Tíminn - 20.09.1980, Qupperneq 4
4
Laugardagur 20. september 1980,
John Travolta hefur ekki enn mannab sig upp I aö bera upp bónorö.
í spegli tímans
John Travolta er ekkí
við eina fjölina felldur
Það ríður ekki við ein-
teyming ólánið, sem eltir
hana Oliviu Newton-John
þessa dagana. Ekki alls
fyrir löngu skýrði Spegill
Tímans frá því, að blaða-
menn í föðurlandi henn-
ar, Ástralíu, hefðu ákveð-
ið að þegja hana í hel.
Betur hefði komið sér
fyrir hana, ef John Tra-
volta hefði tekið þá sér til
fyrirmyndar. En svo fór
nú ekki. Hann er nýlega
búinn að vera í trúnaðar-
stuði við blaðamann, sem
auðvitað lak öllu í heims-
pressuna. Þar tjáði John
sig um ástarlíf sitt og þær
konur, sem hann hefur
staðið í ástarsambandi
við og síðan yfirgefið.
Meðal þeirra er aumingja
Olivia. í framhaldi af
þessum uppljóstrunum
bætti John því við, að
hann hefði oft verið kom-
inn á fremsta hlunn með
að bera upp bónorð við
vinkonu sína, Marilu
Henner, en alltaf brostið
kjark, þegar til átti að
taka. — Þetta hefur oft
kömiðfyrir mig, líka með
aðrar konur. Hvað mig
varðar, getur verið um
sólarhringsást að ræða. Á
fyrsta klukkutímanum
finnst mér, að ég eigi að
biðja stúlkunnar, en þeg-
ar degi tekur að halla, hef
ég skipt um skoðun, segir
Travolta. Hann er stadd-
Olivia er me&al hinna forsmábu.
ur í London þessa dagana
til að auglýsa síðustu
mynd sína, Urban Cow-
boy, en þar leikur hann
einmitt á móti Oliviu
Newton-John. — Jú, við
áttum okkar ævintýri. Ég
varð ástfanginn, en núna
er hún með einhverjum
öðrum. Besta endingu af
ástarævintýrum Johns
Travolta hafði sarnband
hans við leikkonuna
Diana Hyland, en hún dó
úr krabbameini í örmum
hans.
bridge
Þrátt fyrir aö mikiö ungmennastarf sé
innan bridgelþróttarinnar i Hollandi hef-
ur þaö ekki boriö þann árangur sem
skyldi og á Evrópumótinu i Israel uröu
Hollendingar neöstir. Islenska liöiö átti
heldur ekki i neinum vandræöum meö aö
vinna þá meö mesta mun, 20:5. Þaö var
einkum sagnvlsin sem varö Hollending-
unum aö falli og hér er eitt dæmi um þaö.
Noröur
S. D 107532
H. A3
T. KG3
L.65
Vestur Austur
S. G84
H.KG8
T. 10976
L.DG2
S. 96
H.D9
T. D5
L. AK108742
Suöur
S. AK
H. 1076542
T. A842
L. 9
lopna salnum sátu Sævar Þorbjörnsson
og Guöm. Hermannsson i NS og Van der
Lit og Slot i AV.
Vestur
3lauf
5lauf
Noröur
pass
3spaöar
pass
Austur
2spaöar
pass
pass
Suöur
pass
4spaöar
dobl
2 spaöar austurs gátu haft ýmsa merk-
ingu, allt frá sterkri hálitarhendi niöur i
veika hendi meö lauflit. Sævar stakk inn 3
spööum sem Guömundur hækkaöi um-
svifalaust i geim. I raun vinnast alltaf 4
spaöar þvi hjartaö friast en Slot fórnaöi
og gaf út 500. I lokaöa salnum sátu Skúli
Eínarsson og Þorlákur Jónsson i AV en
De Bruyn og Westra I NS.
Vestur Noröur Austur Suöur
— pass 2lauf pass
3lauf 3spaöar pass pass
4lauf pass pass pass
3 lauf Þorláks lofuöu opnunarstyrk og
þaö dró heldur betur kjarkinn úr Hollend-
ingunum. 4 lauf fóru tvo niöur en Island
fékk 400 nettó eöa 9 impa.
— Allt I lagi. Ég skal biöa eftir
henni i 10 minútur enn. En þá er
ég líka farinn.
— Þaö er verst, aö þeir skuli
ekki lengja vikuna. Þá gætir þú
unniö meiri eftirvinnu.
— Væri þér sama þó aö þú
hættir aö kalla mig „Gömlu
þina”?
— Þaö kemur varla fyrir nú
oröiö, aö ég þurfi aö reiöast yfir
þvi, aö litiö er á mig sem kyn-
tákn.
— Þaö er ekki nóg meö þaö, aö
hún ljúgi. Hún gefur lika upp
heimildamenn sina.
— En fröken Jónina hefur af
rausn sinni ánafnaö ykkur fjöl-
skyldubibliuna.
— Viö skulum gefa henni
minnimáttarkennd. Látum eins
og viö sjáum hana ekki.