Tíminn - 14.06.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 14.06.1980, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 14. jiinl 1980 Ctgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvœmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eiriksson. Aug- lýsingastjóri: Stelngrfmur Gfslason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvemdastjórn og auglýsingar Sfðumúia 15. Sfml 86300. — Kvöldslmar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir ki. 20.00 : 86387. Verð f lausasttlu kr. 240. V-Askriftargjald kr. 4.800 á mánuðl. Blaðaprent. Þórarínn Þórarínsson Erlent yfirlit Algert ófriðarástand ríkir í Suður-Afríku Gengissig leysir ekki vandann Undir venjulegum kringumstæðum vekur það ekki athygli, þótt bankastjórar Seðlabankans bregði sér til útlanda, þar sem bankinn hefur marg- visleg viðskipti við fjármálastofnanir þar. Nú bregður hins vegar svo við, að fjölmiðlar hafa látið sér tiðrætt um, að tveir af bankastjórunum hafa dvalizt erlendis að undanförnu og það verið rækilega auglýst hvenær þeirra sé heimvon. Ástæðan til þess, að þannig hefur verið fylgzt með ferðum bankastjóranna er sú, að frystihúsin virðast enn einu sinni vera að reka upp á sker og rekstur þeirra að stöðvast, nema til komi verulegar aðgerð- ir til að bæta hag þeirra. Eins og svo oft áður, virðist ýmsum koma fyrst i hug að leiðin til að bjarga frystihúsunum frá stöðv- un sé myndarlegt gengisfall eða gengissig, eins og farið er að kalla gengisfellingar nú til dags. Það eru bankastjórar Seðlabankans, sem fara með gengisskráningarvaldið i samráði við rikis- stjórnina. Engin ákvörðun verður þvi tekin um þetta efni meðan meirihluti bankastjórnarinnar er erlendis. Þeir, sem láta sig dreyma um gengissig til að rétta afkomu frystihúsanna, virðast litið hafa lært af reynslunni eða látast ekki sjá hana. Frystihúsin hafa hvað eftir annað verið að stöðvast á undan- förnum árum og jafnan gripið til gengisfellingar eða gengissigs til að bjarga þeim i bili. Eftir stutta stund hafa þau verið komin i strand aftur og það öllu meira en áður. Astæðan er sú, að gengissig leysir ekki vandann. Það aðeins frestar honum um stutta stund, jafn- framt þvi, sem það eykur hann. Fjármálakerfi okk- ar er þannig, að gengissig hefur óðara áhrif á kaup- gjaldið og það siðan á atvinnureksturinn. Þannig hefur þetta gengið koll af kolli. Og alltaf hefur vandinn magnazt við hvert gengis- sig. Vandi frystihúsanna er nú sprottinn af þvi, að kaupgjald og fiskverð hækkaði um 12-13% um siðastl. mánaðamót samkvæmt visitölukerfinu. Þetta var stærra stökk en oft áður. Framsóknar- menn bentu á þá hættu, sem myndi hljótast af þessu, en þvi var ekki sinnt. Alþýðuflokkurinn hrópaði m.a. svo hátt, að nú ætti að skerða visitölubætumar, að stéttasamtökin hrukku við. Nú leggur Alþýðublaðið hins vegar til, að visitölukerfið sé afnumið! Það er alltaf sama samræmið á þeim bæ. Vegna þess, að ábendingu Framsóknarflokksins var ekkert sinnt, er vandinn nú meiri en ella. Við það bætist svo verðfall erlendis og meiri háttar sölu- tregða. Það hefur hins vegar hjálpað okkur siðustu misserin, að verðlag hefur farið hækkandi og sala gengið vel. Þess vegna er aukin ástæða til að staldra nú við og gera sér þess fulla grein, að gengissig eitt leysir ekki vandann, heldur eykur hann, þótt það geti hindrað stöðvun um stundarsakir. Bankastjórar Seðlabankans þurfa að hugsa sig vel um áður en þeir halda lengra á umræddri braut. Rikisstjórnin þarf lika að hugsa sig vel um. Hún hefur heitið þvi að hafa samráð við stéttasamtökin og stjórnmálaflokkana áður en teknar eru ákvarð- anir um meiri háttar efnahagslegar aðgerðir. Nú er vissulega ástæða til sliks samráðs. Þ .Þ. Börn og unglingar skipa sér i fylkingarbrjóst Eldarnir eftir sprengingarnar i Sasolburg. SKÆRULIÐAR I Suöur-Afrlku sýndu greinilega I verki 1. þ.m., aö þeir eru orðnir færir um aB vinna skemmdarverk, sem geta meö tlö og tlma oröiö stjórn hvltra manna þar aö falli. Þeir geröu þá aö næturlagi árásir á þrjár stórar olíu- geymslu- og olíuvinnslustöövar, sem vinna ollu úr kolum. Tvær af þessum stöövum eru I Sasol- burg, sem er 35 mllur frá Jó- hannesarborg, og uröu á þeim skemmdir, sem valda margra milljóna sterlingspunda tjóni. Auk þess rann niöur mikiö af ollu. Þriöja árásin var gerö á olíu- vinnslustöö I Secunda, 150 mflur frá Jóhannesarborg. Þar uröu skemmdir litlar, þvl aö sprengj- an, sem var notuö, misheppnaö- ist. Einn varöanna var skotinn til bana, en árásarmennimir komust undan, bæöi þar og I Sa- solburg. 1 Sasolburg loguöu eldar I marga daga, en þar kviknaöi I mörgum olíugeymum. Suöur-Afrlka hefur takmark- aöa orkugjafa, aöra en kolin. Þess vegna hafa stjórnarvöldin hafizt handa um aö framleiöa ollu Ur kolum I stórum stll. Taliö er, aö skemmdarverkin I Sasol- burg muni tefja mjög fyrirætl- anir um þessa framleiöslu. Tveimur mánuöum áöur höföu skæruliöar hertekiö lög- reglustöö I úthverfi Jóhannesar- borgar og haldiö lögregluþjón- um sem glslum um drykklanga stund. Þeir geröu þetta fyrst og fremst til aö sýna getu slna. Hvltir menn I Suöur-Afrlku gera sér ljóst, aö framangreind- ir atburöir eru merki um aö samtökum skæruliöa er aö vaxa fiskur um hrygg og aö þau muni veröa þeim vaxandi ógnvaldur I náinni framtlö. ÞAÐ ER taliö, aö framangreind skemmdarverk hafi veriö fram- in af samtökum, sem nefna sig African National Congress, (ANC). Þessi samtök voru upphaflega stofnuö 1912 og var þá ætlaö aö vinna aö réttindamálum blökkumanna meö friösamleg- um hætti. Áriö 1960 voru þau samt bönnuö aö afloknum hin- um svonefndu Sharpeville- moröum. Samtökin höföu þá undirbúiö mótmælagöngu I tilefni af þvi, aö blökkumönnum haföi veriö gert skylt aö bera sérstök vega- bréf. Lögreglan skaut á göng- una og drap um 70 manns. Þetta mæltist eölilega illa fyrir. Rlkisstjórnin reyndi aö kenna ANC um og bannaöi því samtökin. Fyrst á eftir bar lltiö á þeim, þótt reynt væri aö halda þeim lifandi neöanjaröar, eins og þaö er orðaö I þessu sambandi. Ariö 1976 uröu mikil þátta- skipti I sögu þeirra. Taliö er, aö átökin miklu, sem þá uröu I Soweto, blökkumannahverfi hjá Jóhannesarborg, hafi oröiö til þess, aö fjögur þúsund ungir blökkumenn hafi fariö úr landi til þess aö fá þjálfun sem skæru- liðar. Slöan hafa þeir stundað æfingar I Mósamblk, Angóla og Zambiu. Þaö þykir llklegt, aö þessir menn séu nú aö koma heim aft- ur og einhverjir þeirra hafi unn- iö áöurnefnd skemmdarverk. Vafalltiö eiga þeir eftir aö koma meira viö sögu og þó ekki slöur þeir, sem eiga eftir aö fara I fót- spor þeirra. EN STJÓRN Suöur-Afrlku hefur fleira aö óttast en skæruliöana. Um miöjan apríl slöastl. hófu nemendur I barna- og ung- lingaskólum, sem eru ætlaöir kynblendingum, mótmælabar- áttu, sem var fólgin I þvi aö sækja ekki skólana. Um skeiö voru um 100 þúsund nemendur I sllku verkfalli. Þessi verkföll hafa haldizt á- fram meira og minna. VIBa hefur komiö til átaka I sam- bandi viö þau. Fjórir náms- menn hafa þegar veriö felldir af lögreglunni I þessum átökum, en fjölmargir særöir. Þeir skipta sennilega fremur þúsundum en hundruöum, sem lögreglan hefur hneppt I fang- elsi I sambandi viö þessi átök. Margir þeirra hafa enn ekki ' veriö látnir lausir aftur. Ýmsir leiötogar kirkjunnar hafa blandaö sér I þessa deilu. 1 eitt skipti handtók lögreglan um 60 presta og biskupa, sem höföu fariö I mótmælagöngu. Botha forsætisráöherra hefur harö- lega átaliö presta og blaöamenn fyrir aö tala máli námsmann- anna. 1 Suöur-Afrlku skiptast menn I fjóra þjóöflokka. Fjölmennastir eru blökkumenn, sem telja um 70% ibúanna. Hvltir menn eru um 17%. Kynblendingar eru um 10% og Indverjar um 3%. Börnum af þessum þjóöflokk- um er mjög mismunaö I kennslu. Sem dæmi um þaö má nefna, aö áriö 1978 var áætlaö aö kennsla I skólum hvitra manna kostaði ríkiö um 353 sterlings- pund á barn. 1 skólum, sem eru ætlaðir indverskum börnum, nam kostnaðurinn um 197 sterlingspundum á barn. í skól- um, sem eru ætlaöir kynblend- ingum, nam kostnaöurinn 124 sterlingspundum á barn. 1 skól- um fyrir blökkumenn nam kostnaöurinn 39 sterlingspund- um á barn. Þótt börn kynblendinga fengju þannig þrefalt betri kennslu en blökkubörn, undu þau þessum hlut ekki, og hófu verkföll til aö bera fram kröfu um sömu menntun og hvltu börnin. Þaö getur veriö tlmanna tákn, aö þaö eru börn og unglingar kynblendinga og blökkumanna, sem nú ganga á undan I kyn- þáttabaráttunni I Suöur-Afriku. Vissulega ættu hvltir menn að telja þaö vlsbendingu um hvaö 1 vændum er. Botha forsætisráðherra virö- ist gera sér ljóst, aö einhverjar umbætur þurfi til aö jafna kyn- þáttamuninn. Aörir foringjar stjórnarflokksins vilja hins veg- ar láta hart mæta höröu. Hættan er þvl, aö þær umbætur, sem veröa geröar, komi of seint og veröi of litlar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.