Tíminn - 21.08.1980, Page 6

Tíminn - 21.08.1980, Page 6
6 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Heigason og Jón Sigurhsson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eirfksson. Aug- lýsingastjóri: Steingrfmur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýsingar Sfðumúla 15. Sfmi 86300. — Kvöidsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir ki. 20.00: 86387. Verö f lausasölu kr. 250 Askriftargjald kr. 5000 á mánuði. Blaðaprent. V______________________________________________________________J Þá og nú í dag eru tólf ár liðin siðan hersveitir Varsjár- bandalagsins undir forystu Rauða hersins rúss- neska réðust inn i Tékkóslóvakiu og brutu með hrottaskap niður tilraunir þarlendra stjórnvalda til að efla frjálsræði i landinu. Það væri of mikið sagt að fullyrða að tékkó- slóvakiski kommúnistaflokkurinn hafi ætlað að koma á lýðræði eða einstaklingsfrelsi eins og tiðk- ast á Vesturlöndum. En tilraunir Tékka og Slóvaka til að losa um harðstjórnina og koma til móts við óskir alþýðunnar um aukið frjálsræði voru samt of djarfar fyrir Sovétstjórnina. Þeir sem enn muna atburði i Tékkóslóvakiu minnast þess einnig hvilik vonbrigði innrásin var mönnum á Vesturlöndum. Hvar i flokki sem menn stóðu fylgdust þeir af athygli og samúð með þróun- inni i Tékkóslóvakiu, og meira að segja ýmsir marxistar vestan járntjaldsins ólu með sér þá von að þarna tækist loksins að sýna fram á að sósialismi og frelsi gætu átt samleið. Tékkar og Slóvakar fengu ekki tækifæri til þess að leiða það i ljós hvort sósialismi og frelsi geta átt samleið. Forystumenn Ráðstjórnarrikjanna voru sannfærðir um að frjálsræðisþróunin hlyti að leiða tii þess að kommúnisminn yrði undir og þeir hafa ekki hugsað sér til þessa að biða slikrar niðurstöðu aðgerðalausir. i krafti hervalds og ofbeldis brutu þeir tilraunina niður, og sama myrkrið lagðist yfir Austur-Evrópu og áður hafði verið. Þegar liða tók á sumarið 1968 urðu um það tals- verðar umræður á Vesturlöndum hvort Rússar myndu kæfa frjálsræðistilraunir Tékka og Slóvaka eða ekki. Raunsæir menn töldu að Sovétstjórnin hlyti að gripa i taumana þar eð hún ætti of mikið á hættu. Hinir voru þó fleiri sem voru fullir bjartsýni — og urðu íyrir ægilegum vonbrigðum. Hafi kommúnisminn birst grimulaus i innrásinni i Tékkóslóvakiu fyrir tólf árum, er það jafnsatt að hann hefur ekki breytst siðan. Innrásin i Afganistan er ekki fyrst og fremst sýnishorn eins hagkerfis fremur en annars, en hún er þó staðfesting þess að heimsvaldastefna ráðamanna i Kreml hefur ekki breyst. Hvað sem liður skilningi annarra manna hefur skilningur Sovétstjórnarinnar á þörfum og hagsmunum kommúnismans i heiminum ekki breyst hætishót. Einmitt nú um þessar mundir eru Pólverjar að berjast harðri baráttu fyrir mannréttindum og frelsi sinu. Leiðtogi kommúnistaflokksins þar i landi notaði það á dögunum sem hótun á landsmenn sina að nágranninn i austri myndi ekki þolá þeim að ganga uppréttir. Tæplega hefur hann komist svo að orði ótilknúinn, enda lýsa ummælin ekki mikilli stórmennsku eða sjálfstæði. Það er of snemmt að spá nokkru um framvindu mála i Póllandi eða lok mannréttindabaráttunnar þar, en i ljósi þess sem hefur gerst og hefur verið að gerast á yfirráðasvæði Ráðstjórnarinnar er þvi miður litil ástæða til bjartsýni. Fimmtudagur 21 ágúst 1980 Kjartan Jónasson: Erlent yfirlit Vestrænir bankamenn óró legir yfir útistandandi skuldum í Austur-Evrópu Margir Vesturlandamenn horfa nú með samblandi af óhug og eftirvæntingu til Póllands — en ekki vestrænir bankamenn. Þeir spyrja fremur sjálfa sig hvort þetta kreppuþjóðfélag geti með nokkru móti komist til móts við verkfallsmenn og þó staðið i skilum með gifurlegar skuldirsinar í vestrænum bönk- um. Afborganir af þessum skuldum nema á þessu ári um 7800 milljónum dollara. Og svarið er að Pólverjar geta þetta ekki án utanaðkomandi aðstoðar ellegar frekarilántaka. Þvi hafa pólsk stjórnvöld leit- að eftir frekari lántökum, bæði i Bandarikjunum og V-Þýska- landi. Svar bandariskra banka var, að slikt kæmi til greina en aðeinsmeð þvi skilyrði að bank- arnir fái að hafa náiö eftirlit meö öllum fjármálum rikisins auk þess sem pólsk stjórnvöld breyttu um stefnu í launamál- um, meira en orðiö er, sem meö- al annars eru þær breytingar sem verkfallsmenn nú mót- mæla. Vestur-Þjóðverjar reyndust liölegri og stjórnvöld þar gengust meira að segja i ábyrgð fyrir lántökum sem ný- lega var gengið frá en það hékk þó á spýtunni, að Pólverjar munu selja til Vestur-Þýska- lands kol á haigstæðu verði. Við höfum áður fjallað um efnahagsvandkvæöi Pólverja á þessum vettvangi, og þaö ný- lega, og skal sú umfjöllun ekki endurtekin. En 20.000 milljón dollara skuld Pólverja á Vestur- löndum segir sina sögu um efnahagsörðugleika Austur- Evrópurikja, rikja Comecon. Þessir örðugleikar og viðbrögð Sovétrikjanna við þeim, eina Comeconrikisins sem á i engum vandræðum með að standa i skilum meö erlendar skuldbind- ingar sinar á fjármálasviöinu, vekja þó ýmsar spurningar, meðal annars i hugum vest- rænna bankamanna. Þeir hafa löngum huggað sig við „regn- hlifarkenninguna”, sem sé þá, aö Sovétrikin mundu frekar koma Austur-Evrópurikjum til hjálparheldur en aö horfa upp á þá skömm að þau stæðu ekki i skilum. Raunar er ekkert sem bendir til þessa og hafa Sovét- rikin fremur dregið úr aðstoð sinni við riki Comecon en aukiö hana. Það vekur einnig spurn- ingu um hvort viðhorf Sovét- rikjanna til þessara skjólstæð- ingasinna hafa breyst eitthvað. Hvað sem öðru liður eru vest- rænir bankar farnir aö ugga að sér i viðskiptum við riki Come- con og það af allt öðrum ástæð- um en vegna Afganistan eða fyrirskipana stjórnvalda. Bankamenn svo sem aðrir fé- sýslumenn kjósa helst að halda pólitlk utan við athafnir sinar og raunar er það svo, að vestrænar stjórnir hafa síöur en svo hvatt til þess að lán verði stöðvuð austur fyrir tjald. Flest bendir einmitt til þess, að þvi sé öfugt fariö og Sonnen- feldtkenningin sé enn i fullu gildi. Að minnsta kosti eru heimildirfyrir þvi að stjórnvöld i Bandarikjunum hafi lagt á- herslu á þaö við þarlenda banka að áfram yrði lánað til landa eins og Póllands og Júgóslaviu. Það er innan bankanna sjálfra sem tekið er að bera á fyrir- stöðu. Skuldir Comeconrikja viö vestræna banka eru taldar nema nær 80 milljörðum dollara og vanskil á slikum fjármunum mundu ekkiaðeins valda stjórn- málahræringum miklum heldur og gifurlegum vandræðum hjá vestrænum bönkum. Þvi er kannski ekki nema von, að þeir séu farnir að ugga að sér er þeir horfa upp á undirölduna i Pól- landi sem enn er ekki ljóst hvar muni skola á land. Seint á sjöunda áratugnum tóku pólsk stjórnvöld aö reyna að kippa I liðinn bágum efnahag rikisins, stuðla að aukinni iðn- þróun og fjárfestingu. Ariö 1970 leiddu þessar aðgerðir til mik- illar öldu verkfalla þar sem stjórnvöld reyndu aö kosta upp- bygginguna á kostnað tekna þegna sinna. Til að bjarga eigin skinni var þá tekið aö leita vest- ræns fjármagns til að standa undir framkvæmdunum, enda höfðu þegnarnirsýntþaðaðþeir yndu ekki tekjuskerðingu jafn- vel þó ætlunin væri að hún skil- aði sér siöar i bættum efnahag rikisins. Pólverjar og önnur riki Aust- ur-Evrópu nutu þess á þessum tima að á Vesturlöndum voru bankar yfirfljótandi af fjár- magni sem erfitt var að lána út á viðunandi kjörum. Ennfremur nutu þau þess álits að standa á- vallt i skilum og það varö þvi auðsótt að fá lán á Vesturlönd- um.' Á stjórnsýslusviðinu varö einnig Sonnenfeldtkenningin til undir handarjaðri Kissingers, samkvæmt henni munu aukin viðskipti við riki Austur-Evrópu tengja þau nánari böndum viö Vesturlönd. Framan af lofaði þetta góðu ogallt lék i lyndi uns oliukrepp- an árið 1973 setti allt úr skorð- um. Aukin viöskipti Astur Evrópurikja við Vesturlönd urðu þá aðeins til þess að þau tókuaðflytja inn verðbólgu sem i ríkisbúskap þeirra varð óþol- andi vegna niðurgreiðslnakerf- isins. Vextir af lánum hækkuðu og Austur-Evrópurikin kynntust þvieins og íslendingar hvaö það gat verið illt að eiga útistand- andi skuldir i' erlendum gjald- miðli á þessum tima. Svo kom að þvi, að jafnvel Sovétmenn hækkuðu óþyrmilega við þau oliuna og samtimis brugðust vonir þeirra um að komast i auknum mæli með framleiöslu- vöru sina inn á vestræna mark- aði, bæði vegna kreppu á Vest- urlöndum og eins vegna versn- andi samkeppnisaðstööu þeirra, hvoru tveggja vegna ónægra gæða og kannski öllu' fremur vegna hækkandi tolla og vernd- arpólitikur. Þvi má búast við þvi að ýmis- legt sé nú i gerjun undir annars köldu yfirboröi Austur-Evrópu. A vissan hátt hafa bæði riki Vestur-Evrópu og Sovétrikin brugðist þeim þegar slst mátti við. A siðasta ári til dæmis var viðskiptajöfnuður Comecon til dæmis hagstæður við útlönd um 200 milljónir dollara i staö þess að hann var árið á undan óhag- stæöur um fimm milljarða dolP ara. En þannig stendur á þess- um tölum aö viðskiptajöfnuöur Sovétrikjanna er hagstæöur um 5,2 milljarða dollara en við-' skiptajöfnuður annarra rikja bandalagsins á sama tlma óhagstæöur um 5 milljaröa doll- ara. Vister þóum þaö að Sovét- rikin hafa löngum stutt viö bak- ið á þessum bandalagsþjóðum sinum þó ekki sjáist þaö allt glögglega en þó virðist fremur draga úr þeirri aðstoö en hitt. Allavega má búast viö ein- hverjum tiðindum að austan en hvort þau verði þau að Sovét- menn keyri skriðdreka inn I Pólland fremur en vörulestir eins og sjónvarpsfréttamaður- inn okkar er búinn aö lofa, skal hér ekkert um spáð. Slikt ræðst kannski ekki slst af Pólverjum sjálfum. r t; : ' f: I ■ .•/! :/: Brésnjef og Gierek takast f hendur. Hverrar aðstoðar skyldi aö vænta frá Moskvu? JS

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.