Tíminn - 19.06.1980, Side 6

Tíminn - 19.06.1980, Side 6
6 Fimmtudagur 19. júni 1980 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvemdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarlnn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Slgurósson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjórl: Eirfkur S. Eirfksson. Aug- lýsingastjóri: Stelngrimur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvemdastjórn og auglýsingar Sfðumúia 15. Siml 86300. — Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verb í lausasölu kr. 240. v. -Áskriftargjald kr. 4.800 á mánuöi. Blaöaprent. Þórarínn Þórarínsson Erlent yfirlit Vestrænir leiðtogar bittast í Feneyjum Þríþættur vandi frystihúsanna Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráðherra er nýkominn heim úr ferðalagi til Bandarikjanna. M.a. kynnti hann sér fisksölu Isiendinga þar vestra. Eftir heimkomuna hefur hann skýrt fjölmiðlum frá þvi, sem hann kynntist i þessum málum vestan hafs. Það má segja, að vandi frystihúsanna sé þriþætt- ur. í fyrsta lagi stafar hann af þvi, að kaupgjald og fiskverð hækkaði innanlands mjög verulega um sið- ustu mánaðamót. í öðru lagi stafar vandi frystihúsanna af þvi, að sölutregða hefur myndazt i Bandarikjunum siðustu mánuði, sökum ástands efnahagsmála þar. Reikna má með þvi, að hún geti haldizt fram á næsta ár. í þriðja lagi hefur það bætzt við, að Kanadamenn hafa aukið útflutning sinn á frystum fiski til Banda- rikjanna og jafnhliða bætt vöruvöndun sina. Hins vegar hefur vöruvöndun orðið lakari hjá ýmsum frystihúsum hér. Allt eru þetta alvarleg tiðindi, en þau þó mest, að vöruvöndun skuli fara hrakandi. Þetta styrkir það, sem nýlega var fullyrt hér i blaðinu, að gengisfall eða gengissig getur ekki leyst vanda hraðfrystihúsanna, nema til bráðabirgða, og jafnframt með þeim afleiðingum að vandinn verður meiri eftir en áður, ef ekkert annað er gert jafn- hliða. Vandamál frystihúsanna verður að taka i heild til gaumgæfilegrar athugunar og þá ekki sizt vöru- vöndunina. Hún kallar m.a. á breytta stefnu i fisk- veiðimálum, þvi að verulegu leyti rekur minnkandi vöruvöndun rætur til þess, að meira fiskmagn berst á land vissa mánuði ársins en frystihúsin geta ann- að með sæmilegu móti. Raunir Benedikts og Callaghans James Callaghan, formaður Verkamannaflokks- ins brezka, berst við vaxandi erfiðleika i flokki sin- um. Ástæðan er ekki sizt sú, að Trotskyistar og Maóistar vaða uppi i flokknum og hafa komið ár sinni vel fyrir borð i mörgum flokksfélögum og verkalýðssamtökum, sem eru tengd flokknum. Þvi er jafnvel spáð, að Callaghan verði vegna þessa ástands að láta af flokksforustunni fyrr en ella. Þetta ástand i brezka Verkamannaflokknum vek- ur aukna athygli hér, sökum þess að Benedikt ‘ Gröndal virðist eiga við svipaða erfiðleika að glima i flokki sinum. Sá er þó munurinn, að Benedikt Gröndal þarf ekki að glima við Trotskyista og Maóista. 1 Alþýðu- flokknum eru það Friedmanistar, sem halda uppi ó- eirðunum. Menn eins og Vilmundur Gylfason og Jón Hannibalsson virðast hafa gert Milton Friedman að átrúnaðargoði sinu og vilja hefja kenningar hans til vegs i flokknum. Það auðveldi lika samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn. Benedikt Gröndal vill hins vegar halda uppi nor- rænni sósialdemókratiskri stefnu. Sennilega verður skorið úr þvi á þingi Alþýðuflokksins næsta haust hvor stefnan verður ofan á. Þ.Þ. Vaxandi ósamkomulag Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu Carter og Schmidt ELIZABETH POND, sem er meöal þekktari fréttaskýrenda Bandarikjanna og ritar að staö- aldri I The Christian Science Monitor, komst nýlega svo aö oröi, aö aldrei heföu verið uppi fleiri ágreiningsefni milli Bandarikjanna og Vestur- Evrtípu en nú slðan siöari heimsstyrjöldinni lauk. Hins vegar kunni deiluefnin ekki aö vera eins alvarlegs eölis og margir ætli. Annar fréttaskýrandi The Christian Science Monitor, Daniel Southerland, kemst aö svipaðri niöurstööu. Hann segir hins vegar, aö of snemmt sé aö dæma um, hvort þetta leiði til verri eöa betri sambúðar I framtiöinni. Oft veröi deilur til þess aö andrúmsloftiö hreinsist, og samkomulagið veröi skárra á eftir. Hiö gagnstæöa geti einnig gerzt. Elizabeth Pond segir, aö Evrópumenn muni telja vonlitiö aö koma nokkru tauti viö Bandarikjamenn fyrr en eftir forsetakosningarnar I haust. Haldist þetta tísamkomulag eftir þær, geti spár hinna svart- sýnu rætzt, en þeir reikna meö aö sambúöin haldi frekar áfram aö versna en batna. Hjá Evrópumönnum eykur þaö efasemdir, aö þeim geöjast ekki aö þeim mönnum, sem munu keppa I forsetakosningun- um I haust. Carter hefur mjög falliö I áliti þeirra síöustu mán- uöi. Reagan þekkja þeir ekki, en óttast afturhaldssemi hans. Af framangreindum ástæö- um, mun fundur sjö þjóöarleiö- toga, sem haldinn veröur I Fen- eyjum um helgina, vekja meiri athygli en ella. Þar mæta for- setar Bandarlkjanna og Frakk- lands og forsætisráöherrar Bretlands, Vestur-Þýzkalands, Italíu, Kanada og Japans. Þótt þaö eigi aö vera aöalmál fundarins aö ræöa um efnahags- ástandiö I heiminum og úrræöi á þvi sviöi, munu viöræöur Cart- ers og ráöamanna Evrópurlkj- anna vafalaust beinast meira og minna aö þeim pólitísku ágrein- ingsefnum, sem valda erfiöleik- um í sambúö Bandarikjanna og Vestur-Evrópu. ÞESSI ágreiningsefni hafa aöallega komiö til sögunnar siö- an kosningabaráttan hófst I Bandarikjunum og augsýnilegt hefur oröiö, aö Carter hefur haft heimavlgstöövarnar mest I huga og hvernig viöbrögð hans mæltust bezt fyrir hjá banda- riskum kjósendum. Aöur haföi UndaniátssemiCarters viö sambúöin milli Bandarikjanna og Vestur-Evrópu heldur fariö batnandi í stjórnartíð Carters, t.d. innan Nato, og mátti þakka þaö Vance utanrikisráöherra öörumfremur. Hann haföi tiltrú Evrópumanna, öfugt viö Brezinski, helzta ráögjafa Cart- ers I utanrlkismálum. Glslatakan I Teheran og inn- rás Rússa I Afganistan breyttu þessu. Astæöan var ekki sú, aö Bandarikjamenn og Vestur- Evrópumenn væru ekki sam- mála um aö fordæma þessa at- buröi. Vestur-Evrópumenn hafa hins vegar talið, aö mörg viö- brögö Carters hafi verið óraun- hæf og óhyggileg, enda fyrst og fremst miðuð viö almennings- álitið I Bandarikjunum. Aö nokkru leyti stafar þetta af þvl, aö hagsmunir og viðhorf Bandarlkjanna og Vestur- Evrópu fara ekki saman. Vest- ur-Evrópumenn hafa meiri hagsmuna aö gæta en Banda- rlkjamenn I skiptum við Austur- Evrópurlkin og Arabaríkin. Sföan viöræöur Israels og Egyptalands rak upp á sker, hefur Palestinumáliö oröiö nýtt ágreiningsefni milli Vestur- Evrópu og Bandarlkjanna. Vestur-Evrópumenn telja, aö Bandarlkin gefi Begin og félög- um hans alltof lausan tauminn. Þess vegna lét Feneyjafundur æöstu manna Efnahagsbanda- lagsins þetta mál til sln taka. Þetta mál getur átt eftir aö valda vaxandi ósamkomulagi i sambúö Bandarikjanna og Vestur:Evrópu. Þaö ér hins vegar ekki aö öllu leyti Carter aö kenna, að ágreiningur hefur aukizt milli Bandarikjanna og Vestur- Evrópu I seinni tiö. Bandarlkja- þing á einnig sinn þátt I þvl. Vestur-Evrópumönnum þykir yfirleitt mjög miöur, að þingiö skuli hafa stöövaö framgang Salt-2-sa mningsins. Þá bendir Daniel Southerland á það I grein, sem hann hefur nýlega ritað um þessi mál, aö Víetnamstyrjöldin og Water- gatemáliö hafi valdið Banda- rlkjunum álitshnekki I Vestur- Evrópu og gæti þess enn. EN ÞRATT fyrir þessi og önn- ur ágreiningsefni, sem hafa tor- veldað samskipti Bandaríkj- anna og Vestur-Evrópu aö und- anförnu, er þaö enn meira, sem sameinar þessa aöila, og þó framar ööru vigbúnaöur Sovét- rikjanna. Bandarikjamenn og Vestur-Evrópumenn sjá þar sameiginlega hættu og þó er hættan nálægari frá sjónarmiöi þeirra siöarnefndu. Innrás Rússa I Afganistan hefur gefiö óttanum viö þessa hættu byr undir báða vængi. Mestum ugg veldur þó I Vest- ur-Evrópu, aö Rússar eru aö endurnýja og fullkomna meöal- drægar kjarnorkueldflaugar, sem aöeins eru miðaöar viö skotmörk I Vestur-Evrópu, þ.e. þær ná ekki til Bandaríkjanna. Þegar Nato svo samþykkir aö endurnýja og fullkomna kjarn- orkueldflaugar I Vestur- Evrópu, bregöast ráöamenn Sovétrlkjanna illa viö. Þeir krefjast þess, aö hætt veröi viö þessar áætlanir, en á sama tlma geti Rússar haldiö áfram aö endurnýja umræddar kjarn- orkueldflaugar sinar. Schmidt kanslari mun hafa lagt til, aö báöir aöilar „frysti” áætlanir slnar I þrjú ár, en ekki fengiö undirtektir hjá Rússum. Þetta skýrist ef til vill betur eftir heimsókn hans til Moskvu siðar I þessum mánuöi. Það var sagt á sínum tíma, aö Stalfn heföi veriö hinn raun- verulegi stofnandi Atlantshafs- bandalagsins. Nú mætti ef til vill segja, aö Brésnjef væri helzti viöhaldsmaöur þess. En samstarf Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu þarf varan- legri grundvöll en óttánn viö Rússa. Vonandi færist þaö aftur I betra horf eftir forsetakosn- ingarnar I Bandarlkjunum. Begin fellur Evrópumönnum ekkl I geö.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.