Fréttablaðið - 16.05.2007, Síða 4
Tveir karlmenn, sem
ákærðir hafa verið fyrir að standa
að stórfelldu smygli á kókaíni
hingað til lands, voru í gær dæmd-
ir til að sæta áfram gæsluvarð-
haldi til 11. júní.
Annar mannanna, sem er um fer-
tugt, gerði tilraun til að smygla inn
mesta magni af kókaíni sem reynt
hefur verið að smygla til landsins á
einu bretti. Um var að ræða tæp
fjögur kíló af kókaíni og lítilræði
af amfetamíni falið í Mercedes
Benz Sprinter bíl sem fluttur var
inn frá Cuxhaven í Þýskalandi með
flutningaskipinu Helgafelli.
Tollgæslan í Reykjavík fann
efnin 11. nóvember, vandlega falin
í bílnum. Lögregla fjarlægði þau
og setti gerviefni í staðinn.
Bíllinn var ekki sóttur fyrr en 7.
febrúar og maðurinn handtekinn
skömmu síðar og úrskurðaður í
gæsluvarðhald.
Hann var skráður sem viðtak-
andi bílsins. Samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins hefur mað-
urinn áður setið í fangelsi erlendis
fyrir fíkniefnabrot.
Hinn maðurinn sem gæsluvarð-
hald var framlengt yfir í gær
aðstoðaði félaga sinn við að fjar-
lægja fíkniefnin, sem þeir töldu
vera, úr bifreiðinni. Síðan tók hann
þau í sína vörslu í því skyni að
afhenda þau til söludreifingar.
Kókaínsmyglarar áfram í haldi
Nálægt fimm prósent
unglinga í framhaldsskólum á
Íslandi viðurkenna að hafa beitt
einhvers konar kynferðislegu
ofbeldi. Þetta kemur fram í nýrri
samstarfsrannsókn Háskólans í
Reykjavík og Landspítalans sem
unnin var í samstarfi Barna-
verndarstofu og fleiri aðila. Meg-
intilgangur hennar var að kanna
bakgrunn þeirra unglinga sem
beita kynferðisofbeldi.
Þátttakendur voru rúmlega níu
þúsund og af þeim fjölda játuðu
rúmlega tvöhundruð drengir mis-
notkunina en um 130 stúlkur.
„Niðurstöðurnar eru sláandi,
en þó í samræmi við þær tölur
sem við höfum séð í rannsóknum
annarra landa,“ segir Jón Friðrik
Sigurðsson sálfræðingur, sem
mikið hefur unnið með ungling-
um sem gerst hafa sekir um kyn-
ferðislegt ofbeldi og er einn
þeirra sem stóðu að rannsókn-
inni. Hann segir nauðsynlegt að
bregðast við þessum upplýsing-
um með einhverju móti hið
fyrsta. Í ljós kom að drengir sem
sögðust hafa misnotað aðra kyn-
ferðislega voru rúmlega tíu sinn-
um líklegri en aðrir til að hafa
sjálfir orðið fyrir kynferðislegri
misnotkun en stúlkur átta sinn-
um líklegri. Niðurstöðurnar gefa
því sterklega til kynna að alvar-
leg áhrif kynferðislegrar mis-
notkunar geti þróast út í afbrigði-
lega kynhegðun hjá unglingum
og gætu niðurstöðurnar nýst
mjög í endurhæfingu kynferðis-
brotamanna.
„Það er einnig mjög mikilvægt
að fræða unglinga betur um
hversu alvarlegar afleiðingar
brotin geta haft á þolendur. Þetta
á sérstaklega við um drengi sem
læra það af klámi að með konur
megi fara hvernig sem er,“ segir
Jón Friðrik. Skýringar á því hve
hátt hlutfall stúlkna játar að hafa
misnotað aðra segir hann ekki
kunnar. Mun færri rannsóknir
hafi verið gerðar í tengslum við
brot kvenna en Jón Friðrik segist
ekki muna eftir tilfelli þar sem
kona hafi verið dæmd fyrir slíkt
brot hér á landi.
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stí-
gamóta, segir hátt hlutfall stúlkna
sem segist hafa beitt kynferðis-
legu ofbeldi koma sér á óvart.
„Án þess að ég vilji draga úr
alvarleika þessara niðurstaðna þá
held ég að þetta kalli á þá spurn-
ingu hvort kynin skilgreini þessi
atriði á sama hátt,“ segir Guðrún
en tekur fram að enn hafi hún ekki
séð þessa rannsókn.
Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands,
heimsótti Vestmannaeyjar í gær.
Með honum í för voru Helgi
Tómasson, stjórnandi San
Fransisco-ballettsins, og eigin-
kona hans, Marlene.
Hópurinn kom víða við í
heimsókn sinni en dagskráin
endaði með því að forsetinn
opnaði nýja sýningu þar sem þess
er minnst að 380 ár eru liðin frá
Tyrkjaráninu 1627.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, leysti forset-
ann og Helga út með góðum
gjöfum, fengu þeir geisladiska
með lögum Oddgeirs Kristjáns-
sonar.
Var leystur út
með diskum
„Það liggur ljóst
fyrir að bæjarstjórn mun ekki á
þessu kjör-
tímabili hafa
forgöngu um
að taka til
afgreiðslu nýja
deiliskipulags-
tillögu vegna
stækkunará-
forma Alcan í
Straumsvík,“
segir Lúðvík
Geirsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, um fyrir-
spurn bæjarfulltrúa Vinstri
grænna.
Hún vitnaði til orða Lúðvíks í
Viðskiptablaðinu um að ekkert
útilokaði að Alcan legði málið
aftur fram. Guðrún vildi fá úr
því skorið hvort Lúðvík væri að
ganga á bak þeirra orða sinna að
niðurstaða atkvæðagreiðslunn-
ar um stækkunina væri bind-
andi.
Alcan má gera
nýja tillögu
Norski fjármálaráð-
herrann Kristin Halvorsen
greindi frá því í gær að auknar
tekjur ríkissjóðs gerðu ríkis-
stjórninni kleift að auka
ríkisútgjöld í ár en minnka um
leið notkun olíugróðans í
ríkisfjármálunum.
Endurskoðuð fjárlög Noregs
hækka ríkisútgjöldin í 716,7
milljarða norskra króna,
andvirði 7.525 milljarða
íslenskra, sem er hálfs pró-
sentustigs hækkun frá því
fjárlögin voru samþykkt í
fyrra.
Gert er ráð fyrir sem svarar
3.549 milljarða króna afgangi af
fjárlögum ársins.
Góðæri hækk-
ar ríkisútgjöld
Þeir fjórir umsækj-
endur um embætti ríkissaksókn-
ara, sem eftir eru, vænta nú
símtals frá Birni Bjarnasyni
dómsmálaráðherra.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að dómsmálaráðherra muni
hringja persónulega í umsækj-
endurna Brynjar Níelsson, Egil
Stephensen, Jón H.B. Snorrason
og Sigríði Friðjónsdóttur og
tilkynna hverju fyrir sig hver
muni hreppa hnossið.
Áður hafði Jóhannes Rúnar
Jóhannesson dregið umsókn sína
til baka þar sem hann taldi að
embættinu væri þegar ráðstafað.
Bíða þess að
Björn svari
Fórnarlömb líklegri
til að verða gerendur
Nálægt fimm prósent unglinga hafa beitt kynferðisofbeldi. Jón Friðrik Sigurðs-
son sálfræðingur segir að fræða þurfi unglinga um afleiðingar misnotkunar.