Tíminn - 09.07.1980, Qupperneq 6

Tíminn - 09.07.1980, Qupperneq 6
6 Miövikudagur 9. júll 1980.- - Otgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eiriksson. Aug- lýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýsingar SfOumúla 15. Simi 86300. — Kvöldsimar' blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö í lausasölu kr. 250 \ Áskriftargjald kr. 5000 á mánuöi. i Blaöaprent. Arásirnar á Geir Hallgrímsson Þar kom að þvi, að Morgunblaðið gat ekki orða bundizt vegna hinna hörðu persónulegu ádeilna, sem Geir Hallgrimsson hefur sætt i forustugreinum . Dagblaðsins. Siðastliðinn sunnudag snýst Morgunblaðið fyrst til varnar og segir um þessa iðju Dagblaðsins, að það hafi með „sérstökum hætti lagt formann Sjálf- stæðisflokksins, Geir Hallgrimsson, i einelti og fundið honum allt til foráttu”. Mbl. fordæmir þessi skrif Dagblaðsins, en segir hins vegar Geir litið til málsbóta. öllu léíegri gat vörn þess ekki verið. Af þessu má draga þá ályktun, að Mbl. fylgir (Jeir Hallgrimssyni með hálfum huga. Það dróst hins vegar ekki lengi, að Dagblaðið fengi óvæntan stuðning. Á mánudaginn (7. þ.m.) birtir Visir forustugrein um ástandið i Sjálfstæðis- flokknum og segir þar m.a.: ,,Geir Hallgrimsson hefur vissulega átt i vök að verjast. 1 hans formannstið hefur sigið mjög á ógæfuhliðina. Menn geta deilt um, hvort hann ber þar alla sök, en ábyrgðin og afleiðingarnar hvila á hans herðum”. Siðar segir svo i forustugrein Visis: ,,Vera má að rás atburðanna hafi gert það nauð- synlegt, að breytingar verði á forustuliði Sjálf- stæðisflokksins, en þá verður að vona, að þeir menn, sem hér hafa verið nefndir (þ.e. Geir Hall- grimsson, Albert Guðmundsson og Gunnar Thoroddsen) og aðrir Sjálfstæðismenn, sem til trúnaðar hafa verið kallaðir, taki hagsmuni flokks- ins fram yfir persónur sinar og metnað”. öllu greinilegar getur Visir ekki sagt það, að rás atburðanna geti gert það nauðsynlegt að Geir Hall- grimsson viki úr formannssætinu. Þannig eru nú siðdegisblöðin bæði sammála um að vega að Geir Hallgrimssyni og Mbl. styður hann aðeins með hálfum huga. Af þessu virðist mega álykta, að andstaðan gegn formennsku Geirs Hall- grimssonar sé orðin mögnuð innan Sjálfstæðis- flokksins. Það er að sjálfsögðu ekki verkefni andstæðinga Sjálfstæðisflokksins að skipta sér af þessum deilu- málum innan Sjálfstæðisflokksins. Vafalaust má margt að formennsku Geirs Hallgrimssonar finna, en af honum verður samt ekki haft, að hann er að ýmsu leyti mætur maður, en honum hættir hins vegar til að vera of talhlýðinn, þegar misjafnir ráðunautar eiga i hlut. Það verður þó ekki séð, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi öðrum hæfari manni á að skipa til formennsku i flokknum en Geir Hallgrimssyni eftir að Gunnar Thoroddsen hefur lýst yfir þvi, að hann sækist ekki eftir formennsku. Þeir, sem hafa verið nefndir i þessu sambandi, taka Geir ekki fram. Hið rétta i þessum málum er lika það að það skipt- ir engu höfuðmáli hver formaður Sjálfstæðisflokks- ins er, þegar ekki er um neinn sjálfsagðan forustu- mann að ræða. Meginmáli skiptir undir slikum kringumstæðum hver stefna flokksins er. Ógæfa Sjálfstæðisflokksins er sú, að fyrir siðustu þingkosningar tók hann upp nýja stefnu, leiftur- sóknina. Geir Hallgrimsson lét undan misvitrum ráðgjöfum og dró leiftursóknina að hún. Meðan Sjálfstæðisflokkurinn fylgir leiftursóknarstefnunni skiptir ekki máli, hvort formaðurinn heitir Geir, Al- bert, Birgir, Þorsteinn, Jónas eða einhverju öðru nafni. Leiftursóknin er slik öfgastefna, að þjóðinni ber eindregið að hafna henni. Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Samvinna Frakka og Þjóðverja mikilvæg Giscard og Schmidt kemur vel saman Giscard segir frá nevtrónusprengjunni SENNILEGA hefur fótt eða ekkert gerzt merkilegra siðan siðari heimsstyrjöldinni lauk en bætt sambúð þeirra stórvelda, sem áður börðust um yfirráðin I Evrópu og urðu þannig valdar að tveimur heimsstyrjöldum á þessari öld. Hér er að sjálfsögðu átt við Þjóðverja og Frakka. Þaö var lán beggja þessara þjóða, að þær eignuðust mikil- hæfa og framsýna leiðtoga, sem réðu mestu um stjórnmál þeirra fyrstu tvo áratugina eftir styrjöldina. Þessir leiðtogar voru þeir Adenauer og de Gaulle. Báöum var þeim ljóst, að ætti Vestur-Evrópa ekki að vera áfram orustuvöllur með tilheyr- andi ógnum og þjáningum, yrðu Frakkar og Þjóðverjar að taka höndum saman og vinna að þvi aö tryggja friðinn i Evrópu. Samvinna þeirra væri sá grund- völlur, sem friðurinn i Vest- ur-Evrópu yrði að byggjast á öðru fremur. Þeim Adenauer og de Gaulle varð mikið ágengt i þvi, að draga úr gamalli tortryggni þessara þjóða og ótta þeirra hvorrar viö aðra. Fyrir atbeina þeirra skapaðist nýtt andrúms- loft i Evrópu. 1 framhaldi af þessu og sam- hliða þvi, var unnið að þvi aö koma á fót Efnahagsbandalagi Evrópu, sem átti að stuðla að þvi með viðtækri efnahagslegri samvinnu að sambúð þeirra yrði betri og nánari og friðurinn treystur á þann hátt. Arftakar þeirra Adenauers og de Gaulle hafa i meginatriðum fylgt þessari stefnu, en þó engir betur en þeir Helmut Schmidt og Giscardd’Estaing. Astæða er til að minna á þetta, þegar Giscal-d er staddur 1 opinberri heimsókn i Vestur-Þýzkalandi, en aðeins einusinni áður hefur franskur þjóðhöfðingi heimsótt Þýzkaland á þann hátt. Þaö var de Gaulle er hann kom i opin- bera heimsókn til Þýzkalands 1962, eða ári áður en valdaferli Adenauers lauk. ÞAÐ fór vel á með þeim Adenauer og de Gaulle, en þó hefursamvinna þeirra Giscards og Schmidts orðiö enn nánari. Þaö mun nánast vera hægt aö tala um þá sem vini. Þeir hafa hitzt mörgum sinnum við ýmis tækifæri og ræðast iðulega viö símleiðis, þegar vanda hefur borið aö höndum. Það hefur stutt að þvi að gera samvinnu þeirra nánari, að þeir virðast vera nokkurn veginn sammála um stefnuna I al- þjóðamálum. Þeir eru báðir eindregiö fylgjandi slökunar- stefnunni, en vilja þó gæta fullr- ar vöku. Það er táknrænt um þetta, að nokkru eftir að Giscard fór i hinn umdeilda leiðangur til Varsjár, þar sem hann ræddi við Brésnjef, tilkynnti hann, að Frakkar hefð.u gert tilraunir með nevtrónusprengju og gætu hafizt handa um framleiðslu hennar, ef þurfa þætti. Staða þeirra Giscards og Schmidts er á ýmsan hátt önnur og betri en þeirra Adenauers og deGaulles. Vestur-Evrópa var enn i sárum eftir striðið, þegar vegur þeirra Adenauers og de Gaulles var mestur, og naut góðrar aöstoöar Bandarikj- anna. Þess vegna var hún um margt háö þeim. Bandarikin og Sovétrikin voru þá óumdeilan- lega risaveldin I heiminum. Siöan hefur Vestur-Evrópa eflzthlutfallslega meira en bæöi Bandarikin og Sovétrikin og þau eru ekki slik risaveldi og fyrr. Það sannaöist, hvað snerti Bandarikin i Vietnam, og er aö sannast i Afganistan, hvað varðar Sovétrikin. Afram eru þó Bandarikin og Sovétrikin valda- mestu rikin. Ef Vestur-Evrópa beitir sam- eiginlegu afli sinu, getur hún hins vegar ráðið miklu, og miklu meira en fyrst eftir heimsstyrjöldina. Ef til vill velt- ur nú heimsfriðurinn mjög á því, að Vestur Evrópa finni þennan mátt sinn og beiti hon- um á réttan hátt. Margt bendir til, að þeir Giscard og Schmidt geri sér fulla grein fyrir þvi hlutverki, sem Vestur-Evrópa getur gegnt til að vinna að bættri sambúð og eflingu friðar i heiminum, t.d. i Austurlöndum nær. EN ÞOTT Vestur-Evrópa geti þannig orðið sjálfstæðari og ó- háðari, mega forustumenn hennar ekki gleyma þvi, að viöreisn sina eftir styrjöldina á hún ekki sizt vestrænu sam- starfi að þakka. Vestrænt sam. starf er enn jafn nauðsynlegt og áður. Innan þess getur Vest- ur-Evrópa hins vegar gegnt stærra hlutverki en fyrr. Þetta er ekki sizt nauðsynlegt á timum, þegar stjórnin i Washington er i hálfgerðu lamasessi vegna langvinnrar kosningabaráttu, ein og nú. Þá getur hún freistast til þess, að láta kosningasjónarmiðin vega meira en góðu hófi gegnir. Vest- ur-Evrópa getur þá beitt áhrif- um sinum innan vestræns sam- starfs til þess að koma i veg fyr- ir, að mistök gerist. Það er óneitanlegt, að þeir Giscard og Schmidt hafa haft heppileg áhrif á gang alþjóða- mála að undanförnu. Þeir hafa haldið leiðinni til áframhald- andi spennuslökunar opinni, þegar stefndi i harönandi átök milli risaveldanna. Það er ánægjuleg þróun, að Frakkar og Þjóðverjar eyða ekki lengur kröftum sinum til aö berjast um yfirráöin i Evrópu, heldur beita sameiginlegum áhrifum sinum til að tryggja heimsfriðinn. Þ.Þ. Þ.Þ. Giscard og Schmidt.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.