Tíminn - 17.05.1980, Blaðsíða 15
ÍÞROTTIR
Laugardagur 17. mal 1980
1. DEILDAR
fréttir
Lloyd fær
landsleik
eftir 8
ára hvfld
Greenwood velur
enska liðið
gegn Wales
Ron Greenwood, landsliðsein-
valdur Englands, hefur valifi
enska landsliðifi, sem leikur
gegn Wales i Bretlandseyja-
keppninni I Wrexham. Hann
hefur gert miklar breytingar frá
leiknum gegn Argentinu, en iið
hans verður skipað þessum leik-
mönnum: Clemence (Liver-
pool), Neal (Liverpool), Larry
Lloyd(Forest)en hannlék siðast
með liðinu 1972, Thompsoii
(Liverpool), Trevor Cht.-ry
(Leeds), Glen Hoddle (Totten-
ham), Trevor Brooking (West
Ham), Ray Kennedy (Liver-
pool), Peter Barnes (W.B.A.)
—Paul Mariner (Ipswich) og
Steve Coppell (Man. Utd.).
Tveir nýliðar leika með Wales
— þeir Paul Price (Luton) og
David Giles (Swansea) og þá
leikur gamla kempan Leighton
James, sem leikur nú með
Swansea. — SOS
• Argentínumenn
lögöu Ira...
Argentína vann sigur 1:0 yfir ir-
um i vináttuiandsieik I knatt-
spyrnu, sem fór fram I Dublin I
gærkvöldi. Jose Valencia skor-
aði markið á 27- min.
• Heimsmet I
sleggjukastl
Rússinn Yuri Sedyhk setti nýtt
heimsmet i sleggjukasti á móti I
Moskvu i gærkvöldi — hann
kastaði sleggjunni 80.64.
kVOLKER HOFFERBERT.. sést hér stjórna æfingu að Hllðar-
enda i gærkvöldi. (Timamyndir Róbert)
— KR-ingar eru alltaf erfiðir viö
að glima — miklir baráttu-
jaxlar, sagði Guðmundur Þor-
björnsson, fyrirliði Valsmanna,
sem mæta KR-ingum á Laugar-
dalsvellinum I dag. Guðmundur
lék einmitt sinn fyrsta leik með
Valsliðinu gegn KR — fyrir 6 ár-
um.
Það var létt yfir leikmönnum
Valsliðsins, þegar Timinn heim-
sótti þá að Hliðarenda, þar sem
þeir voru á siðustu æfingunni
fyrir átökin gegn KR-ingum.
— Nú náðuð þið mjög góðum
leik gegn FH-ingum.
— Já, við náðum aö sýna betri
leik, en ég átti von á — kannski
aö óskabyrjunin hjá okkur gegn
FH, hafi gert það að verkum.
— Heldurðu að þið náið eins
góðum leik gegn KR-ingum?
— Það er ómögulegt aö segja
— KR-ingarnir leika allt öðru
visi en FH-ingar, sem leika
netta knattspyrnu. Aftur á móti
eru KR-ingarnir haröir I horn að
‘ 'ka og miklir baráttumenn.
— Nú böröust þið vel gegn FH-
ingum —- gáfust aldrei upp.
— Já, það var góö barátta hjá
okkur — nokkuð sem hefur
vantað undanfarin ár. Það hefur
vantað að allir berðust sem einn
maður — ég hef trú á að barátt-
an komi hjá okkur nú.
— Leikurinn gegn KR-ingum
verður þá baráttuleikur?
— Já, eins og KR-ingar leika,
þá má búast viö þvi — við mun-
um beita krók á móti bragði, ef
þvi er að skipta.
— Ertu bjartsýnn á sumarið?
— Já, ekki get ég neitað þvi —
þaö er mikill hugur I strákunum
og viö munum gera allt okkar
besta, til að vera með i barátt-
unni um íslandsmeistaratitil-
inn, eins og undanfarin ár. Viö
erum meö sterka vörn og
marksækna sóknarleikmenn —
þeir geta skapað sér marktæki-
færi og þá þarf ekki aö spyrja að
eftirleiknum, sagði
Guðmundur.
—SOS
(Knattspyrnu-
nunktar.....
* Hestur setti
otrík i
reikninginn
Billy Hamilton fra Burnley
skoraði sigurmark (1:0) N-lra
gegn Skotum I Belfast i gær-
kvöldi I Bretlandseyjakeppn-
inni.
Alan Rough gat ekki leikið I
marki Skota, þar sem hestur
konunnar hans, steig ofan á
hægri fótinn á honum rétt áöur
en að Skotarnir héldu til
N-írlands.
• Keegan skorar
Kevin Keegan og Horst
Hrubesch (Toshack V-Þýska-
lands) skoruðu fyrir Hamburger
SV.þegarfélagiövannsigur (2:0)
yfir Eintracht Braunschweig I
„Bundesligunni” i gærkvöldi.
• ALAN ROUGH
• Sigur hjá
Arsenal
Leikmenn Arsenal voru enn
einu sinni i sviösljósinu I gær-
kvöldi —þá unnu þeir góðan sig-
ur 2:1 yfir Olfunum á Molineux i
ensku 1. deildarkeppninni.
Steve Walford og Frank
Stafleton skoruöu fyrir
Arsenal, John Richard fyrir
— og það er erfitt að glíma við þá”, segir Guðmundur
Þorbjörnsson, fyririiði Vals —-
Leikir helgarinnar:
Framarar
anda léttar
Sigurlás leikur ekki með
Eyjamönnum gegn þeim
Sigurlás Þorleifsson leikur
ekki með Vestmannaeyingum
gegn Fram á Laugardalsvellin-
um annaö kvöld, þar sem hann
er i tveggja leikja banni.
Framarar anda örugglega létt-
ar, þvi að Sigurlás skoraði 4
mörk gegn þeim sl. sumar,
þegar hann lék með Vlkingum,
sem lögðu Framara að velli 5:1.
Þaö má búast við fjörugum
leik, þegar Islands- og bikar-
meistararnir mætast kl. 8.
Vikingar heimsækja Skaga-
menn I dag og fer leikur þeirra
fram kl. 3.
KR-ingar og Valsmenn mæt-
ast á Laugardalsvellinum kl. 2
og á sama tima leika FH-ingar
gegn Keflvikingum á Kapla-
krikavellinum.
Breiöablik og Þróttur leika
siðan á morgun á Kópavogsvell-
inum og hefst leikurinn kl. 4.
„Þessi á eftir að skora mikiö af mörkum”... Guömundur Þor-
björnsson og Hermann Gunnarsson, sem hefur tekiö fram skot-
skóna.