Fréttablaðið - 16.05.2007, Side 39

Fréttablaðið - 16.05.2007, Side 39
„Það hvílir mikil leynd yfir þessu öllu saman. Við tökum Kate Moss- línuna upp úr kössunum í öðru herbergi en allar hinar vörurn- ar. Það má enginn sjá þetta fyrr en á föstudaginn.“ segir Eyrún Eggertsdóttir, markaðsstjóri Top Shop á Íslandi. „Við opnum klukk- an átta á föstudagsmorgun í búð- inni okkar í Smáralind. Það fær enginn að kaupa neitt fyrr en þá, ekki starfsfólkið okkar eða neinn annar.“ Eyrún segir að það verði mikið tilstand í kringum þetta. Í búð- ina eru komnir sérstakir standar, höfuðlausar gínur, sem hafa sama vaxtarlag og Kate og merktar vatnsflöskur verða gefnar í búð- inni á föstudag. „Við erum að opna fyrir söl- una á sama tíma og verður gert í Skandinavíu. Það er byrj- að að selja fötin í London og það mynduðust því- líkar biðraðir og allt tæmdist á örskotsstundu. Við höfum bara takmarkað magn.“ Kate Moss hefur samið við Top Shop um að gera fjórar fatalín- ur á tveimur árum. Þessi fyrsta framleiðsla endurspeglar hvað er í hennar eigin fataskáp í dag. Kate hefur verið efst á listum síð- ustu árin þegar valdar hafa verið best klæddu konur heims og því ekki slæmt að fá að skyggnast inn í fataskáp hennar. „Það verður svo hægt að semja um að Pete Doherty fylgi með í kaupunum ef keypt er mikið magn af fötum úr nýju línunni,“ segir Eyrún og hlær. Jafnframt lofar hún því í gríni að allir eigi eftir að líta alveg eins út og Kate Moss í fötunum. Fólk eigi eftir að minnka um margar stærðir og verða bara alveg eins og hún. Föt Kate Moss á leið til Íslands

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.