Tíminn - 19.06.1980, Qupperneq 11
Fimmtudagur 19. júni 1980
IÞROlTfR
IÞR07TIR
O
Eyjamenn fengu
bikarínn stóra
Eyjamenn sigruöu Fram i
keppninni um titilinn meistari
meistaranna er liðin léku á Laug-
ardalsvellinum i gærkvöldi.
Framlengja þurfti leikinn og eftir
framlenginguna var enn jafnt 0:0
og þurfti þvi vitaspyrnukeppni til
aö knýja fram úrslit. Eyjamenn
voru sterkari i vitaspyrnunum og
sigruöu 4:3.
Leikurinn sjálfur var slakur af
beggja hálfu en þó heföu Framar-
ar átt ab geta gert út um leikinn
áöur en til framlengingarinnar
kom en sakir mikils klaufaskapar
tókst þaö ekki.
Eyjamenn tefldu fram sinu
sterkasta liöi en I liö Fram vant-
aöi nokkra af fastamönnum, t.d.
þá Guömund Baldurssonn, Guö-
mund Torfason, Gunnar Guö-
mundsson, Trausta Haraldsson,
Kristinn Atlason og Pétur Orm-
slev.
Leikur liðanna var ekki beisinn
til aö byrja meö en þó skánaöi
hann er llða tók á leikinn.
A 27. minútu komst Gunnar
Orrason einn inn fyrir vörn ÍBV
en Snorra Rútssyni tókst aö
bjarga i horn á siöustu stundu.
Aöeins þremur mínútum seinna
komst Kristinn Jörundsson inn
fyrir en á klaufalegan hátt lét
hann Pál i markinu verja frá sér.
Stuttu seinna komst Gunnar enn
einn inn fyrir en Páll varöi enn.
Eina tækifæri IBV i fyrri hálfleik
var þegar Ómar Jóhannesson
komst i gott færi I vitateig Fram
en skot hans fór yfir.
Framarar sluppu svo sannar-
lega vel fyrir horn á 3. mlnútu slð-
ari hálfleiks er Samúel lék á Jón
Pétursson á miöjum vallarhelm-
ingi Fram, gaf slðan vel fyrir
markiö. Þar mistókst einum
varnarmanna Fram aö hreinsa
frá marki og knötturinn barst til
Jóhanns Georgssonar sem skaut
góöu skoti en Július Marteinsson
markvöröur Fram varöi snilldar-
lega. Þaö er ekki allt búiö enn.
Knötturinn hrökk til hliöar þar
sem Óskar Friöþjófsson kom á
fullri ferö og skaut máttlausu
skoti aö marki en Framleikmanni
tókst aö bjarga á linu. Sannarlega
mikiö marktækifæri. A 33. minútu
spyrnti Július Marteinsson vel frá
marki Fram. Knötturinn þaut
yfir allan völlinn og til Guðmund-
ar Steinssonar sem var allt I einu
Fyrirliöi IBV, Þóröur Hallgrimsson tekur viö bikarnum úr hendi Ein-
ars Sæmundssonar fyrrverandi formanns KR eftir ieikinn I gærkvöldi.
Spánverjar
misnotuðu viti.
gegn Englandi
þegar þeir töpuðu gegn Englandi 1:2
í Evrópukeppninni í knattspymu
|
I
I
I
I
I
I
I
staddur I dauöafæri á markteig
en hann hitti ekki boltann. Fleiri
uröu marktækifærin ekki i leikn-
um sjálfum og varö þvi aö fram-
lengia.
1 fyrri hluta framlengingarinn-
ar áttu Framarar eíttgott tækif æri
er Guömundur Steinsson komst i
góöa stööu I vitateig ÍBV en skot
hans hafnaöi i stöng. Fleira átti
sér ekki staö i fyrri biutanum en
i þeim siöari fengu Framarar eitt
færi er Kristinn Jörundsson gaf
vel fyrir mark IBV á Jón Péturs-
son en skalli hans fór rétt fram-
hjá.
Vítaspyrnukeppnin fór þannig,
aö fyrir IBV skóruöu þeir óskar
Friöþjófsson, Jóhann Georgsson,
Ómar Jóhannesson og Samúel en
fyrir Fram skoruöu þeir Mar-
teinn Geirsson, Kiddi Jör. og
Baldvin Elfasson en þeir sem ekki
skoruöu voru Guömundur Steins-
son og Gunnar Bjarnason[ Viöar
Eliasson misnotabi spyrnu Eyja-
manna.
Eyjamenn eru þvi meistarar
meistaranna og er meiningin aö
þessi leikur á milli Islandsmeist-
ara og Bikarmeistara veröi ár-
legur i framtiöinni.
—SK.
Tony Woodcock sem hér sést viö
stýriö ásamt David Johnson frá
Liverpool skoraöi sigurmark
Englendinga gegn Spánverjum í
gærkvöldi.
Öfyrir-
gefanleg
mistök
Þeir voru undrandi sigl-
ingamennirnir sem mættu til
þátttöku i siglingakeppni
sem átti að halda 17. júni, en
keppni þcnnan dag hefur
verið árlegur viðburöur hjá
siglingafólki á Reykjavíkur-
svæðinu.
Þegar keppendur voru
mættir á staðinn kom i ljós
að stjórn siglingakldbbsins
Ymis i Kópavogi sem átti að
sjá um þessa keppni
haföi ekki útvegaö menn I
keppnisstjórn né haft
samband við aðra klúbba til
aö ákveða hvenær keppnin
skyldihefjast svo sem Áestir
gætu mætt. Sfðan fréttist þaö
af afspurn aö félagar úr Vogi
I Garðabæ hefðu haldiö keppni
fyrir sina félaga og tóku 13
bátar þátt 1 þeirri keppni.
Þessi mistök eru ófyrirgef-
anleg og þarsem þetta hefur
komið fyrir áöur sýnir þetta
aö sambandið milli klúbba
um keppnishald er i algjöru
la'gmarki. Mjög árlðandi er
aö þessu verð kippt i liðinn
strax.
— SK.
Englendinar sigruðu
Spánverja i Evrópu-
keppninni i knatt-
spyrnu i gærkveldi 2:1
eftir að staðan i leikhléi
hafði verið 1:1. Það
voru þeir Trevor
Brooking og Tony
Woodcock sem skoruðu
mörk Englendinga.
Spánverjar fóru illa aö ráöi
sinu er þeir misnotuöu vita-
spyrnu, Ray Clemence varöi
glæsilega frá Dani. Englend-
ingarnáöu forustunni á 18. min-
útu leiksins. Boltinn var þá gef-
inn vel fyrir spænska markið,
Ray Wilkins náöi að skalla
knöttinn inn I markteig þar sem
West Ham leikmaðurinn Trevor
Brooking var fyrir og náöi aö
stýra boltanum siðasta spölinn i
markiö.
Spánverjar náöu siöan aö
jafna metin fyrir leikhlé og var
það Dani sem skoraöi úr vita-
spyrnu. Staöan var siöan 1:1 þar
til á 60. minútu er Tony Wood-
cock náði aö tryggja Englend-
ingum sigur með góöu marki.
Spánverjar reyndu allt hvað
þeir gátu aö jafna metin en þeir
voru ekki beint á skotskónum.
Þeir misnotuöu meira að segja
vitaspymu eins og áöur sagði.
Lokatölur urðu þvi 2:1 Englend-
ingum i vil og mega þeir svo
sannarlega þakka fyrir þau úr-
slit. — SK.
jJafnt bjá Belg-
jum og ítölum
■ Belgia og ttalia geröu I gær-
Ikvöldi jafntefli i Evrópukeppn-
inni 0:0. Leikið var i Róm.
Ekkí mark í 15 leikjum
Þaö hefur ekki fariö fram hjá
neinum, aö Guömundur Steinsson
sóknarleikmaður hefur ekki veriö
á skotskónum aö undanförnu.
I gærkvöldi iék hann sinn 15.
leik meö Fram án þess aö skora
mark. Hann tók meira aö segja
vítaspyrnu I leiknum en misnot-
aöi hana.
—SK.
Bæöi liöin áttu sin tækifæri I
leiknum en tókst ekki aö skora.
Þaö eru þvi Belgar sem mæta
Vestur-Þjóöverjum i úrslitaleik
keppninnar en Italir og Tékkar
leika um þriöja og fjóröa sætiö.
Flestir höföu reiknaö meö sigri
ttala en Belgar hafa komiö mjög
á óvart I keppninni og eiga nú
möguleika á Evrópumeistaratitl-
inum I fyrsta skipti.
—SK.
„Slæmt að hafa
enga keppni”
•sagði Oddur Sigurðsson spretthlaupari eftár 17. júni
mótið þar sem hann vann besta afrek mótsins i 200 m hlaupi
Oddur Sigurösson
„Það var slæmt að hafa enga
keppni i þessu hlaupi. Ég verö
samtað játa aö ég átti von á betri
tima,” sagði Oddur Sigurðsson
spretthlaupari úr KA, en hann
vann besta afrekið á 17. júni
mótinu i frjálsum iþróttum á
Laugardalsvelli , er hann hljóp
220 m á 21,5 sek.
,,Ég er nú á förum til Norö-
urlandanna og er frekar bjart-
sýnn á framtiðina. Alla vega mun
ég reyna að hlaupa eins hratt og
ég get. Næst eru það Reykjavik-
urleikarnir ( i kvöld) og maður
verbur bara að vona þaö besta,”
sagði Oddur.
17. júnimótið einkenndist aö
þessu sinni af mikilli framför hjá
frjálsiþróttafólki okkar og er
greinilegt að keppni er aö veröa
jafnari og um leið meira spenn-
andi en verið hefur. Enginn virö-
ist geta bókað sigur fyrirfram.
Tvo' Islandsmet voru sett á
mótinu. Guðrún Ingólfsdóttir ’
bætti fyrra Islandsmet sitt i kúlu-
varpi, varpaöi 13,27 m. Þá setti
hin bráðefnilega hlaupakona úr
KR, Helga Halldórsdóttir nýtt
tslandsmet i 100 metra grindar-
hlaupi, hljóp á 13,8 sek. Hún sigr-
aöi einnig i 100 metra hlaupi á 12,0
sek sem er undir tslandsmeti en
fékkst ekki staöfest þar sem meö-
vindur var yfir lágmarki. t lang-
stökki sigraöi Bryndis Hólm tR
og stökk hún 5,48 m en i ööru sæti
varö Maria Guöjohnsen A sem
stökk 5,37 m. t spjótkasti kvenna
sigraði Dýrfinna Torfadóttir KA
meö 42,90 metra kasti en önnur
varö tris Grönfeldt UMSB meö
42,64 nL Helga Halldórsdóttir KR
sigraöi i 200 metra hlaupi á 25,0
sek. en önnur varð Oddný Arna-
dóttir ÍR á 25,5 sek. Þórdis Gisla-
dóttir tRsigraöii hástökki kvenna
stökk 1,75 m en i ööru sæti varö
Sigriöur Valgeirsdóttir ÍR meö
1,55 m.Tveir keppendur mættu til
leiks i 800 metra hlaupi kvenna og
þar sigraði Hjördis Árnadóttir
UMSB og fékk hún timann 2,38,8
min. Á eftir henni kom Linda
B. ólafsdóttir sem varö 12 ára
I gær og fékk hún timann
2,47,4 sem er góöur timi hjá
ekki eldri stúlku. Sveit fRsigraði
með glæsibrag i 4x100 metra boð-
hlaupi kvenna á timanum 49,8 en
sveit Armanns varð i öðru sæti á
51,8 sek. og voru skiptingar
stúlknanna i Armanns varð i öðru
sæti á 51,8 sek. og voru skiptingar
stúlknanna i Armanni einhverjar
þær skrautlegustu sem sést hafa
á hlaupabraut hér. I sigursveit IR
voru þær Oddný Árnadóttir,
Bryndis Hólm, ÞÓrdis Gisladóttir
og Sigriöur Valgeirsdóttir. Söiu-
maöurinn stæðilegi, Pétur Pét-
ursson útA bætti árangur sinn
verulega i kúluvarpi og varpaði
16,24 metra og er þaö 7. besti
árangur lslendings frá upphafi.
Guðni Halldórsson KR sigraði
hins vegar meb 16,82 m kasti.
Minigolfarinn, Valbjörn Þor-
Framhald á bls 19