Tíminn - 14.03.1980, Síða 7

Tíminn - 14.03.1980, Síða 7
Föstudagur 14. mars 1980 7 Mimm Trausti Valsson arkitekt: Flotbrú yfir H valfj örðinn er raunhæfur valkostur þegar hvalveiðistarfsemi hefur lagst þar niður Hvalfjörðurinn hefur lengi verið til óhagræðis fyrir þá sem fara út á land norðurleiðina. Krókurinn er um 40 km og tekur um 40 minútur að aka hann. Þetta hefur leitt til þess að tenging yfir fjörðinn hefur oft komið upp i umræðum. Er reyndar varla vafi á, að hvergi mundi á Islandi i dag brú gegna eins miklu hlutverki. En hér komum við að vanda- málinu, sem er það, að þó að fjörðurinn sé ekki breiöur, er hann mjög djúpur, sem gerir það útilokað að byggja brú á stöplum, sem stæðu á botni. Þess vegna er aðeins hægt að brúa hann meö hengibrú, sem yrði mjög dýr. Möguleikar á tengingum Arið 1967 skipaði Alþingi nefnd, sem skyldi kanna þá möguleika, sem væru á tenging- um yfir fjörðinn, bæöi út frá tæknilegu og kostnaðarlegu sjónarmiði. Skilaði nefndin áliti árið 1972. Möguleikarnir voru eftirfar- andi: a) Ferja til Akraness eða yfir fjörðinn. b) Brú innarlega eða utarlega i firöinum. c) Göng i botni fjarðarins. d) Malbikaður vegur inn allan fjörðinn og fram aftur. Er skemmst frá þvi að segja, að allir reyndust þessir valkost- ir vera mjög dýrir, en malbik- aður vegur fyrir fjörðinn þó ódýrastur. Mælti nefndin með þeim valkosti og taldi að 14-15% afkastavextir yrðu af þeirri framkvæmd. Siðan þetta var reiknað út eru liðin 8 ár og með þeim miklu hækkunum á bensini, sem hafa orðið á þeim tima hlýtur hag- kvæmni þessa valkosts miðað við hina að hafa minnkað mjög og heldur væntanlega áfram að minnka með enn hækkandi bensinverði. Samt sem áður er nú verið að undirbúa fram- kvæmd þessa valkosts. Rétt er að minna á að ferju- samgöngur við Akranes voru bættar nokkuð með nýju skipi. Þessi úrlausn er þó einnig stöð- ugt að verða óhagkvæmari með hækkandi oliuveröi og borgaði rikið 45 milljónir með þessari þjónustu siðastliðiö ár. Eitt af þvi sem geröi brúaval- kostina mjög dýra var, að reiknað var með þvi að hafskip þyrftu að komast inn fjöröinn. A teikningum, sem nefndin lét gera af hengibrú, lyftist hún um 40 metra yfir sjó, sem er álika og háu ibúðablokkirnar á Laugarásnum. Þessi forsenda um skipaum- ferð i firöinum hefur sjálfsagt einnig valdið þvi, að sá valkost- ur að byggja flotbrú — sem án efa yrði mun ódýrari en hengi- brú — var ekki kannaður. Valkosturinn flotbrú Það má ljóst vera, að for- senda að halda yrði firðinum opnum fyrir umferð hafskipa, hefur átt verulegan þátt i þvi, að tengingarhugmyndir hafa verið utan skynsamlegra kostnaðar- marka. Undirritaður er þeirrar skoð- unar, að hugsanlega mætti breyta þessari mikilvægu for- sendu. Umferð um fjörðinn er tvenns konar: hvalveiðiskip á sumrum og ferðir oliuflutningaskipa til oliubirgðastöðvarinnar. Hvað hvalveiðiútgerðina varðar hefur maður, sem kunn- ur er málum, látið það álit i ljós, að hvalveiðiútgerðin muni leggjast niöur eftir nokkur ár, enda hafi margar þjóðir gert áætlanir þar að lútandi. Þegar athugað er hvers vegna oliubirgðastöðin er i Hvalfiröi, kemur i ljós, að það er annars vegar vegna hvalveiðistarfsem- innar og hins vegar vegna þarfa varnarliðsins fyrir oliubirgða- stöð. Eftir að hvalveiðiútgerö hefur lagst niður er það aðeins vegna hernaðarlegra öryggisþátta, að oliustöðin yrði að vera þarna áfram. Ef að svo telst vera kemur tvennt til greina, i fyrsta lagi að leggja oliuleiðslu neðanjarðar fram i Grundartangahöfn þar sem oliuskipin yrðu afgreidd, eða i öðru lagi,- að Bandarikja- menn borguðu þann aukakostn- að, sem hljótast mundi af þvi að gera þannig brúartengingu, að fjörðurinn héldist skipgengur vegna sérþarfa þeirra. Ef þessi valkostur yrði ofan á yrði kostn- aðarþátttaka þeirra væntanlega byggingarkostnaður hengibrúar minus kostnaðarverð flotbrúar. Tekið skal fram, að hér er ekki um aronsku aö ræða, þar sem ekki er verið að tala um að Bandarikjamenn taki á sig kostnað vegna okkar íslendinga heldur það, að við verðum ekki að sleppa af hagkvæmum brú- unarmöguleikum vegna sér- þarfa þeirra og þurfa jafnvel þeirra vegna að aka um ókomna áratugi krókinn fyrir Hvalfjarð- arbotn. Tölur og tæknileg atriði Til eru tvær aðalgerðir af flot- brúm, þ.e. annars vegar brú eöa stokkur sem flýtur nokkuð undir yfirborði sjávar og hins vegar brú, eins og sýnd er á teikning- unni og flýtur á sjónum. Ekki eru tök á þvi hér, að meta hvor gerðin er ódýrari, en á jarðskjálftasvæðum virðist seinni kosturinn bjóða upp á meira öryggi. Einhver mundi sjálfsagt telja þaö benda til óhagkvæmni flot- brúa hversu útbreiðsla þeirra er litil. En á þessu er sú einfalda skýring, að þær koma vart til greina við firði, þar sem þétt- býli er, þvi að þar eru þá oftast hafnir. Aftur á móti eru til flot- brýr i strjálbýlum löndum eins og Noregi og við þannig lönd þurfum við að miða vegna likra aðstæðna. Væri rétt að kanna, hvort flotbrýr gætu átt við á fleiri fábyggðum fjörðum hér á landi. Rétt er að geta hér eins mikils hagkvæmniskosts flotbrúa, en hann er sá, að hægt er að leggja aðeins aðra akreinina i einu og fullnýta hana með umferðar- ljósastýringu. Við þvi má búast að leysa verði úr tækniatriðum, sem verkfræðingar eru óvanir. Má þar nefna átök á brúna vegna strauma og vinda. Hugsanlega má finna leiöir til að gera þenn- an tæknilega vanda viðráðan- legri, eins og t.d. með að hafa flothylkin straumlínulaga og láta brúargólfið standa á súlum, sem lyftu þvi nokkuð yfir yfir- borð sjávar, en með þvi mundu loftstraumar klofna auðveldar á yfirbyggingunni. Til gamans má varpa fram þeirri spurningu, hvort hægt væri að nota gamla skips- skrokka, — t.d. hvalbáta — sem flothylki. Hér skulu að lokum nefndar nokkrar tölur til að gefa vis- bendingu um sparnað af fram- kvæmdinni: Um Hvalfjörðinn fara nú um 7200 bílar á ári. Ef reiknað er með styttingu i akstursvega- lengd hvers bils um 40 km og kostnað á hvern ekinn km 100 krónur yrði sparnaður á ári um 35 milljónir. Viö þetta bætist siðan kostnaður rikisins vegna reksturs Akraborgar 45 mill- jónir, sem gera þá 80 milljónir á ári. Beinn þjóðhagslegur sparnaður yrði þvi um 800 milljónir á 10 árum. 1 þessari tölu er ekki reiknað með sparnaði þeirra, sem nú fara með ferjunni, afskriftum af kaupverði ferjunnar, hugsan- legri hækkun á eldsneyti bila og ferju, aukningu i umferð svo og vöxtum og vaxtavöxtum af þeim upphæðum sem sparast á timabilinu. Reykjavik 28. febr. 1980 Sjálfboðaliðar hringi i sima 86300 eða 86538, Siðumúla 15 ReykjavEk, á venjulegum skrif- tofutima. Þeim sem senda vilja framlög til blaðsins er bent á að giró- seðlar fást i öllum pósthúsum, bönkum og sparisjóðum. Söfn- unarreikningurinn er hlaupa- reikningur nr. 1295 i Samvinnu- bankanum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.