Tíminn - 09.07.1980, Page 1
„Urö og grjót, upp I mót.....” gæti hann sagt meö Tómasi, sá litli. En
hann á vafalaust eftir aö glima viö hærri tinda en þennan á lifsleiöinni
og hver veit hve háan tind hann á eftir aö sigra.
Fékk brot úr hnífi
sláttuþyrlu i brjóstiö
AM — Nærri lá aö stórslys yröi i
gær á bænum Þrastarhóli i
Arnarneshreppi, sem er skammt
norðan Akureyrar. 14 ára gamall
piltur, sem var að vinna viö
sláttuþyrlu varö fyrir broti úr
hnifi sem brotnaöi i tækinu og
gekk brotið inn i brjóst honum.
Sem betur fór gekk brotið þó ekki
lengra en svo að meiðslin eru ekki
talin: vera alvarleg, en pilturinn
var þó þegar fluttur á sjúkrahúsið
á Akureyri til aðgerðar.
Vinnumáladeild Félagsmálaráðuneytísins:
Aukin bjartsýni um
álramhaldandi rekst-
ur frystihúsanna
HEI — Skráð atvinnuleysi er
stórum minna fyrri helming
þessa árs, en var á sama tima i
fyrra, að þvi er kemur fram i
yfirliti frá Vinnumáladeild
félagsmálaráðuneytisins.
Skráð atvinnuleysi er nú 0,4%
envar 0,7% ásama tima i fyrra.
Atvinnulausir voru 1214 færri,
sem er 31% munur. Skráðir at-
vinnuleysisdagar eru sagðir
37% færri fyrri helming yfir-
standandi árs en i fyrra á sama
tima.
Nú aftur á móti rfkir nokkur
óvissa um næstu framtið, sér-
staklega vegna þeirra erfiðleika
er steðja að frystiiðnaðinum i
landinu. Bent er á hve lokun
fyrstihúsa og uppsagnir starfs-
fólks hafi alvarlegar afleiðingar
á atvinnuöryggið i landinu, þar
sem talið sé aö 9-10 þúsund
manns.eða um 10% af starfandi
fólki vinni við frystiiðnaðinn.
Þar fyrir utan mundi stöðvun
fiskvinnslunnar valda viðtæku
atvinnuleysi á skömmum tima,
á ýmsum stöðum.
Nú hafi rikisstjórnin hins-
vegar ákveðið margháttaðar
aðgerðir til stuðnings frysti-
iðnaðinum. Þótt ekkert verði
fullyrt um hver þróunin verði á
einstökum stöðum vegna mis-
munandi aðstæðna, er talið að
nú þegar megi lita með aukinni
bjartsýni á áframhaldandi
rekstur þeirra frystihúsa er
ekki hafi boðaö stöðvun og að
hún muni stytta þann tima sem
vinnsla verður stöðvuð. Bent er
á að nú hafi verið heimilaö að
hefja vinnslu upp i viðbótar-
samninga við Ráöstjórnarrikin,
sem gerðir voru nýlega.
Hinsvegar er litið svo á, að á
nokkrum stöðum, þar á meðal
Vestmannaeyjum, séu vanda-
málin þess eðlis að vafalaust
verði að gripa til sérstakra að-
geröa ef þar eigi aö tryggja á-
framhaldandi framleiöslustarf-
semi.
En á heildina litiö er sagt ao
þess verði að vænta að aðgerðir
rikisstjórnarinnar komi i veg
fyrir það fjöldaatvinnuleysi,
sem vofað hafi yfir siðustu vik-
ur.
Um atvinnuhorfur i öðrum
starfsgreinum er ekki talin á-
stæða til að ætla annaö en að
starfsemin næstu mánuði verði
jafnvel enn meiri en á sama
tima i fyrra.
Framleiðnin i
þorskframleiðslu
frystihúsanna:
Jókst
um
20,5%
á tíu
árum
JSG — A slðustu tiu árum hef-
ur framleiönin i þorskfram-
leiöslu I frystihúsum landsins
aukist aö meöaltali um 20,5%.
Framleiöniaukningin I ýsu-
framleiöslunni hefur hins veg-
ar^aöeins veriö um 5%, en I
heild hefur framleiöni frysti-
húsanna aukist um 17%. Þess-
ar tölur er aö finna I yfiriiti
sem samtök sambandsfrysti-
húsanna hafa gert.
Hugtakiö framleiöniaukning
merkir hér hagstæöa þróun
milli framleiöslumagns og
heildarrekstrarkostnaöar, en
sé litiö á framleiösluna eina
sér þá hefur framleiöni i henni
aukist um 30,5%, frá 1970 til
1980. A móti kemur aö vinnu-
magn i frystihúsum hefur á
þessu timabiii aukist um 28%,
en einnig hefur vaxtakostnaö-
ur þyngst og sömuleiöis um-
búöakostnaöur. (Reiknaö er á
stööugu verölagi). Séu þessir
þættir reiknaöir inn i heildar-
rekstrarkostnaö hefur hann
vaxiö um 10%, og aö teknu til-
liti tii þess stendur eftir aö
nettó-framleiöniaukningin
hefur veriö 20,5% á áratugn-
um.
Framleiðnisaukninguna má
fyrst og fremst rekja til
tvenns, annars vegar betri
nýtingar hráefnis á frystihús-
unum, en bestu frystihúsin
hafa á timabilinu aukið nýt-
ingu sina úr 36% i 42%, en hins
vegar til framleiðslubreyt-
inga, frá verðminni vörum til
verömeiri vöru, sem meöal
annars hefur orðiö möguleg
með betri meöferð hráefnis og
betri vélakosti við vinnsluna.
Þá má ætla að jafnari vinna
árið um kring, og afkasta-
hvetjandi launakerfi, eigi þátt
i framleiðniaukningunni.
Miðvikudagur 9. júlí 1980/
148. tölublað 64. árgangur
-------------------------r—
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • .Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 & 86392
. .
Krafla:
Landrisið aidrei
hærra en nú
Biðum og búumst við hverju sem er,
segir Eysteinn Tryggvason
jarðfræðingur á skjálftavaktinni
FRI — Landrisið við Kröflu
hefur aldrei verið hærra en nú og
að sögn Eysteins Tryggvasonar
jarðfræðings á skjálftavaktinni i
Reynihlið þá hefur aflestur af
hallamælinum ekki áður komist
yfir 20 mm en i gær komst hann
aðeinsyfirþaðmark. I vetur áður
en siðasta gos hófst þá hékk hann
lengi rétt fyrir neðan 20 mm.
— Við bíðum hér og búumst við
hverju sem er, sagði Eysteinn, en
þeir svartsýnustu segja að þetta
muni dragast fram • að réttum
eða jafnvel lengur.
Mikill ferðamannastraumur
liggur nú i Mývatnssveitina og
sem dæmi um fjölda ferðamanna
þar má nefna að i gær rétt fyrir
hádegiö voru 6 stórar rútur
samankomnar fyrir utan hótelið i
Reynihlið.
SáttafundurmeöfulItrúumASÍogVSÍ á föstudag
Tilraun til að
koma viðræð-
unum áfram
JSS— „Þetta er a.m.k. tilraun
til að koma viðræðum áfram, en
að öðru leyti er litið hægt að segja
um málin á þessu stigi”, sagði
Guðmundur Vignir Jósefsson
varasáttasemjari i viðtaii við
Timann I gær.
Næstkomandi föstudag hafa
fulltrúar vinnuveitenda og Al-
þýðusambandsins verið boðaðir á
sáttafund, en viðræður þeirra i
milli hafa nú legið niðri um nokk-
urt skeið vegna ágreinings um
fyrirkomulag verðbótakerfis.
Timinn spuröi Guðmund Vigni
hvort boðun þessa sáttafundar
þýddi að afstaða annars hvors
deiluaðila hefði breyst frá þvi að
slitnaði upp úr viðræðum. Sagði
hann að ekkert væri hægt að segja
um þaö á þessu stigi. Fundurinn
væri ekki boðaður að beiðni deilu-
aðila, heldur væri hann boðaður
af sáttanefndinni til, að kanna
viðbrögðin eins og þau kynnu að
vera á föstudag. Sáttafundurinn
hefst kl. 2 og verður i upphafi rætt
við deiluaðila sitt I hvoru lagi, og
e.t.v. saman siðar, ef ástæða þyk-
ir til.