköggla. Er
vaxtarhraði þeirra sagður svip-
aður og vorlamba.
Reiknað er með að þau verði
milli 8 og 10 kiló er þeim er
slátrað. Ekki er búið að semja um
endanlegt verö, gert ráð fyrir að
þaö verði svipað og aðrir fá á
þessum markaði, sem er um 550
kr. danskar eða um 40 þús. kr. Is-
lenskar fyrir stykkiö. Það er
meira en heildsöluverð á meðal
dilkhér heima á núgildandi verði,
og mikið hærra en útflutnings-
verðþað er fæst fyrir frosið dilka-
kjöt erlendis.
Að sögn Jóns R. Björnssonar
hjá Framleiðsluráði er þarna
ekki um stóran markað að ræða.
En fáist þetta umrædda verð,
telur hann að það gæti verið at-
hugandi fyrir bændur að huga að
þessu I dálitlum mæli, enda
einnig talinn nokkur markaður I
Þýskaiandi og kannski viðar. Þá
er það að athuga, að þessi mark-
aöur er alveg utan við dilkakjöts-
sölu á haustin, en að sjáifsögðu
minnkaði þaö haustslátrunina, ef
hluti ánna væri látinn bera og
lömbunum þvl slátrað á öðrum
tima.
Lömbunum I Gunnarsholti
verður slatrað 28. mars og kjötið
flutt út ófrosið 31. mars n.k. þar
sem þaö verður boðið til sölu hjá
Irma i Kaupmannahöfn.
Vilhjálmur Lúðvlksson, framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs (fyrir enda borðsins) kynnti fréttamönnum
starfsemina og boðaðan ársfund. Aörir á myndinni eru, frá vinstri: Sigurjón Björnsson, frá Raunvis-
indastofnun Háskóians, Björn Sigurbjörnsson, Rannsóknastofun landbúnaðarins, Haraldur Asgeirsson,
Rannsóknastofnun byggingaiðnaðarins og Sigurjón Arason, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
Ársfundur Rannsókn-
astofnunar ríkisins
HEI— Ársfundur Rannsóknaráðs
rikisins hefst I dag kl. 14.00 I
Háskólabiói. Fundurinn er opinn
almenningi, en þar verður fjallað
um málefni rannsóknarstarfsem-
innar I landinu. En mikilvægt er
talið að auka skilning á þvl, að
þessi starfsemi geti orðið til
gagns fyrir þjóðarheildina.
A fundinum verða flutt 5 erindi:
Vilhjálmur Lúðviksson, fram-
kvæmdastj. Rannsóknaráðs ræð-
ir um rannsóknastarfsemina og
þjóðarbúskapinn. Björn Sigur-
björnsson, forstjóri Rannsóknar-
Ársþing
F.Í.I.
HEI — Ársþing Félags Islenskra
iðnrekenda verður haldið aö
Hótel Loftleiðum 20. mars nk.
Formaður FII Davið Sch. Thor-
steinsson og iðnaðarráðherra
Hjörleifur Guttormsson munu
flytja ræöur. Auk þess verða flutt
tvö erindi. Þórhallur Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóri flytur erindi er
hann kallar „Iðnaður og friversl-
un”, og Ingjaldur Hannibalsson,
deildarstjóri Tæknideildar FII
flytur erindið „Framleiðni og iðn-
þróun”, en það efni er nú mjög i
brennidepli.
Svavar Gestsson fiytur ræðu sina á fulltrúaráðsfundinum I gær.
Fulltrúaráðsfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Verkaskipting ríkis
og sveitarfélaga
JSG —- Fundur fulltrúaráðs
Sambands islenskra sveitar-
félaga hófst I Reykjavik I gær.
Aðalmál fundarins er áfanga-
skýrsla nefndar á vegum
sambandsins sem fjaliar um
verkaskiptingu rikis og sveitar-
félaga. Skýrslan fjailar um breyt-
ingar á stjórnsýslukerfinu. Við
upphaf fundarins i gær fluttu
ávörp þeir Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra ,og Jón G.
Tómasson, formaður Sambands
islenskra sveitarfélaga, og fjöll-
uðu meðal annars um þá endur-
skoðun á verkaskiptingu sem á
dagskrá er.
Svavar Gestsson sagði i ræðu
sinni að hann hygðist beita sér
fyrir þvi aö samið yrði frumvarp
aö lögum um verkaskiptingu rikis
og sveitarfélaga strax og sú nefnd
sem nú vinnur aö endurskoðun
þessara mála hefði lokið störfum.
Stefnt er að þvi að nefndin skili
áliti fyrir næstu áramót.
Svavar fjallaði ekki um
einstakar tillögur sem verka-
skiptinganefnd hefur þegar gert,
en sagði aðeins að meginniður-
staða endurskoðunarinnar þyrfti
að veröa sú að „sveitarfélögin
verði betri, virkari og umfram
allt lýðræðislegri einingar sem
veita i senn góða félagslega
þjónustu, skapa forsendur fyrir
traustu atvinnulifi og laða fram
lýðræöislega vitund og virkari
þátttöku ibúanna.”
Jón G. Tómasson sagði I sinni
ræöu að sveitarstjórnarmenn
vildu fá aukið svigrúm til sjálf-
stæörar fjárhagslegrar ákvörð-
unartöku. Hann sagði þá telja „að
þeim, sem best þekkja til stað-
bundinna verkefna og vanda-
mála, megi treysta til að meta
aðstæður með hliðsjón af hags-
munum heildarinnar á hverjum
stað”.
stomunar iandbúnaöarins skýrir
frá rannsóknum vegna land-
græðsluáætlunar 1975-79. Þá
verða flutt erindi um 3 einstök
athyglisverö rannsóknaverkefni,
þ.e. erindi Hákonar Ólafssonar
um rannsóknir á áhrifum nátt-
úrufars og veðurfars og veðurfars
á mannvirkjagerð erindi Sigur-
jóns Arasonar um kolmunnatil-
raunir 1979 og erindi Sveinbjörns
Björnssonar um rannsókn og
undirbúning að virkjunum
háhitasvæöa.
Dr. Chris Davey:
Varalitur og
smjörlíki
— réttlæta ekki grimmilegar drápsaö-
feröir á hvölum
HEI — „Mörg ykkar kunna að
draga i efa tilboö það, sem ég hef
gert I þvi skyni aö bæta Islending-
um tjón það, sem hlytist af því aö
hvalveiðum yrði hætt ér við land
með öllu”, segir i opnu bréfi til is-
lensku þjóöarinnar frá Dr. Chris
Davey, sem nýlega bauð tslend-
ingum 400 miilj. kr. I þvi skyni aö
þeir hættu hvaiveiöum meö öllu.
Féð segist Chris ekki leggja
fram sjálfur, heldur myndi þvi
safnað frá ýmsum stuöningsaðil-
um i Bandarikjunum. Astæðuna
segir hann þá helsta, að aö-
ferðirnar viö hvaladrápið séu
vægast sagt grimmdarlegar, þar
sem dauðastrið hvalanna taki oft-
ast langan tima. 1 öllum öðrum
tilvikum, þar sem dýr séu deydd I
hagnaðarskyni, sé þess krafist að
það sé gert á hraðvirkan, sárs-
aukalausan og mannúðlegan hátt.
Annað sé heldur ekki réttlætan-
legt, iiema að líf manna liggi við.
Þá bendir hann á, að afurðir
unnar úr hvölum, svo sem smjör-
liki, varalitur, smuroliu og lltiö
magn af kjöti, geti ekki réttlætt
grimmilegar drápsaðferðir með
skutlum.
Hafi einhver Islendingur áhuga
á frekari vitneskju um þessi mál
biður dr. Chris Davey menn að
senda sér linu. Utanáskrift hans
er Mt. Sinai Hospital, 4300 Alton
Road, Florida 33140 USA.
Ný stjórn
í SVS
JSS—Aðalfundur Samtaka um
vestræna samvinnu var haldinn
fyrir skömmu.
A fundinum var m.a. kosin ný
stjórn og er hún þannig skipuð:
formaðúr: Guðmundur H.
Garðarsson, varaformaöur:
Björgvin Vilmundarson, ritari:
Björn Bjarnason,gjaldker,i: Jón
Abraham Olafsson. Meðstjóm-
endur eru Asgeir Jóhannesson,
Hrólfur Halldórsson, Hörður
Einarsson, Jón Hákon Magnús-
son, Kristján G. Gíslason og
Páll Heiöar Jónasson.
I