Tíminn - 21.06.1980, Qupperneq 6

Tíminn - 21.06.1980, Qupperneq 6
6 Laugardagur 21. júní 1980 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurbsson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eirfksson. Aug- lýsingastjóri: Steingrfmur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýsingar SlOumúia 15. Slmi 86300. — Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð I lausasölu kr. 240. -Askriftargjald kr. 4.800 á mánuði._Blaðaprent. J Þingfararkaupið Einkennilegar umræður hafa átt sér stað siðustu daga um þingfararkaup alþingismanna. Mest hefur borið á þvi að þeir flokksbræðurnir ólafur Ragnar Grimsson og Garðar Sigurðsson, annar formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og hinn formaður þingfararkaupsnefndar, hafa berum orðum ásakað hvor annan um ósannindi á opinberum vettvangi. Gekk svo langt að Ólafur Ragnar taldi nauðsynlegt að fara að birta bókun af fundum þingflokks Al- þýðubandalagsins, en af þvi lesmáli mátti reyndar fullt eins ráða að Garðar hefði rétt fyrir sér eins og Ólafur færi með satt mál. Hefur þessi bókun siðan þótt gott dæmi um brúk- legar fundargerðir. 1 annan stað er svo að skilja fyrir óinnvigða menn að fáir viti vissú sina um valdsvið þingfararkaups- nefndar. Á sumum er að skilja að nefndinni sé að lögum gefið sjálfdæmi um ákvarðanir um kjör al- þingismanna, eftir þvi sem á er kveðið i lögum. Aðrir hafa haldið þvi fram að forsetar Alþingis geti hlutast til um samþykktir nefndarinnar og fram- kvæmd þeirra. Enn eru sumir sem telja að málið sé i verkahring rikisstjórnarinnar, og þannig gaf for- sætisráðherra út yfirlýsingu um það að breytingin á þingfararkaupi nú kæmi alls ekki til greina og yrði einfaldlega ekki framkvæmd. í raun og veru eru launakjör alþingismanna ekki til umræðu, enda munu fáir i sjálfu sér ætlast til þess að þeir dragist aftur úr þeim starfshópum i opinberri þjónustu sem ætlast er til að miðað sé við i ákvörðunum um þingfararkaup. Enda þótt margir telji fátt gott stafa af störfum Alþingis á siðari árum, munu flestir þeir sem til þekkja á einu máli um það að starf þingmannsins er erilsamt og tima- frekt, mjög útgjaldamikið og siður en svo eftir- sóknarvert fyrir fjölskyldumenn að skuldbinda sig til að verja kvöldi eftir kvöld og helgi eftir helgi i fundi og ferðir og þiggja litið annað en aðkast og pólitiskt nið fyrir vikið. Allt um það verður að telja að ákvörðun þing- fararkaupsnefndar nú um verulega hækkun hafi verið mjög misráðin, ekki sist þegar tillit er tekið til þeirrar viðkvæmu stöðu sem almenn kjaramál og samningar eru i um þessar mundir. Það er óhætt að segja að nefndin setur öðrum hagsmunaaðiljum vafasamt fordæmi með þessari ákvörðun sinni. Af þessum sökum hefur þingflokkur Fram- sóknarmanna ályktað að beina þvi til nefndarinnar að hún breyti ákvörðun sinni. í öðru lagi ályktaði þingflokkurinn að rétt sé að breyta lögum um þing- fararkaup þannig að kjaradómur ákvarði laun þingmanna. Það kemur vafalaust til mála að kjaradómur fjalli um þessi mál. En hann verður þá að hafa skýr ákvæði laga að styðjast við i ákvörðunum sinum. Það er nefnilega grundvallaratriði i stjórnskipan lýðræðisrikis að embættismenn geti ekki tekið i sinar hendur slikt meginmál i starfi og aðstöðu þjóðþingsins. Þingið sjálft verður að ráða úrslitum um slik efni og standa siðan ábyrgt frammi fyrir kjósendum. Það þarf þvi að vanda vel þau ákvæði sem sett kunna að verða um kjaradóm um þingfararkaup. JS Þórarinn Þórarinsson Erlent yfirlit Mandela er dáðasti maður Suður-Afríku Nelson Mandela RÓSTURNAR I Suður-Afrlku halda áfram að magnast, því aö leiötogar blökkumanna sjá ekki annað ráö til að losna undan ok- inu en að beita skæruhernaöi og skemmdaraðgeröum. Stjórn- völd viðurkenna, aö tugir manna hafi fallið í þessum átök- um slðustu daga og enn fleiri særzt. Aðrar heimildir telja þessar tölur alltof lágar. Sennijega hefur það aukiö baráttuhug blökkumanna, að nýlega hefur veriö birtur boð- skapur frá vinsælasta leiðtoga þeirra, Nelson Mandela, en hann er búinn aö sitja samfleytt I fangelsi 118 ár. í boðskapnum hvetur hann eindregiö til aukins skæruhernaðar, því að núver- andi valdhafar Suöur-Afrlku beygi sig ekki fyrir öðru. Sagt er, að þessi boðskapur Mandela sé orðinn tveggja ára gamall og sé hann búinn að fara ýmsar krókaleiöir. I fangelsinu hefur Mandela verið alveg ein- angraöur. öll bréf til hans og frá honum eru ritskoðuð og hann fær aldrei aö tala einslega við konu sina, þegar hún heimsækir hann. Hann fær ekki aö fylgjast með fréttum og hann fær ekki að vinna að ritstörfum, þegar bréf eru undanskilin, Þessi einangrun hefur ekki haft þau áhrif, sem stjórnar- völdin ætluöust til, þ.e. aö Mandela gleymdist. Þvert á móti virðast vinsældir hans fara vaxandi meö ári hverju. Blökkumenn I Suöur-Afrlku llta á hann sem þjóöhöfðingja. Fyrir skömmu lét einn biskup blökkumanna I Afríku, Des- mond Tutu, svo ummælt, I viö- tali viö brezka útvarpið, aö Nel- son Mandela myndi verða for- sætisráöherra Suður-Afríku inn- an fimm ára. Spádómur hans var sá, að þróunin I Suöur-Af- rlku yrði enn hraöari en I Ródesiu. NELSON Mandela veröur 62 ára I næsta mánuði. Hann er fæddur og uppalinn I Transkei, sonur ættarhöföingja þar, Mandela og Kaiser Matanzima, sem nú er forsætisráöherra I Transkei, eru náfrændur. Faöir Mandela ætlaði honum að taka við forustu ættarinnar, en hugur Mandela hneigöist frá þvl á stúdentsárum hans og þó enn meira er hann stundaði laga- nám viö Fort Hare-háskólann. Að laganáminu loknu hélt Mandela til Jóhannesarborgar og vann þar I námum um hríö. Síðar fékk hann starf á lögfræði- skrifstofu hjá hvltum og féll þeim svo vel við hann, að þeir hvöttu hann til aukins laganáms og fór hann aö ráöum þeirra. Mandela stofnaöi siðan sér- staka lögfræðiskrifstofu, ásamt Oliver Tambo, sem nú dvelst I útlegö vegna þátttöku sinnar I mannréttindabaráttu blökku- manna. Tambo er nú forseti samtakanna African National Congress (ANC), sem voru stofnuö 1912 til að berjast fyrir réttindum blökkumanna. Mandela haföi gerzt meölim- ur ANC áriö 1944 og síöan tekið að sér að skipuleggja æskulýös- deild samtakanna. ANC hafði beitt friðsamlegum aðgerðum, en æslulýðssamtökin gerðust herskárri undir forustu Mand- ela. Arið 1952 var Mandela kjörinn varaformaður ANC og varö brátt forustumaður I ýmsum virkum mótmælaaðgeröum. Um nokkurt skeið sat hann þvi I fangelsi. Eftir að hann var laus, tók hann að sér að verja blökku- menn, sem höfðu gerzt brotlegir við lögin vegna pólitískrar and- spyrnu sinnar, og vann hann sér það orð að vera einn af fremstu málflutningsmönnum I Suöur- Afríku. Hann gerðist jafnframt stöðugt harðskeyttari I and- spyrnunni. Ariö 1960 voru ANC-samtökin bönnuð, en Nelson Mandela lét sér ekki segjast. Vorið 1961 gerðist hann leiðtogi meiri hátt- ar verkfalls, sem stóð I þrjá daga. Eftir þaö fór hann huldu höfði og vann að stofnun sam- taka, sem frömdu skemmdar- verk á opinberum byggingum til aö minna á baráttu slna. Arið 1962 tókstlögreglunni að hand- taka hann og sat hann I gæzlu- varðhaldi til 1964, þegar hann var dæmdur I ltfstlöarfangelsi. Síöan hefur hann lengst af verið fangi á Robbeney. ÞEGAR Mandela var fangels- aður 1962 og ákærður fyrir að hvetja til ólöglegra verkfalla og skemmdarverka og fyrir að hafa fariö ólöglega til útlanda, flutti hann I réttinum varnar- ræðu, sem tók fjórar klukku- stundir, og þykir nú I röð beztu ræðna, sem hafa verið fluttar undir slikum kringumstæöum. íræöunni lýsir hann m.a. þvl, að þaö hafi ekki verið létt verk, að snúa baki viö góðu fjöl- skyldulífi og hverfa frá góðu starfi til þess að taka upp bar- áttu sem kostaöi hann aö fara huldu höföi og eiga stöðugt handtöku og fangavist yfir höfði sér. Hann hafi gert sér vel ljóst um hvaö var að tefla, þvl að hann hefði þegar haft bitra reynslu af fangelsum I Suður- Afrlku. Hann sagöist samt hafa valið áhættuna, þvi aö hann hataði af öllu hjarta þá ánauð, sem kyn- bræöur hans og systur yrðu aö þola í Suður-Afrlku. Enginn dómsúrskurður gæti breytt þessu hatri, heldur yrði þvl að- eins eytt meö þvl að komiö yröi á réttlátara þjóöskipulagi I landinu. Þegar Nelson Mandela átti sextugsafmæli, minntist eigin- kona hans, Winnie og dætur þeirra tvær afmælisins með föstu og bænahaldi, sem ekki var tileinkað Mandela einum, heldur öllum pólitlskum föngum I Suöur-Afrlku. Winnie Mandela hafði rúmu ári áður verið flutt til Brandfort að tilhlutan stjórn- arvaldanna og hefur verið þar i hálfgeröu stofufangelsi til aö koma I veg fyrir, aö hún reki áróður. Aöeins örsjaldan er henni leyft að heimsækja mann sinn, en tlö bréfaskipti eru milli þeirra. Winnie Mandela segir, aö hann haldi fullu þreki, jafnt andlega og likamlega, þrátt fyrir fangavistina. Hann hefur alltaf verið hraustur og stundað llkamsæfingar, en á uppvaxtar- árunum tók hann þátt I hnefa- leikum með góðum árangri. Ef kosningaréttur væri al- mennur I Suöur-Afrlku, myndi Nelson Mandela vafalltið vera forsætisráðherra landsins. Mandela og kona hans skömmu eftir giftinguna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.