Fréttablaðið - 16.05.2007, Síða 1
Tæp 35 prósent
vilja að Sjálfstæðisflokkur og Sam-
fylking myndi ríkisstjórn. Frá því
að Fréttablaðið hóf að spyrja þess-
arar spurningar í ágúst á síðasta
ári, hefur ekki verið meiri stuðning-
ur við ríkisstjórn þessara tveggja
flokka. Mestur varð stuðningurinn
við slíka stjórn viku fyrir kosning-
ar, 14,5 prósent. Þetta er einnig í
fyrsta sinn frá því í ágúst sem fleiri
vilja aðra stjórn en áframhaldandi
ríkisstjórn Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks.
Stuðningur við áframhaldandi
ríkisstjórnarsamstarf hefur aðeins
dalað síðan 5. maí, úr 36,7 prósent-
um í 32,4 prósent.
Tæp 19 prósent vilja að Fram-
sóknarflokkur, Samfylking og
Vinstri græn myndi ríkisstjórn, en
fyrir kosningar var stuðningur við
slíka þriggja flokka stjórn óveru-
legur. 14,3 prósent segjast vilja rík-
isstjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri
grænna, sem er sama hlutfall og
mældist 5. maí.
Nokkur munur er eftir búsetu á
því hvaða ríkisstjórn fólk vill.
Þannig er meiri stuðningur við
stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðis-
flokks á höfuðborgarsvæðinu, 40,1
prósent, en á landsbyggðinni, 26,6
prósent.
Flestir á landsbyggðinni vilja
hins vegar áframhaldandi ríkis-
stjórnarsamstarf, eða 36,3 prósent,
en stuðningur við slíka stjórn á höf-
uðborgarsvæðinu er 29,8 prósent.
Ef svörin eru greind eftir því
hvaða flokk svarendur sögðust hafa
kosið á laugardag, vilja 80,3 prósent
framsóknarfólks áframhaldandi
ríkisstjórn. Rúmlega helmingur
sjálfstæðismanna vill halda ríkis-
stjórninni en þriðjungur vill stjórn
með Samfylkingu.
Tæplega 70 prósent samfylking-
arfólks vilja að flokkurinn fari í
stjórn með Sjálfstæðisflokki, en
tæp 30 prósent vilja ríkisstjórn
Samfylkingar, Framsóknarflokks
og Vinstri grænna. Rúmlega helm-
ingur kjósenda Vinstri grænna vill
hins vegar stjórn með Samfylkingu
og Framsóknarflokki, en rúmlega
þriðjungur vill stjórn með Sjálf-
stæðisflokki. Hringt var í 800
manns á kosningaaldri þriðjudag-
inn 15. maí og skiptust svarendur
jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir
kjördæmum. Spurt var: Hvaða
stjórnmálaflokkar vilt þú að myndi
ríkisstjórn? 74,5 prósent tóku
afstöðu til spurningarinnar.
67%
36%
31%
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars 2007.
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
Miðvikudagur
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
10
20
40
0
50
60
80
70
Hjónin Þorgrímur Kristjánssonog Þuríður Þórðardóttir rekahótel í Ölpunum.
„Hótelið kallast Skihotel Speier-eck og er í litlu fjallaþorpi, SanktMichael, 100 km suður af Salzburg.Við erum á Alpahryggnum í sól-ríkasta hluta Austurríkis,“ útskýr-ir annar eigendanna, ÞorgrímurKristjánsson, hress í síbæti
og hægt að leigja sér fjallahjól.Fólk getur alltaf haft viðkomu í veitingaskálum, sem eru allt umkring, og fengið sér hressingu.Hér fást heimagerðar gúllassúp-ur, ostar, pylsur og speck, sem er vindþurkkað svína- og nautakjöt.Þá er hægt að fara í útreiðatúrariver-rafting fjall kl
DREKINNWUSHU FÉLAG REYKJAVÍKSkeifunni 3j · Sími 553 8282www.heilsudrekinn.is
Kennari:
Meistari Zhangeinkatímar og hópatímar
Tau lo
Tai jí
Skráninger hafin
Upp hefur komist
um unga konu sem hefur stund-
að árum saman að svíkja út
ávanabindandi lyf, parkódín og
SEM-mixtúru sem hvort tveggja
inniheldur kódein, á stolna kenni-
tölu. Lögreglan handtók konuna í
Árbæjarapóteki á föstudag,
þegar hún var að sækja skammt
af verkjalyfinu parkódín.
Bannað er að hringja inn í apó-
tek ávísun á kódeinlyf, svefnlyf
og róandi lyf, til að draga úr
hættunni á að fólk misnoti þau.
Lyfseðlana má hins vegar senda
í símbréfi, sem var gert í þess-
um tilvikum.
Gunnar Ingi Gunnarsson, yfir-
læknir heilsugæslunnar í Árbæ,
sagði að mistök í skráningu
hefðu orðið þess valdandi að
konan komst upp með að fá kód-
einlyfjum ávísað af og til frá
árinu 2004 þar til í síðustu viku. Í
eitt skiptið hafi samskipti læknis
og hennar verið skráð ranglega
sem stofukoma. Læknar hafi
kannað fyrri skráningar og séð
að viðkomandi hafi komið á
stofu.
„Grunur um misferli vaknar
svo hjá ritara stöðvarinnar þegar
konan hringir í síma þar sem
lyfjaendurnýjanir fara fram,“
útskýrir Gunnar Ingi.
„Ritarar taka þá við beiðni
sjúklinga og skrifa niður endur-
nýjunarbeiðni þeirra sem eru í
reglubundinni lyfjameðferð. Rit-
arinn sem fékk þessa upp-
hringingu fór að kanna hvort
viðkomandi hefði fengið þessi
lyf áður, sá að hún var ekki
skráð, gerði athugasemd og
hringdi í hana. Þá kom í ljós að
konan sem á kennitöluna hafði
aldrei hringt. Við brugðumst við
og skipulögðum það þannig að sú
sem að svindlinu stóð var hand-
tekin þegar hún kom að sækja
lyfin í apótekið.“
Gunnar Ingi segir þetta vera í
annað sinn sem uppgötvist í
Heilsugæslunni í Árbæ að með
kerfisbundnum hætti hafi verið
notuð stolin kennitala til þess að
endurnýja lyf.
Sveik út lyf á ranga kennitölu
Markaðsvirði Actavis
hefur sjötíuogfimmfaldast á átta
árum. Þegar Balkanpharma var
keypt árið 1999 var markaðsvirði
félagsins um 3,8 milljarðar króna.
Eftir yfirtökutilboð Novators,
fjárfestingarfélags Björgólfs
Thors Björgólfssonar, í síðustu
viku rauk virði félagsins yfir 290
milljarða íslenskra króna. Frá
árinu 1999 hefur Actavis ráðist í
yfirtökur fyrir sem nemur um 164
milljörðum króna.
Hluthafar geta verið ánægðir
með ávöxtun bréfa sinna fram að
þessu, þótt framhald verði ekki
þar á nái Novator takmarki sínu.
Bréf þeirra hafa að jafnaði
hækkað um fimmtíu prósent
árlega frá 1999.
Markaðsvirðið
sjötíuogfimmfalt
26
79
/
IG
01
Þú færð Shimano
í næstu
sportvöruverslun
hjól
Reka hótel í Ölpunum Ár svínsins til óhappaBrauð gleður geiturnar
landbúnaðurMIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2007
35% vilja stjórn Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokks
Flestir vilja ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í nýrri könnun Fréttablaðsins. Stuðningur við
slíka stjórn eykst úr 14,5 prósentum í 34,7 prósent. Stuðningur við áframhaldandi ríkisstjórn Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks dalar aðeins frá því fyrir kosningar, var 36,7 prósent en er nú 32,4 prósent.