Tíminn - 19.09.1980, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.09.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 19. september 1980. 3 !■■■■■■! WLWVWJ Halldór Ásgrímsson, alþingismaður, um þyrlukaup Landhelgisgæslunnar ;j Er fjárfestingar- og lánsfjár-i áætlun marklaust plagg? i A undanförnum dögum hefur athygli þjóöarinnar beinst aö flugmálum. Fjölmiölar hafa fjallaö mikiö um mál þetta, rikisstjórnin hefur haldiö um þaö marga fundi og eytt i þaö miklu starfsþreki. Mitt i allri umræöunni um erfiöleika Islendinga i flugmál- um skýtur upp nýrri flugvél, þyrlu Landhelgisgæslunnar og viröist þar vera um allmerki- legan atburö aö ræöa. Á s.l. vetri afgreiddi Alþingi heimild til ríkisstjórnarinnar um erlenda lántöku á árinu 1980. 1 nefndaráliti sem var forsenda samþykktar Alþingis, segir m.a.: „Undirritaöir nefndarmenn telja, aö halda veröi erlendum lántökum innan þeirra marka, er fram kemur I frumvarpinu og ekki megi stofna til frekari er- lendra lána”. 1 þessari lántökuheimild var hvergi minnst á þyrlukaup Landhelgisgæslunnar. Hins vegar kemur i ljós, aö mál þetta hefur veriö I undirbúningi á sama tima sem unniö var aö fjárfestingar- og lánsfjáráætlun á Alþingi, en hvergi minnst á máliö. Þaö liggur þvi fyrir aö heimild Alþingis til handa rikis- stjórninni aö stofna til þessa kaupa er ekki fyrir hendi og Alþingi segir beinlinis i samþykkt sinni, aö rikisstjórn- inni sé óheimilt aö stofna til frekari erlendra lána. Þaö var ekki aö ástæöulausu aö Alþingi setti fram þessa skoöun viö af- greiöslu lánsfjárlaga. Ástæöan var einfaldlega sú, aö gert var ráö fyrir aö viöskiptahalli á ár- inul980yröi 16 milljaröar króna og menn höföu af þvi verulegar áhyggjur aö viöskiptahalli yröi meiri m.a. vegna versriandi viö- skiptakjara. Nú hefur komiö i ljós, aö viöskiptahallinn veröur mun meiri og benda siöustu á- ætlanir til aö hann veröi um þaö bil 40 milljaröar. Fram hefur komiö aö kaup á þyrlunni veröi ekki þess vald- andi aö til lántöku veröi aö stofna, vegna þess aö ákveöiö sé aö selja aöra af flugvélum Landhelgisgæslunnar og jafnvel eitt skip, og þvi þurfti ekki aö taka lán i þessu skyni. Viö athugun á fjárlögum árs- ins 1980 kemur annaö I ljós. 1 skýringum meö fjárlagafrum- Halldór Ásgrímsson, alþingismaður. varpinu segir m.a.: „Framlag til landhelgissjóös lækkar aftur á móti um 350 milljónir og 690 þúsund. Skýr- ingin á þessu lækkaöa framlagi til landhelgissjóös er sú, aö gert er ráö fyrir aö önnur flugvél stofnunarinnar og Arvakur veröi seld og nemi söluandviröi samtals um 395 millj. kr. sem renni i landhelgissjóö til greiöslu á afborgunum og vöxt- um sjóösins”. Ifjárlögum ársins 1980 er sem sagt gert ráö fyrir þvf, aö ein flugvél og eitt skip veröi selt án þess aö nokkurt komi i staöinn. Hvort þaö er skynsamleg á- kvöröun aö selja flugvél, selja skip eöa kaupa þyriu skal ég engan dóm á leggja. Ég er þeirrar skoöunar aö viö Islendingar eigum aö halda uppi öflugri landhelgisgæslu. Land- helgisgæslan hefur unniö afrek á miöunum I kringum landiö skipti eftir skipti, og þaö er mikilvægt aö fjárveitingavaldiö standi vel aö baki þeim aöilum sem þar standa i eldlinunni, og reyni eftir fremsta megni aö skapa þeim viöunandi skilyröi. En þau vinnubrögö sem hér hafa veriö notuö eru óviöunandi og andstæö vilja Alþingis. Þaö er aö minu mati mjög alvarlegt mál, þegar stofnanir og jafnvel rikisstjórnir leggja i meirihátt- ar fjárfestingu án þess aö hafa tryggt sér heimildir löggjafa- þingsins til sliks. Þaö veröur aö krefjast þess, aö nákvæm grein veröi gerö fyrir heimildum til þess aö ráö- ast i þessi kaup. Ef sá háttur á aö rikja i framtiöinni aö fjár- festingar- og lánsfjáráætlanir séu aöeins marklaust plagg jafnvel þótt Alþingi setji fram aðvaranir þess efnis, aö alls ekki megi út af bregöa er illa komiö. Þaö hefur reynst okkur erfiölega aö ná tökum á okkar efnahagsmálum, og Alþingi hefur ekki farið varhluta af þeirri gagnrýni, en með ákvörð- unum sem þessum er ráöist aö vilja Alþingis, sem ekki er hægt aö líöa. Svipaö dæmi kom upp þegar flugmálastjóri keypti flugvél án þess aö hafa til þess réttar heimildir. Ef einstakar stofnanir, for- stjórar og aörir ágætir menn eiga aö hafa heimiíd til aö brjótast áfram fyrir hönd stofn- ana sinna, án tillits til þess ramma sem settur er verður seint ráöiö viö erlendar lántök- ur. Þeir vinna ef til vill stofnun sinni gott verk, en brjóta niöur vilja stjórnvalda í glimunni viö efnahagsvandamá 1. „Vil ti *úa því að framlög l ríkisstiórna næffi” be££ia tl O — Rætt við Steingrím Hermannsson um viðræðurnar í Luxemburg JSG — Þegar hinum formlegu viðræðum um aðstoð við Flugleiðir var lokið i Luxemborg siðdegis i gær, náði Timinn sambandi við Steingrím Hermanns- son, samgönguráð- herra, og spurði hann um gang viðræðnanna, og þá niðurstöðu sem nú liggur fyrir. „Ég vil segja að þetta hefur gengið svona sæmilega. Þaö sem fyrst og fremst hefur feng- ist er aö Luxemborgarar staö- festa aö þeir eru tiibúnir að greiöa þrjár milljónir dollara upp I rekstrartap vegna Atlantshafsflugsins strax i vet- ur en þessu geta þeir lagalega ekki lofað nema i eitt ár. Ég heföi náttúrlega helst viljaö fá þaö I lengri tima. í ööru lagi þá eru þeir tilbúnir aðfellaniöur lendingargjöld, og þeir eru opnir fyrir aö gera þaö um lengri tima en ár ef nauösyn krefur. Þetta er þvi töluvert framlag, sem er án allra skil- yrða. Aöaukistaöfesta þeir aö veröi fluginu haldiö áfram, þá muni þeir vinna meö okkur aö þvi aö finna leiöir til aö treysta grund- völl þess i framtiöinni. Svo út af fyrir sig er þetta jákvætt. Helstu vonbrigöin eru þau að ég heföi viljaö fá heldur lengri aölögunartima. Þaö má hins vegar segja aö þaö sé ekki útilokað aö sá aölögunartimi fáist, en þaö fer eftir hver niður- staðan veröur af þeirri athugun sem fer I gang strax.” Eru Luxemborgarar opnir fyrir áframhaldandi stuöningi eftir eitt ár? „Þeir leggja mjög mikla áherslu á aö halda fluginu áfram, og vilja vinna með okkur aö þvi eftir þetta eina ár. — Er þaö rétt aö Luxemborg- arar hafi sett þaö skilyröi aö nýtt flugfélag verði stofnaö um Atlantshafsflugiö aö ári? „Nei, það er rangt. Ekkert slikt skilyröi hefur veriö sett. Þvert á móti er tekiö fram aö framhaldið skuli athugaö meö opnum hug. Þaö var rætt um þennan möguleika, en ég lagöi mikla áherslu á aö viö teldum á þvi ýmsa annmarka, og ekki væri hægt aö tryggja aöstoö heima ef fariö væri aö stofna þetta félag hér I Luxemborg. Hins vegar er ljóst aö þeir geta ekki veitt eins mikla aöstoö ef um væri aö ræöa nýtt erlent félag, t.d. á Islandi. En þaö er misskilningur aö þeir hafi gert þetta aö skilyröi.” — Þaö hefur komiö fram aö British Airways vildi ganga inn i þetta flug? „Já þaö eru alls konar teikn á lofti. Margir vilja hlaupa inn i þaö tóm sem yröi ef Flugleiöir hætta. Þaösem ég tel mikilvægt i þessu sambandi er aö þeir hafa lofað aö vinna meö okkur aö framhaldi flugsins, og þá geri égmér vonir um aö öörum veröi ekki hleypt inn. En ég hef út af fyrir sig enga vissu fyrir þvi. Hitt er svo annað mál, aö þaö er siöur en svo aö þessi frum- skógur i fluginu sé nokkuö aö greiðast. Þaö eru boöin mjög lág fargjöld t.d. frá Brtíssel til New York, og viðar. Þannig aö langt er frá aö þetta striö sé búiö.” — Nú eru þetta orönar veru- legar upphæöirfrá báöum ríkis- stjórnum til styrktar fluginu. Er útlit fyrir að þaö sé nóg? Steingrímur Hermannsson ráðherra „Ég vil trúa þvi aö þaö sé nóg. Hins vegar held ég aö samhliða þurfi aö gera ýmsar breytingar á þessu flugi, jafnvel að fara yfir I breiöþotur, og tengja saman fraktflug og farþegaflug. Þaö getur tekið tima aö ná sliku upp, og þaö er einmitt meö þaö I huga sem ég hef lagt áherslu á lengri reynslutima.” — Hvernig hafa Flugleiöa- menn tekiö þessum hug- myndum? „Þeirhafa tekiö þeim vel, en hafa samt ekki úttalaö sig um hvort þetta veröi nóg. Mér skilst að þeir boði nú eftir helgina fundi meö markaösmönnum sinum, og stjórn félagsins, til að fjalla um máliö. Viö munum leggja þetta nú fyrir Flugleiöir, svo þeir hafi á boröinu hvers þeir geta vænst, frá islenskum og Luxemborgar stjórn- völdum.” — Er þeim meö þessum til- lögum sett skilyröi um tiöni feröa? „Nei, þaö hefur ekki veriö rætt. Þvi veröur eftirspurnin aö ráöa.” — Er þessi niöurstaöa i sam- ræmi viö þaö sem þiö vonuöust eftir? „Já, þetta er i raun og veru þaö sem viö gátum vonast eftir. Ég tel kannski mikilvægast aö þetta er alveg skilyröalaust og liggur alveg hreint á borðinu. Sömuleiöis liggur fyrir yfir- lýstur vilji stjórnvalda i' Luxem- borg til aö vinna meö okkur aö þvi aö tryggja þetta flug áfram. Þetta tel ég lika mjög mikil- vægt, þvi þaö hafa verið alls konar sögusagnir um aö þeir væru aö stofna nýtt flugfélag, og aö þeir ætluöu aö láta Luxair fljúga þetta o.sirv., en ég tel alveg ljóst, að minnsta kosti meöan þessi tilraun er gerö og athugun er gerö á framhaldinu, aö þeir muni ekki gera þaö. Vitanlega heföi ég viljaö fá lengri reynslutima, en aö ööru- leyti er ég nokkuö ánæeöur.” DC-8 þota Flugleiöa f flugtaki f Luxemborg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.