Fréttablaðið - 16.05.2007, Síða 32
Óskarinn afhentur í fyrsta sinn
„Brighton er alveg æðis-
leg borg. Þetta er svona lít-
ill hippabær. Þar er hægt
að labba um allt eins og
heima, sem ég elska.“
Vestmannaeyingar minnast þess nú að
380 ár eru liðin frá Tyrkjaráninu, of-
beldisfyllstu árásinni sem Íslendingar
hafa nokkru sinni orðið fyrir. Af því til-
efni verða margir viðburðir skiplagðir í
Eyjum en í vikunni var opnuð þar sýn-
ingin „Sjóræningjar og kristnir þrælar
– ferðir og örlög fórnarlamba Tyrkja-
ránsins“.
Þorsteinn Helgason sagnfræðingur
er meðal þeirra sem mest hafa stúderað
þennan atburð en hann segir að Tyrkja-
ránið skipi sérstakan sess í hugum Ís-
lendinga. „Ég hef kannað þetta til
dæmis með hliðsjón af leitarvélum á
netinu, sumir segja að það sé lítið að
marka þær því niðurstöðurnar geta
rokkað milli þúsunda, en þær benda þó
til þess að þetta sé þekktasti eða mest
notaði atburðurinn í Íslandssögunni,“
segir Þorsteinn sem ennfremur hefur
skoðað hlut Tyrkjaránsins í kennslu-
efni allt frá árinu 1880. „Tyrkjaránið er
alls staðar með. Það er misjafnt hversu
mikið menn vita en allir vita eitthvað –
það kviknar á einhverri peru.“
Flokkur sjóræningja frá Norður-Afr-
íku gerði strandhögg við Íslandsstrend-
ur að sumarlagi 1627. Sjóræningjarnir
réðust á íbúa í Grindavík, á Austfjörð-
um og í Vestmannaeyjum, drápu um
fimmtíu manns og tóku hátt í fjögur
hundruð til fanga. Hluti Íslendinganna
dó á leiðinni en þeir sem lifðu af sigling-
una til Afríku voru seldir í ánauð. Um
fimmtíu voru síðar keyptir aftur heim
með lausnargjaldi.
Þorsteinn útskýrir að heitið Tyrkja-
rán sé óheppilegt því í nútímaskilningi
hafi það alls ekki verið Tyrkir sem hér
rændu og rupluðu. „Á þessum tíma köll-
uðu Evrópumenn alla múslima Tyrki en
Tyrkjaveldi náði að hluta til yfir land-
svæði við sunnanvert Miðjarðarhafið.“
Þorsteinn segir aðallega tvær skýr-
ingar á því hversu veigamikinn sess
Tyrkjaránið skipar í söguvitund lands-
manna. „Annars vegar var þessi atburð-
ur svo einstakur, við höfðum lifað mjög
friðsælu lífi,“ segir hann og tekur dæmi
af sambærilegri árás sem gerð var á Ír-
landi árið 1631. „Sú árás hverfur alveg í
fjölda frásagna af innrásum og árásum
og öðrum hörmungum á Írlandi en þar
er einnig til mjög lítið af rituðum heim-
ildum um Tyrkjarán. Hér ríkti aftur á
móti mjög mikil ritgleði.
Tyrkirnir voru vart horfnir úr aug-
sýn þegar menn byrjuðu að skrifa.“
Meðal helstu heimilda um Tyrkjarán-
ið eru til dæmis Reisubók Ólafs Egils-
sonar, prests í Vestmannaeyjum, sem
var einn fanganna sem fluttur var til Al-
geirsborgar.
Þorsteinn útskýrir að hér hafi innrás-
in líka verið stórpólitískt mál sem allir
Íslendingar tóku nærri sér en lands-
stjórnin, biskuparnir og danska stjórnin
létu til sín taka og höfðu milligöngu um
að leysa fólkið úr haldi. „Það var einnig
rætt um vígbúnað, að Íslendingar ættu
að bregðast við og auka varnir sínar en
þær raddir voru kveðnar í kútinn,“ segir
Þorsteinn og áréttar að landsmenn hafi
gert sér grein fyrir óraunhæfi þess að
tryggja öryggi allra landsmanna í þessu
strjálbýla friðsemdarlandi.
Sagan lifir góðu lífi, ekki aðeins í
bókum heldur einnig í landslaginu en á
Austfjörðum og í Vestmannaeyjum má
finna fjöldamörg örnefni sem tengjast
Tyrkjaráninu hvort heldur þjóðsögum
eða sannferðugri frásögnum af þessum
einstaka atburði.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Jóakim Snæbjörnsson
Meistaravöllum 7,
er lést að morgni 11. maí, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. maí kl.
11 árdegis. Þeim sem vilja minnast Jóakims er bent á
Minningarsjóð KR, s. 510 5300.
Tómasína Sólveig Magnúsdóttir
Sigríður Jóakimsdóttir Kjartan Viðar Sigurjónsson
Jenný Jóakimsdóttir
Árni Þór, Arnar Ingi og Ellert Andri.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Baldur Hjálmtýsson
Arahólum 4, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi 2. maí, verður
jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
18. maí kl. 14.00.
Bragi Már Baldursson Kristina Bergqvist
Jóna Kristín Baldursdóttir Sigþór Ágústsson
Hjálmtýr Rúnar Baldursson
Friðrik Baldursson Njála Laufdal
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dótt-
ir, tengdadóttir, tengdamóðir og amma,
Guðrún Ásbjörnsdóttir
tónlistarkennari, Holtsbúð 4, Garðabæ,
verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstu-
daginn 18. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakk-
aðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á líkn-
ardeild Krabbameinsfélagsins.
Páll Hannesson
Björn Rúnar Lúðvíksson Rósa Karlsdóttir
Jóhann Rúnar Pálsson Huld Aðalbjarnardóttir
Ásbjörn Pálsson Ingibjörg S. Ármannsdóttir
Margrét Valgerður Pálsdóttir Þórarinn Hauksson
Guðrún Sigurðardóttir Ásbjörn Guðmundsson
Steinþóra Margrét Níelsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Benediktsson
frá Hólmavaði,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 12. maí.
Jarðarförin fer fram í Neskirkju í Aðaldal laugar-
daginn 19. maí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsam-
legast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á reikning 0192-05-63302 kt. 280970-3529,
það fé sem safnast mun renna til Öldrunardeildar
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.
Helga Baldursdóttir
Baldur Kristjánsson Gígja Þórarinsdóttir
Jónasína Kristjánsdóttir Guðlaugur Jóakimsson
Laufey Kristjánsdóttir
Benedikt Kristjánsson Elín Ívarsdóttir
b bö b b bö
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Arndís Pálsdóttir
Barkarstöðum, Miðfirði,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Hvammstanga
fimmtudaginn 10. maí 2007, verður jarðsungin frá
Melstaðarkirkju laugardaginn 19. maí kl. 14.00.
Ragnar Benediktsson
Karl Georg Ragnarsson María Rós Jónsdóttir
Ásta Pálína Ragnarsdóttir Magnús Sverrisson
Jenný Karólína Ragnarsdóttir Hilmar Sverrisson
Margrét Halla Ragnarsdóttir Jón Gunnarsson
Benedikt Ragnarsson Jóhanna Helga Þorsteinsdóttir
Álfheiður H. Árdal
Helga Berglind Ragnarsdóttir Sigmar Benediktsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Jóhanna Ólafsdóttir
Kaplaskjólsvegi 35, Reykjavík,
lést að kvöldi mánudags 14. maí.
Sigríður Hjördís Indriðadóttir
Bogi Indriðason
Ólafur Indriðason
Magnús Indriðason.