Tíminn - 08.07.1980, Blaðsíða 5

Tíminn - 08.07.1980, Blaðsíða 5
ÞriÐjudagur 8. júil 1980. 5 Samkeppni sparisjóða og banka fer harðnandi: Sparisjóðir tryggja yfirráð yfir fjármagni i heimabyggð JSG — „Sparisjóöirnir standa auövitaö frammi fyrir svipuöum samdrætti eins og bankarnir vegna minnkandi innlána, en lausafjárstaöa okkar er mun betri en bankanna”, sagöi Baldvin Tryggvason formaöur stjórnar sambands sparisjóöa á fundi meö fréttamönnum nýlega þar sem aöalfundur sambandsins var til umræöu. „Viö vörum okk- ur einfaldlega á þvi aö lána ekki umfram getu okkar”, bætti Baldvin viö. A siöasta ári jukust innlán i sparisjóöum landsins um 59,7% en þaö er mjög svipaö eins og meöalinnlánsaukningin í bönk- um. Á árinu störfuöu 42 sparisjóö- ir meö 44 afgreiöslustaöi, og i árs- lok námu innistæöur þeirra sam- tals 36,4 milljöröum. Forustumenn sparisjóöasam- bandsins geröu samkeppni spari- sjóöa viö bankana sérstaklega aö umræöuefni, en þessi samkeppni hefur stööugt fariö harönandi. A siöasta starfsári komu sparisjóö- irnir upp Landsþjónustu spari- sjóöa til aö auka þjónustu viö viö- skiptavini sina, og getur viö- skiptavinur sparisjóös nú hreyft sparisjóösreikning sinn, ávisana- reikning eöa hlaupareikning I hvaöa sparisjóöi sem er á land- inu. Sparisjóöirnir hafa ekki tekiö upp sparilánakerfi eins og flestir bankar, en forustumenn þeirra töldu aö sparisjóöirnir veittu föst- um viðskiptamönnum sinum ekki siöri lánafyrirgreiöslu en viö- skiptamenn banka gætu öölast i gegnum sparilánakerfin. Orörétt segir i frétt frá aöal- fundi sparisjóðasambandsins: „Mikla nauðsyn ber til aö efla skilning stjórnvalda og almenn- ings á þvi meginatriöi islenskrar sparisjóöastarfsemi aö sérhverj- um sparisjóði er stjórnaö af heimamönnum æ i þágu byggöar- lags sins. Sérhvert byggöarlag sem yröi aö sjá á bak sparisjóði sinum og fengi i staðinn bankaúti- bú heföi glataö yfirráöum yfir þvi fjármagni sem i sparisjóönum var og þaö nú komiö i hendur bankans og yfirstjórnar hans i Reykjavik”. Sparisjóöasambandið mun á næstunni opna sérstaka skrifstofu á Skólavöröustig 11 i Reykjavik, og hefur sambandsstjórn ráöið Sigurð Hafstein sem fram- kvæmdastjóra sambandsins. 2000.fundur bæjarráös Hafnarfjaröar. A myndinni eru taldir frá vinstri Guöbjörn ólafsson bæjarritari, Arni Grétar Finnsson bæjarráösmaöur, Einar I. Halldórsson bæjarstjóri , Arni Gunnlaugsson bæjar- ráösmaöur, Ægir Sigurgeirsson bæjarráösmaöur, Höröur Zóphaniasson bæjarfulltrúi, Markús A. Ein- arsson bæjarfulltrúi og Björn Árnason bæjarverkfræöingur. Rimini ein af þeim allra bestu! 14. júlí - örfá sæti laus 24. júlí - laus sæti 28. júli - „auka-auka“ ferö - örfá sæti laus 4. ágúst - uppselt, biðlisti 14. ágúst - uppselt, biðlisti 18. ágúst - „auka-auka“ ferð - uppselt, biðlisti 25. ágúst - örfá sæti laus 4. september - uppselt, biðlisti 15. september - laus sæti PORTOROZ Friösæl og falleg sólarströnd 14. júlí - örfá sæti laus 24. júlí - laus sæti 4. ágúst - uppselt, biðlisti 14. ágúst - uppselt, biðlisti 25. ágúst - örfá sæti laus 4. september - uppselt, biðlisti 15. september - laus sæti Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 2000. fundur bæjarráðs Hafnarfjarðar Nýlega var haldinn 2000. fundur bæjarráös Hafnarfjaröar. Bæjarráö Hafnarfjaröar var stofnað 3. febrúar 1942, en þá samþykkti bæjarstjórn aö gera þá breytingu á starfssviöi bæjar- stjórnar aö kjósa þrjá menn i bæjarráö og þrjá til vara til eins árs 1 senn. I fyrsta bæjarráöi Hafnarfjarö- ar sátu sem aðalmenn Emil Jóns- son, Kjartan ólafsson og Þorleif- ur Jónsson. Varamenn voru þeir Björn Jóhannesson, Ásgeir Stefánsson og Stefán Jónsson. Frá upphafi hefur bæjarstjóri setið fundi bæjarráös. Þegar bæjarráö var stofnaö var Friöjón Skarphéðinsson bæjarstjóri. Fyrsti fundur bæjarráös var haldinn 9. febrúar, 1942 og var Emil Jónsson kosinn formaöur þess. 1 upphafi voru bæjarráöi falin þau störf, sem eftirtaldar nefndir á vegum bæjarins höföu haft meö höndum: Fjárhagsnefnd, fast- eignanefnd, vega-, holræsa- og vatnsveitunefnd, rafveitunefnd, lögreglumálanefnd, giröingar- nefnd, skýlis- og fundarhúss- nefnd, Krisuvikurnefnd og kjör- skrárnefnd. Kvöldferðir með Akraborginni — yfir sumartímann Kás —Nú yfir sumartimann með- an fólk er mest á feröinni vegna orlofa og hagstæörar veöráttu, hafa útgerðaraöilar Akraborgar- innar ákveöiö aö fjölga ferðum hennar milli Reykjavíkur og Akraness. Hafa þeir tekið upp kvöldferöir alla daga vikunnar, nema laugardaga. Er þá fariö frá Akranesikl. 20.30, en frá Reykja- vik kl. 22. Nú er þaö meginhlutverk bæjarráös aö fara meö ásamt bæjarstjóra framkvæmdastjórn á málefnum kaupstaöarins aö þvi leyti sem hún er ekki fengin öör- um aöilum. Bæjarráö hefur þaö sérstaka hlutverk meö höndum aö vera fjárhagsnefnd bæjarins. Þaö hef- ur eftirlit meö fjármálastjórn bæjarins og undirbýr fjárhags- áætlun hverju sinni. Auk hinna föstu bæjarráðs- manna situr bæjarstjóri og bæjarritari alla fundi bæjarráös. Bæjarstjóri undirbýr dagskrár fundanna og leggur málin fyrir. Þá sitja og einstakir starfsmenn bæjarins bæjarráðsfundi eftir þvi sem tilefni er til hverju sinni. Bæjarráö heldur fund aö jafn- aöi einu sinni i viku, en stundum oftar, ef sérstök ástæöa er til. Nú eiga sæti I bæjarráöi Arni Gunnlaugsson, Arni Grétar Finnsson og Ægir Sigurgeirsson. Auk þess sitja fundi ráösins tveir áheyrnarfulltrúar minnihlutans I bæjarstjórn, þeir Hörður Zóphaniasson og Markús A. Ein- arsson, Einar I. Halldórsson bæjarstjóri og Guöbjörn ólafsson bæjarritari. Kaupfélag Reykjavikur og nágrennis Aðstoðarverslunarstjóri Okkur vantar aðstoðarverslunarstjóra i stóra kjörbúð, helst vanan kjötaf- greiðslu. Þarf að geta leyst verslunarstjóra af. Upplýsingar á skrifstofu Kron, miðviku- dag og fimmtudag kl. 2-4. Tilkynning frá sölu varnarliðseigna Verslanir vorar og skrifstofa að Grensás- vegi 9 og afgreiðsla á Keflavikurflugvelli verða lokaðar vegna sumarleyfa frá 14. júli til 18. ágúst. SALA VARNARLIÐSEIGNA Tilkynning frá Framleiðsluráði landbúnaðarins til framleiðenda í alifugla- og svínarækt Ákveðið hefur verið að afhenda eigendum alifugla og svina sérstök kort, sem veita þeim heimild til kaupa á kjarnfóðri án þess að þurfa að greiða að fullu það kjarn- fóðurgjald, sem nýlega hefur verið ákveðið með lögum. Leyfisveitingin gildir til loka september næstkomandi og miðast við 25% af þvi kjarnfóðurmagni sem viðkomandi aðilar geta fært sönnur á að þeir hafi keypt á sl. ári til svina og alifuglaræktar. Framleiðendur skulu senda Framleiðslu ráði samanteknar upplýsingar um kjarn- fóðurkaup sl. árs ásamt verslunarnótum yfir kaupin. Þörf nýrra framleiðenda verður metin sérstaklega. Leyfiskortin verða siðan send viðkomandi aðilum jafn- óðum og þau verða tilbúin. Umsóknum skal fylgja nafn og nafnnúmer viðkom- andi umsækjenda ásamt greinilegu heimilisfangi. Þeir sem til þess hafa aðstöðu geta skilað umsóknum og sótt leyfin sjálfir á skrif- stofu Framleiðsluráðs i Bændahöllinni Reykjavik. Afhending leyfanna hefst mánudaginn 7. júli. Reykjavik, 5. júli 1980. Framleiðsluráð landbúnaðarins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.