Tíminn - 19.06.1980, Side 1
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavík Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392#
1
Magalending í Keflavík
— þegar hjólabúnaöur bilaði i einni Fokker Friendship flugvél Flugleiöa
Kás — Betur fór en á horföist
þegar Fokker Friendship F-27
vél frá Flugleiöum neyddist til
aö nauölenda á Keflavikurflug-
velii kiukkan rúmiega átta i
gærkveldi vegna bilunar sem
upp kom i hjólabúnaöi hennar.
Vinstra aöalhjól vélarinnar
virkaöi ekki, og þvi átti Guöjón
ólafsson, flugstjóri, ekki ann-
arra kosta völ en aö lenda á
hægra afturhjóli og nefhjóli, en
honum til hjálpar höföu slökkvi-
liösmenn á Keflavikurflugvelli
undir stjórn Steins Eirikssonar
slökkviliösstjóra „Pattons” lagt
kvoöu á flugbrautina, til aö
draga úr eldhættu.
Lendingin tókst i alla staöi
vel, ef litiö er til aöstæöna, og
sluppu farþegar og áhöfn viö öll
meiösli, en vélin er litillega
löskuö.
Þaö var kl. 17.58 I gærdag, aö
Guöjón Ólafsson, flugstjóri,
lagöi af staö til Vestmannaeyja,
ásamt Baldri Ingólfssyni, flug-
manni, og Elisabetu Hákonar-
dóttur, flugfreyju, ásamt sextán
farþegum. Þegar fariö var aö
undirbúa lendingu i Eyjum kom
I ljós, aö hjólabúnaöurinn virk-
aöi ekki sem skyldi. Virtist svo
sem hjólin stcðu á sér, þ.e. ekki
var hægt aö ná þeim niöur,
þannig aö ákveöiö var aö snúa
aftur til Reykjavikur.
Eftir nokkrar árangurslausar
tilraunir, tókst þó loks aö ná
hægra aöalhjóli og nefhjóli
niöur, en vinstra aöalhjól stóö
eftir sem áöur á sér. Þrátt fyrir
tilheyrandi dýfingar I nágrenni
Reykjavikur tókst Guöjóni ekki
aö nota náttúrulögmálin til aö
losa um hjóliö.
Kl. 19.40 var ljóst, að ekkert
yröi viö þessu gert, og var þá ein
flugbrautin i Keflavik undirbúin
undir nauölendingu meö þvl aö
dæla kvoöu á hana um 5-600
metra hennar. A meðan hring-
sólaði vélin-yfir til aö eyöa sem
mestu eldsneyti, áöur en nauö-
lendingin yröi reynd.
Stóö þaö heima, aö þegar
eldsneytiö var oröið á þrotum,
þá voru Patton og menn hans I
slökkviliöinu á Keflavikurflug-
velli búnir aö gera brautina
„klára”, þ.e. kl. 20.04.
Nauölendingin eöa magalend-
ingin tókst eins og best var á
kosið miöaö viö aöstæöur. Auö-
vitaö leitaöi vélin til hægri, þar
sem hjóliö vantaöi vinstra
megin, þannig aö á endanum
lenti vélin utan brautar, eftir aö
Hér má sjá hluta þeirra farþega, sem sluppu svo giftusamlega út úr flugferþinni til Eyja, þegar þeir lögöu af staö i langferöabii til
Reykjavikur. Tfmamyndir: Róbert. '
Fljótlega eftir lendinguna hófu starfsmenn Flugleiöa undlrbúning aö þvi aö flytja vélina inn i skýll.
Byrjuöu þeir á þvi aö „tékka” véiina upp meö púöum. t innfelldu myndinni má sjá Guöjón ólafsson,
flugstjóra, sem framkvæmdi magalendinguna I gærkveldi.
hafa siglt áfram i froöunni um
400 metra.
Strax og vélin haföi stöövast,
dreif aö slökkviliösmenn, sem
hjálpuöu til viö aö opna vélina
og hleypa farþegunum út, sem
búiö var aö undirbúa rækilega
fyrir lendinguna, enda nægur
timi til þess meöan beöiö var
þess aö eldsneytisbirgöir þryti.
Farþegar voru drifnir inn I
mötuneyti, þar sem þeim var
gefiö smurt brauö og heitt kaffi,
en siöan var þeim safnaö saman
I iangferöabil sem flutti þá til
Reykjavlkur.
Strax eftir lendinguna hófu
starfsmenn Flugleiöa aögeröir
til aö koma vélinni I skýli,
„tékkuöu” hana upp, og stuttu
eftir miönætti átti hún aö vera
komin I hús. Ekki haföi náöst aö
kanna skemmdir vélarinnar
áöur en blaöiö fór i prentun.
Fyrrnefnd Fokker Friendship
vél Flugleiöa, er ein af þeim
vélum sem félagiö festi kaup á
frá Kóreu fyrir stuttu.
Sjálfsagt heföi getaö fariö
verr en raun varö á ef ekki heföi
átt i hlut Fokker-vél, en þær
þykja mjög sterkbyggöar. Bilun
sú sem varö I vélinni I gær hefur
aldrei komiö upp hér á landi
áöur, en kunnugt er um slikar
bilanir hjá erlendum flugfélög-
um sem nota vélar af sömu
gerö.