Tíminn - 09.07.1980, Page 16
Gagnkvæmt
tryggingafélag
WÚmm AAiðvikudagur 9. júlí 1980
A fgreiðslutimi
1 tii 2 sól-
arhringar StÍIHpiagerÖ
Félagsprentsmiöjunnar hf.
Spítalastíg 10 — Sími_ 11640
Nýja
fasteignasalan
Ármúla 1. Sími 39-400
Tvöföldun innflutnings á kexi, kökum og brauði:
UNDIRBOÐ Á
ERLENDUM
KÖKUM?
HEI —„Það ætla sér margir að
verða rikir á innflutningi á
brauði og kökum núna” sagði
einn forystumanna bakara-
meistara fyrir nokkru.
Nýjustu hagtiðindi fræða okk-
ur einnig á þvi, að flútt hafa ver-
ið inn um 640 tonn af kexi, kök-
um og brauðvörum fyrstu fimm
mánuði þessa árs miðað við 335
tonn á sama tima i fyrra.
Timamaður rakst á þýskt
brauö i verslun einni i Reykja
vik. Pakkinn sem viktaði um 450
gr. kostaði rétt tæpar 1000 krón-
ur. Samsvarandi þung korn-
brauð frá islenskum bökurum
kosta milli 500 og 600 krónur og
blessuðu visitölubrauðin svo-
kölluðu jafnvel undir 300 krón-
ur.
En hvers vegna kaupir fólk
nokkra vikna gömul útlend
brauð á margföldu verði, þegar
hægt er aö fá úrval af ný-
bökuöum brauðum?, spurð-
um við Jóhannes bakara-
meistara i Suðurveri. „Það
skiljum við bara ekki”, svar-
aöi Jóhannes. Hann sagöist
hafa séö stafla af erlendu
brauði i búðum og þeir bakarar
hefðu einstaka sinnum keypt
sliktbrauð til að smakka. Sann-
ast sagna hefðu þau verið orðir
svo gömul, að þau hefðu tæpasi
verið söluhæf. Hinsvegar væri
kannski eðlilegt að kaupmenn
vildu frekar selja erlendu
brauðin þvi á þeim mætti vera
38% smásöluálagning en ekki
nema 17% á islenskum brauð-
um. Þvi væri eðlilegt aö erlendu
brauðin fengju kannski rúm i
þeim hillum sem meira væru
áberandi. Þannig væri Það lika
með innfluttu kökurnar, sem
þeir bakarar vildu meina að
væru seldar hér á „dumping”
verði. Það yrði næsta skref
Eru bakarar i útlöndum svona miklum mun færari en Islenskir?.
Eöahver getur ástæöan verið fyrir þvi aö hér er hægt aö selja nokk-
urra vikna gömul útlend brauð á allt að 1000 kr. þegar hægt er aö fá
islensk brauö beint úr ofninum fyrir 270 til 600 krónur stykkiö.
Timamynd Tryggvi.
samtaka bakarameistara að
sanna að svo væri.
Framkvæmdastjóri Lands-
sambands bakarameistara tók i
sama streng. Þessar innfluttu
kökurværu afbrigðilega ódýrar.
Miðað við 38% smásöluálagn-
ingu kannski 10% heildsölu-
álagningu, 24% vörugjald, 6%
aðlögunargjald og jöfnunar-
gjald og siðan flutningskostnað
auk þess að vera i vönduðum
umbúöum, þá sýndist ákaflega
litiö vera eftir af verðinu handa
framleiðandanum af köku sem
hér væri kannski seld á innan
við 1000 krónur. Þeir væru þvi
sannfærðir um að verið væri að
selja þessar kökur hér undir
kostnaðarverði.
ÞAÐ ÍSLENSKA AÐ VINNA Á AFTUR
HEI — „Það er ekki mikiö sem
viö seljum af útlendu brauöi”
sagöi verslunarstjórinn I Glæsi-
bæ. Sérstakt heilkornsbrauö,
sem ekki væri bakað hér á landi
heföi þó veriö seit þar I litlum
mæli f nokkur ár. Varöandi
aukningu nú eftir aö ailt hefur
veriö gefiö frjálst, sagöi hann,
aö þeir heföu tekið eina send-
ingu af ýmisskonar brauöi. En
þaö heföi alls ekki gefist vel og
yröi ekki keypt aftur.
Sjálfsagt væri þaö þó rétt
hermt hjá bökurum aö margir
heföu ætlaö séi aö veröa rikir á
brauöi og kökum eftir aö inn-
fiutningur var gefinn frjáls.
Sumir heföu átt margra tonna
sendingar á hafnarbakkanum
þegar höftin voru afnumin. Llk-
iegayrðiþó minna úr gróöanum
hiá vmsum en til stóö, þvi fólk
virtist ekki eins ginnkeypt fyr-
ir þessu og sumir innflytjendur
heföu haldiö. Þaö sama væri aö
koma I ljós meö erlenda sælgæt-
iö. Þar væru margar tegundir
aö detta úr. Hinsvegar heföi
frjáls innflutningur þess veriö
til mikillar blessunar, þvl þaö
heföi ýtt viö innlendu framleiö-
endunum meö meiri vöruvönd-
un og skemmtilegri umbúöir.
Spáöi verslunarstjórinn þvl aö
þetta ætti allt eftir aö komast I
jafnvægi aftur, þegar nýja-
brumið væri fariö af þvl er-
ienda.
Kaupmannasamtökin vara við óvönduðum farandsölum:
..Ákveðnir aðilar halda
hlifiskildi vfir þeim,,
— segir Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri KÍ
Reykjahlíð:
isskápurinn
áreiðanlegur
skjálftamælir
Fólk i Mývatnssveit er löngu
hætt aö kippa sér upp viö öll
lætin sem löngum eru á
skjálftasvæöinu viö Kröflu og
þaö veröur oft áþreifanlega
vart viö. Sprungur liggja
þvers og kruss um sveitina og
sum ibúöahúsin þar liggja oft
viöeöa á sumum sprungunum
þannig aö stundum er hægt aö
sjá á innanstokksmunum hve-
nær einhverjir atburöir eru i
vændum.
Tlminn hefur frétt af þvi að
Isskápur einnar frúarinnar i
Reykjahlið sé áreiðanlegur
skjálftamælir að þvi marki að
æ erfiöara verður að halda
honum lokuðum eftir þvi sem
landið þarna ris meir. Þannig
er svo komið nú að setja verð-
ur stól fyrir dyrnar á honum
til að halda honum lokuðum
enda hefur landið nú risið
hærra þarna en nokkurn tim-
ann áöur.
Kás — Að marggefnu tilefni
hafa Kaupmannasamtök Islands
nú varað kaupmenn við óvönduö-
um farandsölum, sem reyna með
ýmsum ráöum að selja kaup-
mönnum lélegan, eða jafnvel ó-
seljanlegan og ónýtan varning,
oft meö góðum kjörum gegn
greiðslu meö vixlum.
„Þessir ósvifnu prangarar
kalla sig gjarnan heildsala og
bjóöa vöru og varning I nafni
fyrirtækja, sem hvergi eru skráö
og hvergi eru til, nema á fölsuð-
um nótnaheftum, sem þeir hafa
látið prenta. Þessir falsarar eru
oftast með „sýnishorn” meö sér
og bjóða góð kjör gegn greiðslu
með vixlum. Þegar vörusending-
in kemur er svo um allt aðra vöru
að ræða, en þá sem sýnishorniö
gaf til kynna”, segir I nýjasta
hefti Vezlunartiðinda, sem Kaup-
mannasamtökin gefa út.
Þar segir ennfremur: „Einnig
eru dæmi um það að var.a sem
kaupandi var búinn að
samþykkja vixla fyrir, hafi aldrei
komist I hans hendur, þótt vixl-
arnir hafi verið innheimtir með
hörku. Þegar vixill hefur verið
samþykktur sem greiðsla i slik-
um viðskiptum er mjög erfitt aö
rifta kaupunum.”
„Ástæðan fyrir þvi að við birt-
um þetta”, sagöi Magnús Finns-
son, framkvæmdastjóri Kaup-
mannasamtakanna, „er sú að
okkar félagsmenn hafa orðið var-
ir við, að til þeirra hafa komið
JSG — Ferðakostnaðarnefnd,
hefur ákveðiö aö rikisstarfsmenn
sem eru á feröalagi innanlands
vegnastarfs sins skuli frá og með
1. jUlI siðast liönum fá greiddar
kr. 20.200 á sólarhring til kaupa á
mennsem hafa leikið óvenjulegar
kúnstir I viöskiptaháttum, ef svo
má aö orði komast.
Það vita allir hvaða menn þetta
eru”, sagði Magnús, „en það
viröist svo sem að ákveönir aöilar
i þjdðfélaginu haldi hlifiskildi yfir
þeim.”
Sagði Magnús, aö þaö væri
erfitt að ganga aö þessum mönn-
um þvi yfirleitt ættu þeir ekki
neitt, nema þá það viöskipta-
gistingu og fæði. Til kaupa á gist-
ingu I einn sólarhring skulu
greiddar kr. 8.600, og tii kaupa á
fæöikr. 11.600. Þá verða greiddar
kr. 5.800 til kaupa á fæði i hálfan
dag.
traust að geta selt vixla sina, og
fengið fyrir þá peninga og vörur.
I framhaldi af þvi sem sagt
hefurveriðhér, má bæta þvi við,
að nú stendur yfir hjá
Rannsóknarlögreglu rikisins
rannsokn á máli tveggja manna,
sem grunaðir eru um að hafa
stundað óvandaða farandsölu,
m.a. með þvi að láta menn
samþykkja vixla fyrir vörum sem
þeir aldrei fengu.
gistingu
1 sumar munu Edduhótelin um
allt land veita rikisstarfsmönnum
10% staðgreiösluafslátt að öllum
viðskiptum við þau, en 20% af-
slátt dveljist þeir þrjá sólar-
hringa eða lengur á sama stað.
Rikisstarfsmenn á ferðalagi:
20 þúsund í fæði og