Fréttablaðið - 16.05.2007, Page 8
Tuttugu og tveggja ára
maður hefur verið dæmdur í árs
fangelsi, þar af níu mánuði skilorðs-
bundna, fyrir að hafa stefnt lífi
sjálfs sín og annarra í augljósa
hættu með ofsaakstri um götur
Reykjavíkur undir áhrifum fíkni-
efna í febrúar síðastliðnum.
Maðurinn ók undan lögreglu í
náttmyrkri og rigningu á allt upp
undir fjórföldum hámarkshraða
þegar verst lét, yfir umferðareyjur,
á öfugum vegarhelmingi og utan í
kyrrstæðan bíl. Fjórir lögreglubílar
tóku þátt í eftirförinni undir það
síðasta og stöðvaði maðurinn ekki
fyrr en lögregla ók á bíl hans.
Maðurinn stofnaði lífi sínu, lög-
reglumanna, tveggja farþega sem í
bílnum voru og annarra ökumanna í
augljósa hættu með aksturslagi
sínu. Hann var undir áhrifum am-
fetamíns og kannabisefna við akst-
urinn, auk þess sem hann hafði
drukkið áfengi fyrr um kvöldið og
hafði ekki gild ökuréttindi.
Ökuníðingurinn hefur fimmtán
sinnum áður verið fundinn sekur
um hegningar-, umferðar- og fíkni-
efnalagabrot, á tímabilinu frá
febrúar 2004 fram í september síð-
astliðinn, þar af samtals sextán
mánaða fangelsi fyrir þrjá dóma
frá september 2005. Maðurinn rauf
skilyrði reynslulausnar með broti
sínu og voru eftirstöðvar þess dóms
gerðar upp í málinu. Maðurinn var
því dæmdur í árs fangelsi, níu mán-
uði skilorðsbundna, og til greiðslu
300 þúsund króna sektar. Þá var
hann sviptur ökuleyfi í tvö ár.
Dómurinn er með þeim þyngri
sem fallið hafa fyrir brot af þessu
tagi, þótt horfa verði til skilorðsrofs
og sakaferils mannsins. Daði Kristj-
ánsson, sem sótti málið fyrir hönd
lögreglu, segir dóminn þó ekki hafa
verið óvenjuþungan, sérstaklega
með tilliti til skilorðsrofsins. Dóm-
urinn hafi verið innan refsiramm-
ans en sektin og löng ökuleyfis-
sviptingin gefi alvarleika málsins
skýrt til kynna.
„Það er stefna okkar að taka mjög
alvarlega brot þar sem menn hafa
sýnt af sér hegðun sem þessa,“
segir Egill Bjarnason, yfirlögreglu-
þjónn í umferðardeild lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu.
Stofnaði fjölmörgum
mannslífum í hættu
Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu skilorðs-
bundna, fyrir að stofna lífi sínu, farþega sinna, annarra ökumanna og lögreglu-
manna sem eltu hann í augljósa hættu með ofsaakstri undir áhrifum lyfja.
Rúmlega tvítugur
maður hefur verið dæmdur í hálfs
árs skilorðsbundið fangelsi fyrir
að hafa, í starfi sínu sem fanga-
vörður í ágúst í fyrra, gerst sekur
um fíkniefnabrot í opinberu
starfi, þegar hann smyglaði 240
grömmum af hassi og um 30
grömmum af amfetamíni inn á
Litla-Hraun. Refsifanginn Mikael
Már Pálsson hlaut fjögurra mán-
aða fangelsisdóm, þar af tvo mán-
uði skilorðsbundna, fyrir að
skipuleggja innflutninginn og
taka á móti efnunum.
Fangavörðurinn fyrrverandi
hugðist skilja efnin eftir í fanga-
klefa Mikaels Más. Áður en kom
til þess varð fíkniefnahundur var
við eitthvað misjafnt og framvís-
aði vörðurinn þá efnunum við
yfirmann sinn. Maðurinn er einn-
ig dæmdur fyrir peningaþvætti
fyrir að hafa tekið á móti hundrað
þúsund krónum í reiðufé frá
Mikael Má kvöldið áður, smyglað
þeim út úr fangelsinu og afhent
þau öðrum. Mun honum hafa
verið ljóst að féð var söluágóði
fíkniefna. Maðurinn bar því við
að hann hefði verið undir miklum
þrýstingi frá föngum í fangelsinu
og óttast um hag sinn. Sá vitnis-
burður fékkst staðfestur.
Mikael Már var dæmdur fyrir
að skipuleggja smyglið til að geta
notað og dreift efnunum í fang-
elsinu. Hann var dæmdur í fjög-
urra ára fangelsi síðasta sumar
fyrir að hafa sent þrjá tvítuga
pilta utan til að smygla hálfu kílói
af kókaíni til landsins, og að hafa
sjálfur smyglað hingað tæpum
fjórum kílóum af amfetamíni.
Ráðamenn í Moskvu
og Washington hafa sammælst um
að gæta orða sinna í því skyni að
bæta samskiptin milli landanna.
Þetta sagði rússneski utanríkisráð-
herrann Sergei Lavrov eftir að hin
bandaríska starfssystir hans Cond-
oleezza Rice átti fund með Vladimír
Pútín Rússlandsforseta í Moskvu.
„Forsetinn tók undir þann skiln-
ing Bandaríkjamanna að þörf væri
á að gæta orða sinna í opinberum
yfirlýsingum og einbeita sér að
þeim verkefnum sem fyrir liggja,“
sagði Lavrov, sem einnig tók þátt í
fundinum.
„Ég slæ ekki um mig með frösum
eins og „nýtt kalt stríð“,“ sagði Rice
fyrir fundinn, og var þar að vísa til
nýlegra orða Pútíns um meint
dramb Bandaríkjamanna.
Þýski utanríkisráðherrann
Frank-Walter Steinmeier átti líka
fund með Pútín í gær í von um að
geta hindrað að deilumál Rúss-
lands og Evrópusambandsins ver-
snuðu enn og spilltu fyrir horfum
á að samkomulag næðist í viðræð-
um um endurnýjun samstarfs-
samnings Rússlands og ESB, sem
reyna á nýja atlögu að á föstudag.
„Báðir aðilar eru áhugasamir
um að útkljá það sem okkur grein-
ir á um og að leyfa ágreiningsefn-
unum ekki að verða að meiriháttar
pólitískum árekstrum,“ sagði
Steinmeier, en Þjóðverjar gegna
nú formennskunni í ESB.
Sýni gætni í yfirlýsingumTollskýrslugerð
Hagnýtt og ítarlegt námskeið í gerð tollskýrslna. Kynntar
eru helstu reglur er varða innflutning, innflutnings-
takmarkanir og undanþágur. Farið er yfir fylgiskjöl með
vörusendingum og hvaða tilgangi þau þjóna við innflutning
og gerð tollskýrslna. Farið er m.a. yfir myndun tollverðs
og útreikning aðflutningsgjalda. Kynntir eru fríverslunar-
samningar og notkun tollskrárinnar.
Lengd: 21 std. og er boðið uppá morgun- og kvöldnámskeið.
Verð: 28.000.- Sérútbúin kennslubók og ítarefni innifalið.
Morgunhópur.
Kennsla hefst 18. maí og lýkur 25. maí.
Kennt er mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 8.30 - 12.
Kvöld og helgarhópur:
Kennsla hefst 19. maí og lýkur 26. maí.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 18 - 19.30
og laugardaga kl. 9 - 12.30.
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210