Tíminn - 09.07.1980, Síða 3
Miövikudagur 9. júli 1980.
3
Nýtt deiliskipulag Grjótaþorpsins:
Fær Þorkell að rífa Fjalaköttinn?
Kás — A fundi borgarráös I gær
varlögöfram ný tillaga Borgar-
skipulags Reykjavikur aö deili-
skipulagi á svoköiluöu Grjóta-
þorpssvæöi. 1 henni felst, aö þau
hús sem fyrir eru á þessu svæöi
koma til meö aö fá aö standa
óbreytt, og leyft veröur aö
byggja hús I skörö þeirra húsa
sem rifin hafa verið á undan-
förnum árum.
í tillögunni kemur einnig
fram, aö ef leyfi Bygginga-
nefndar fæst, þá er þvi ekkert til
fyrirstööu af skipulagsástæöum
aö hús á svæöinu veröi rifin, ef
byggö veröa i þeirra staö hús af
svipaöri stærö aö rúmmetra-
tölu. Samkvæmt þessu, er
möguleiki aö Þorkeli Valdi-
marssyni, eiganda Fjalakattar-
ins, veröi veitt heimild til aö rifa
húsiö, gegn þvi aö hann byggi i
þess staö nýtt hús af svipaöri
stærö, hvort sem er úr tré eöa
steinsteypu, en hann hefur sem
kunnugt taliö húsiö ónýtt til alls
brúks og m.a. boöiö borginni
þaö aö gjöf, ef hún aðeins vilji
fjarlægja þaö af lóö sinni, elleg-
ar kaupa hana.
Stutt I samkomulag um starfsaldurslista
og kjarasamning flugmanna?
Viðhorfin gjörbreyst
— segir Gunnar G. Schram, sáttasemjari
I flugmannadeilunni
Kás — Allar likur benda til
þess, aö það samkomulag sem
varð á milli flugmanna i Félagi
Loftleiðaflugmanna og Félagi isl.
atvinnuflugmanna við Flugleiðir
aðfaranótt sl. sunnudags, um
verkadreifingu og forgangsröð
þeirra, skipti sköpum um aðra
samninga á milli þessara aðila,
þ.e. um sameiginlegan starfsald-
urslista flugmanna og kjara-
samninga þeirra almennt.
Vel getur svo farið, að ekki
þurfi að liða á löngu þar til alls-
herjarsamkomulag næst á milli
flugmanna og Flugleiða,um þessi
efni.
Sagði Gunnar G. Schram,
sáttasemjari i flugmannadeil-
N orður-Þingeyj arsýsla:
unni, i samtali við Timann, að
samkomulagið aðfaranótt sunnu-
dagsins, hefði gjörbreytt viðhorf-
um deiluaðila til hins sameigin-
lega starfsaldurslista svo og
kjarasamninga almennt, og rutt
úr vegi erfiðustu hindruninni
gegn þvi að samkomulag næðist
milli aðila um þessi atriði.
í gær hélt sáttasemjari fund
með vinnunefnd flugmanna og
Flugleiða, þar sem rædd voru at-
riði varðandi hinn sameiginlega
starfsaldurslista. Vegna sumar-
leyfa samningamanna verður
ekki boðað til formlegs sáttafund-
ar i þessari deilu næstu daga, en
undirnefndir munu plægja akur-
inn á meðan.
Sláttur að
hefjast
Heyskaparhorfur i meðallagi
JSS— „Yfirleitt eru menn rétt
I þann veginn að hefja slátt, en
einstaka bóndi er þó kominn vel
af stað og á einum bæ er búið að
hirða verulega”, sagði Óli
Halldórsson bóndi á Gunnars-
stööum I Svalbarðshreppi
Noröur-Þingeyjarsýslu er Tfminn
spuröi hann frétta af heyskap.
Sagði Óli að ekki væri hægt að
segja aö spretta væri mikil, en
þokkaleg. Tún væru skemmd á
einstaka bæjum. Bæði væri um
kalskemmdir að ræða en einnig
þaö, að heyiö hefði legið lengi á
túnum i fyrra sökum ótiðar. Þó
mætti segja að heyskaparhorfur
væru i meðallagi, og hefði sláttur
hafist með fyrra móti, þar sem
venjulega byrjaði hann ekki fyrr
en 10.-20. júli. Ef tiðin leyföi væri
allt útlit fyrir að heyskap lyki
nokkru fyrr en venjulega.
„Sennilega þurfa menn að
farga einhverju i haust vegna
kvótans”, sagði Óli enn fremur.
„Það er nú svo með kvótann að
hann kemur afskaplega misjafn-
lega við. Þeir sem hafa verið með
allstór bú og töluvert mikla fram-
leiðslu, koma ekki svo mjög illa
út. Þeir sem hafa verið að byggja
uppog stækka, einkanlega núna á
viðmiðunarárunum, þeir fara
heldur illa og sumir raunar mjög
illa út úr þessu.”
Sagði Óli, aö vitanlega væru
menn nokkuð ráðvilltir. Eitthvað
hefði þó orðið að gera og koma
stjórnun á þessi mál. Allar höml-
ur hlytu þó að koma misjafnlega
við menn, þar sem aðstæður
þeirra væru misjafnar. Þyrfti
þetta fyrirkomulag sinn aðlög-
unartima, meðan væri verið að
sniða af þvi mestu vankantana og
væri mjög óráðið hvernig það
kæmi út að lokum.
„Flestir gera sér grein fyrir
þvi, að eitthvað yrði að gera. Það
er þýðingarlaust að flytja inn
erlendan fóðurbæti og framleiða
vöru sem ekki fæst einu sinni
fóöurbætisverð fyrir,” sagði Óli
að lokum.
Rangárvallasýsla
Geysigóð
spretta
— en þurrkinn hefur vantað
JSS —„Þaðeru nær allir byrjaöir
aö slá hér i minni sveit. Hér er
feikna gras, en það hefur háö
mönnum, aö það hefur verið
deyfa, þar til I gær. í dag var svo
ljómandi góöur þurrkur”.
Þannig fórust Magnúsi Finn-
bogasyni bónda á Lágafelli I
Rangárvallasýslu orð, er Timinn
ræddi við hann i gær. Sagði
Magnús, að líklega væri um hálf-
ur mánuður siðan fyrstu bændur
hófu slátt og hefðu þeir fyrstu náö
dálitlu heyi. Ekkert hefði gengiö
alla siðustu viku, vegna ótiðar.
„Nú stendur bara á þurrkinum,
sagði Magnús. Ef hann kemur
ekki fljótlega þá liggur þetta und-
ir skemmdum þvi sprettan er svo
óvenjumikil á þessum tima.
Slátturinn er miklu fyrr á ferðinni
nú en i fyrra og það er miklu
meira gras”.
Heilisgerði i Hafnarfirði er einn fegursti skrúðgarður landsins enda er Ilkt og náttúran hafi gert ráð
fyrir skemmtigarði þarna, alveg frá þeim tima þegar Reykjaneshraunið rann. Ljósmyndarinn • okkar
rakst á þennan hóp aldraðra borgara, sem nutu þessarar framsýni guðanna á gangi, milli blómabeða i
skjóli hraunveggja I gær.
Hitaveita Reykjavíkur:
Vill 60% gjaldskrárhækkun
— vantar 800 millj. kr. þó allar
framkvæmdir verði skornar niður
Kás — A fundi borgarráðs I gær
var samþykkt að fara þess á leit
við iðnaðarráðuneytiö, aö gjald-
skrá Hitaveitu Reykjavikur yrði
hækkuð um 60% frá 1. ágúst nk.
að telja.
Hitaveita Reykjavlkur haföi
áður farið fram á 58% hækkun á
gjaldskrá sinni frá 1. mai sl., en
aðeins fengið 10% hækkun að til-
lögu gjaldskrárnefndar. Siðan
fór Hitaveita Reykjavikur fram
á það I bréfi til forsætisráð-
herra, að hún mætti hækka
gjaldskrá slna frá 1. júli sl. um
50%, en ekkert svar hefur feng-
ist viö þeirri beiðni.
Ef fallist veröur á þessa 60%
hækkun á gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavikur, er samt ljóst, aö
skera verður niöur fram-
kvæmdir á þessu ári, á hennar
vegum.
1 byrjun siðasta mánaðar fór
borgarstjóri fram á viðræöur
við rlkisstjórnina um gjaldskrá-
mál Hitaveitunnar, en ekkert
svar hefur fengist við þvi erindi.
Engin formleg ákvörðun hef-
ur veriö tekin I stjórn veitu-
stofnana Reykjavlkur um
hvernig brcgðast eigi við ef um-
beðin gjaldskrárhækkun nær
ekki fram aö ganga. Þó er ljóst
að verulegur samdráttur verður
i framkvæmdum Hitaveitunnar
á þessu ári, þannig að kynda
veröur nýbyggð hús með ollu,
nema að Hitaveitan gripi til
þess ráös að lýsa einhliða yfir
gjaldskrárhækkun I trássi við
stjórnvöid, til að hægt verði aö
halda áfram eölilegum rekstri
fyrirtækisins.
t dag vantar Hitaveitu
Reykjavikur um 800 millj. kr. I
rekstur sinn þó allar fram-
kvæmdir á vegum hennar verði
skornar niöur á þessu ári. Er-
lendar skuldir Hitaveitunnar
munu nema nokkrum milljörð-
um króna.
BSRB lagði fram gagntilboð i gær
Ekki grundvöllur
til samningsgerðar
— segir formaður samninganefndar rikisins
JSS — Samninganefnd BSRB
lagöi i gær fram gagntilboð I
samningaviðræðum BSRB og
rikisins. 7 manna nefnd hafði áð-
ur mótað þær tillögur sem tilboðið
er byggt á og voru þær
sambvkktar samhljóða á fundi
samninganefndar I gær.
1 tilboðinu er um verulegar til-
slakanir að ræða frá upprunalegri
kröfugerð BSRB varðandi hækk-
un grunnlauna eins og fram kom i
Timanum I gær. Er þar gert ráð
fyrir að lægstu launaflokkar
hækki um 20% I stað 39% áöur en
hinir efri um 9% i staö 18% áður.
Timinn hafði i gær samband við
Þorstein Geirsson formann
samninganefndar rikisins og
spurði hann hvort hann teldi að
þetta tilboð væri grundvöllur til
samningagerðar milli BSRB og
rikisisns. ...Kvaðst Þorsteinn ekki
telja aö svo væri, þar sem svo
miklu munaði milli gagntilboðs
fjármálaráðherra og þessa til-
boðs BSRB varðandi hækkun
grunnlauna.
„Þetta gagntilboð verður
kynnt fyrir rikisstjórninni en ég
reikna ekki með neinum við-
brögöum frá henni i þessari
viku”, sagði Þorsteinn.
Baráttuhópur farandverkafólks:
„Stóðum ekki aðmótmælaaðgerðunum”
HEI — „Ég kannast ekki við aö
neinir áhangendur hafi fylgt
hljómsveitinni „Utangarðs-
menn” til Vestmannaeyja og þvi
siöur að þeir hafi tekið þátt i
innbroti i verbúö Vinnslustöðvar-
innar I Eyjum”, sagði Bubbi
Morthens i gær er hann hafði
samband við Timann vegna við-
tals viö Stefán Runólfsson i blað-
inu i gær. Hljómsveitin hefði spil-
að á föstudagskvöldið og farið
þaöan með Herjólfi kl. 7 á
laugardagsmorguninn.
1 tilkynningu frá Baráttuhópi
farandverkafólks, er þvi einnig
visað á bug, aö hópurinn hafi á
nokkurn hátt staðið aö baki mót-
mælaaðgerðunum i Vinnslustöð-
inni. Hinsvegar styðji hópurinn
þær af heilum hug.
Hópurinn úr Reykjavik hafi að
visu fengið skilaboö um
nóttina frá þvi farandverkafólki
er staðiö hafi i aðgeröunum, um
aö koma tafarlaust til verbúðar-
innar. Þrjú úr hópnum hafi orðið
viö þeim tilmælum og hafi þau
hvatt hið baráttuglaöa fólk til að
standa á rétti sinum, en siðan
haldið á brott, þar sem aðgerðirn-
ar hafi verið i höndum ibúanna og
aðkomufólki verið ofaukiö á
staðnum.