Tíminn - 25.06.1980, Qupperneq 3

Tíminn - 25.06.1980, Qupperneq 3
Miövikudagur 25. júnl 1980. 3 •SBW35SV r- :.f' 'O'V'VÍ ■»'' V ■ \ í' ^‘V >-*■;♦ ■• ♦ '* *■ (é *■ .W.'J > v ' i n i * ♦ m i M i i n i t i i n II i ,f f ú i t » m m m m i i u i , , * i \ i u \ . m * i t t t m ( i i í i < n nt * * i u m m i m h • MMittMMMtMUrhlHM II, Mi'í: iHMMUtlMMMtm Styr um „Snorra” HEI — „bar sem Rlkis- útvarpið-sjónvarp (RUV) hefur virt að vettugi ákvæði I sam- komulagi um meðferð handrits undirritaðra starfsmanna Lifandi mynda h.f. að kvik- myndinni um Snorra Sturluson, bæði hvað varðar upplýsinga- skyldu og höfundarrétt, og vegna þess að grundvallar- breytingar hafa verið gerðar á handritinu án okkar vitundar, firrum við okkur allri ábyrgð á „Snorramynd” þeirri, sem sjónvarpið vinnur nú að og óskum eftir þvi, að nöfn okkar sem höfunda verði ekki tengd þeirri útgáfu verksins sem sjónvarpið vinnur nú eftir”, segir i yfirlýsingu undirritaðri af Erlendi Sveinssyni og Sigurði Sverri Pálssyni. I greinargerð segjast þeir hafa afhent RUV fyrstu drög að handriti ásamt greinargerð um grunnhugmynd verksins i júnl 1977. í júli hafi verið undirritaður samningur um að Lifandi myndir h.f. annaðist gerð myndarinnar I samvinnu við sjónvarpið. Endurskoðaö hand- rit hefðu þeir siðan afhent i nóvember 1978 og mánuði siðar handrit með fullkominni efnis- lýsingu á myndinni, lýsingu á þulartexta auk þess að sett hafi verið fram efni I samtöl. Frá jan. til maí hafi þeir siðan unnið áfram við handritið, aðallega i samtalsatriðum þeim er Jónas Kristjánsson hafi sent heim frá London. Handritið hafi siðan verið formlega samþykkt af útvarpsráði 4. mai 1979 svo þá hefðiáttaðverahægtað hefjast handa af fullum <krafti. Siðar i greinargerðinni segir, að fyrir atbeina leiklistarráðu- nauts sjónvarpsins hafi verið lögð sérstök áhersla á aö leitað væri eftir samstarfi við Þráin Bertelsson um leikstjórn verks- ins. Fljótlega hafi þó komið I ljós að hann hafi ætlað sér stærri hlut, en þeir hefðu getað sætt sig við, sem leitt hafi til að samvinnu þeirra hafi verið slitið. RUV hafi þá einhliða ákveðið að fela Þráni alla stjórn verksins, sem þýddi að ekki héfði verið annarra kosta völ en að þeir (Erlendur og Sigurður) segðu skilið við verkið en með samkomulagi við RUV, um það m.a. að áður en kvikmyndataka hæfist yrði þeim höfundunum gerð grein fyrir þeim breyt- ingun sem um yrði að ræða. Nú værihinsvegar ljóst að svo miklar breytingar hafi verið gerðar án samráðs við þá höf- unda, að þeir væru neyddir til að firra sig allri ábyrgð á þeirri Snorramynd, sem nú væri I upp- töku. Varöandi peningahlið málsins má geta þess að samkvæmt áreiðanlegum heimildum höfðu Lifandi myndir h.f. fengið greiddar tæpar 8 milljónir fyrir gerð atriðahandrits i júli 1979. Þá var gert ráð fyrir að fyrir leikstjórn i tvo mánuði, verði Þráni Bertelssyni greiddar um 3.7 milljónir króna auk um 1.2 millj. fyrir sýningar i Noregi og Danmörku, eða alls um 4.9 milljónir króna. Auk þess mun hann fá greiddar umsaminn hluta höfundarlauna, vegna vinnu að handriti i aprilmánuði. Tekið skal fram, að þessa þrjá mánuði er Þráinn I launalausu leyfi frá starfi sinu viö Sjón- varpið. Dr. Hallgrimur Helgason hlýtur verðlaun i V-Þýskalandi A þessari mynd má sjá hvar Hagafellsjökull eystri rennur fram I Hagavatn, með þeim afleiðingum sem gremt er frá i fréttinni. Fjær á myndinni, handan Hagafells, má sjá Hagafellsjökui vestri. Áhrif frá framhlaupi Hagafellsjökuls eystri: Kvísl úr Sandvatni stlfluð til að hreinsa Tungufljót? Kás — Vegna framburðar sem berst i Tungufljót m.a. vegna framhlaups Hagafellsjökuls eystri, eru nú uppi hugmyndir meöal manna að stifla árós Arstrandsár úr Sandvatni, I þvi skyni að hreinsa ána af aurfram- burði. Er talið að aurblöndunin i Tungufljóti fæli lax frá þvi aö ganga upp fljótiö. Einnig mun Landsvirkjun vera þess fisandi að framkvæma þessa aðgerð, vegna linulagnar yfir fljótið. Auk þess er taliö aö Landgræðslan hafi hags- muni af þvi aö Arstrandá verði stlfluð. Hagafellsjökull I suðurjaðri Langjökuls hefur nú hlaupið fram I Hagavatn, eins og greint var frá i Timanum sl. laugardag. Cr Hagavatni berst aur niður eftir Farinu'bg niöur i Sandvatn. Cr Sandvatni eru tvær útgönguleiðir. önnur um Sandá, niöur I Hvitá, en hin um Arstrandsá niöur i Tungufljót. Reyndin mun vera sú að aöalvatnsstreymið er niöur Arstrandsá, úr Sandvatni, sem veldur þvi að Tungufljót aurlit- ast, sem hún annars myndi ekki gera, ef þetta vatn rynni ekki I hana. öðru máli gegnir um Hvitá sem er jökulvatnsá. 1 Tungufljót ganga margar vatnsmiklar uppsprettur, þannig aö ekki er taliö koma að sök þó Arstandsá við Sandvatn yrði stifl- uð. „Okkur er það gffurlegt hags- munamál aö fá aurinn úr Tungu- fljóti með þvi að stifla fyrir þetta rennsli”, sagöi Friörik Stefáns- son, framkvæmdastjóri SVFR, I samtali viö Timann, en SVFR hefur Tungufljót á leigu, og hefur sleppt þar seiðum undanfarin sjö ár, þó þær aðgerðir hafi enn ekki skilaö sýnilegum árangri. Auk þess hefur verið komiö fyrir laxa- stiga viö Fossvað rétt hjá Vatns- leysu, þannig að ekkert á þvi að vera til fyrirstööu að laxinn gangi upp Tungufljót. Að sögn kunnugra manna mun vera litiö mál aö stifla Arstandsá við Sandvatn, og ekki tekur ýtur nema tvo þrjá daga að ljúka þvi verki. Þann 27. júni n.k. fer fram við hátiðlega athöfn I móttökusal ráðhússins i Lubeck afhending Henrik-Steffens-verðlauna, sem veitt eru af háskólanum i Kiel I Vestur-Þýskalandi. Að þessu sinni hlýtur þau próf. dr. Hallgrimur Helgason, bæði fyrir forgöngustarf I átthögum sinum og fyrir útbreiðslu Is- lenzkra tónmennta i Evrópu og Norður-Ameriku, sem tónskáld og múslkvlsindamaður. En dr. Hallgrimur hefir gegnt prófessorsembættum i tónsmiði og músikvisindum við University of; Saskatchewan i Kanada og við Freie Universitá’t I Vestur-Berlin en er nú dósent við Háskóla Islands. Verðlaunin eru gull- medalia og álitleg fjárupphæö. Athöfnin hefst með ávarpi for- seta háskólans I Kiel, próf. dr. Gerd Griesser, og afhendir hann verölaunin. Þá heldur forstöðu- maður mUsikvisindastofnunar háskólans, próf. dr. Friedhelm Krummacher aðalræðuna um ævistarf og verk verðlaunahafa, til skilgreiningar á verðlauna- veitingu. Þar næst flytur verð- launahafi þakkarávarp og erindi um „Hugmynd þjóðlegrar endur- reisnar I islenzkum tónmennt- um;a Að lokum leikur próf. Ger- hard Berhe, ásamt félögum sin- um i Dresdener Trio, kammer- mUsikverk eftir dr. Hallgrim, pianó-trió i þrem köflum fyrir fiðlu, celló og pianó. Henrik-Steffens-verölaunin eru veitt árlega, fyrir sérstaka verð- leika á sviði hugvisinda og lista, vlsinda- og listamönnum frá Dan- mörku, Finnlandi.lslandi, Noregi og Sviþjóð, sem hafa, auk starfs sins á heimaslóðum, einnig hasl- að sér völl og náð hljómgrunni utan sins heimalands og þar með stuðlað að aukinni þekkingu á menningarframlagi sinnar eigin þjóðar og eflt samstarf og vináttutengsl þjóöa i millum. Tiu manna fastskipað ráð til- nefnir verðlaunahafa hverju sinni. 1 þvi eiga sæti m.a. fulltrú- ar frá öllum Norðurlanda-þjóð- um. Formaður þess er dr. Alex- ander Scharff, prófessor i sögu við háskólann I Kiel, en fulltrúi Islands er Vilhjálmur Þ. Gisla- son. Þingmenn ekki einir i baráttunni: Prestar fá heldur ekki yfirvinnu- greiðsiur HEI — Akveðið hefur verið að skipa nefnd til að gera úttekt á kjaramálum presta, að þvi er kom fram i ávarpi kirkjumála- ráðherra á aðalfundi Presta- félagsins s.l. mánudag. Kom fram á fundinum að prestum finnist óréttlátt að mörg atriði kjarasamnings BHM ná ekki til presta. M.a. verði þeir sjálfir aö bera kostnað af embætti sinu og — hvorki mældar né ómældar gjaida þess þannig að vinna vel. Prestar fái ekki viðurkenningu rikisvaldsins fyrir mikið vinnu- álag, sifelidar bakvaktir og langan vinnutima á helgidögum og hátiðum. Þá voru á fundinum ræddar tillögur að messubúnaði presta. Voru skoöanir skiptar á þvi, hvort taka skuli upp einfaldari og léttari búnað i stað hemp- unnar. Sr. Ölafur Skúlason lét af for- mennsku Prestafélagsins eftir 6 ára starf og var sr. Þórhallur Höskuldsson kjörinn I stjórn i hans stað. Fyrir i stjórninni sátu • sr. Sigurfinnur Þorleifsson og sr. Guðmundur óskar Ólafsson, en endurkjörnir voru sr. Karl Sigurbjörnsson og sr. Þor- bergur Kristjánsson. Stjórnin mun kjósa sér formann innan skamms. KOSNINGAHANDBOKIN frá er komira út. Fæst á blaðsölustöðum og bókabúðum um land allt. FOR&ETAKJÖR 29. juní 1980 Fosninða handbék

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.