Fréttablaðið - 16.05.2007, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 16.05.2007, Qupperneq 16
Hugmynd Ögmundar Jón- assonar og annarra um að Framsóknarflokkurinn verji minnihlutastjórn VG og Samfylkingarinnar falli er nýlunda í íslenskum stjórnmálum. Áþekk stjórn hefur aldrei starfað í land- inu. Þó að hugmyndin hafi svo gott sem verið slegin út af borðinu er athyglisvert að hún hafi komið fram. Ekki er hefð fyrir minni- hlutastjórnum á Íslandi en slíkt stjórnarmynstur er algengt í stjórnmálasögu hinna Norðurland- anna. Fjórar minnihlutastjórnir hafa starfað á Íslandi en á allt öðrum forsendum en hefðbundnar minnihlutastjórnir sem ætlað er að fara með landsstjórn. Fyrsta íslenska minnihluta- stjórnin starfaði undir forsæti Ólafs Thors, formanns Sjálfstæð- isflokksins, frá miðjum maí fram í desember 1942. Verkefni hennar var eitt og afmarkað; að leiðrétta kjördæmaskipunina með breyt- ingu stjórnarskrár. Aftur sat Ólafur í forsæti minnihlutastjórnar frá desem- berbyrjun 1949 fram í miðjan mars 1950 eftir að tilraunir til myndun samsteypustjórnar höfðu mistekist. Sú stjórn naut hvorki stuðnings né hlutleysis annarra flokka. Þriðja minnihlutastjórnin var við völd frá Þorláksmessu 1958 til nóvember 1959. Emil Jónsson, formaður Alþýðuflokksins, var forsætisráðherra og líkt og með fyrri minnihlutastjórn Ólafs Thors var verkefnið að leiðrétta kjördæmaskipan með breytingu á stjórnarskránni. Síðast starfaði minnihluta- stjórn á Íslandi frá október 1979 fram í febrúar 1980 undir forsæti Benedikts Gröndal, formanns Alþýðuflokksins. Hún varð til eftir að slitnað hafði upp úr sam- starfi Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks og hafði í raun þann eina starfa að rjúfa þing og boða til kosninga. Minnihlutastjórnir eru jafnan skipaðar flokkum sem teygja sig út frá miðju stjórnmálalitrófsins og njóta stuðnings flokka á jöðr- um þess. Jaðarflokkarnir veita þá stuðning í viðleitni til að halda flokkum á hinum jaðri litrófsins frá völdum. Hugmyndafræði slíks stuðnings byggir á að við- komandi flokkar öðlist með honum rík áhrif á stefnu og gjörð- ir ríkisstjórnar og varni því um leið að pólitískt öndverð sjónar- mið séu leidd til öndvegis. Að baki hugmyndum um minni- hlutastjórn Vinstrihreyfingarinn- ar - græns framboðs og Samfylk- ingarinnar með stuðningi Framsóknarflokksins liggur því allt önnur hugsun. Við slíkar aðstæður myndi miðjuflokkur verja stjórn jaðarflokks. Í ljósi sérkennilegra aðstæðna myndi Framsóknarflokkurinn öðlast mikil völd með stuðningi við minnihlutastjórn VG og Sam- fylkingarinnar. Jafnvel má leiða að því rök að völd flokksins yrðu meiri en í stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn þar sem Framsókn færi með mun færri ráðuneyti. Framsóknarmenn gætu stillt ríkisstjórninni upp við vegg og hún þyrfti að lúta vilja þeirra í einu og öllu þar sem stjórnarslit blöstu ella við og Sjálfstæðisflokkurinn kæmist til valda. fréttir og fróðleikur Hirðmenn hafsins á leið til Íslandsstranda Aðallega æðstu embættismenn Venja að jaðarflokkar verji minnihlutastjórnir falli

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.