Tíminn - 22.10.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.10.1980, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Olíusala tíl Flugleiða stöðvuð um mánaöamótin? — rekstrarfjárstaða félagsins gífurlega slæm og úrbóta er þörf strax um mánaðamótin FRI — Skýrsla samgönguráö- herra um Flugleiöir hf. var lögö fram á Alþingi i gær og greindi Steingrimur Hermannsson samgönguráöherra frá efni hennar. Allmiklar umræöur uröu um máliö á þinginu og voru fjölmargir þingmenn á mæl- endaskrá. Samkvæmt þessari skýrslu er ljóst aö fjárhagserfiöleikar Flugleiöa eru geysimiklir en ráöherra sagöi i máli sinu að þaö heföi komiö honum á óvart hve miklir þeir væru i raun og veru. Hann sagöi ennfremur aö fjárhagsvandi félagsins vegna Atlantshafsflugsins væri smá- munir samanboriö viö vanda félagsins i heild. Steingrimur sagöi aö hann efaöist um aö félagiö ætti til veö fyrir þeirri rikisábyrgö sem rætt er um aö veita félaginu en þaö hefur beðið um tæplega 6,5 milljaröa kr. til þess aö bæta rekstrarfjárstöðu sina en þetta cr liöur i frumvarpi til laga sem lagt var fyrir Alþingi á mánu- dag en umræöur um þaö hafa ekki fariö fram enn. Rekstrarerfiöleikar félagsins munu vera orönir svo knýjandi nú aö jafnvel getur komiö til stöövunar á oliusölu til félagsins en þau viöskipti fara fram meö staögreiöslu, og sagöi Stein- grimur aö einhver lausn á þessu máli yröi aö liggja fyrir um mánaöamótin næstu en forráöa- mennfélagsins, hafa lagt mikla áherslu á aö fá helming 6,5 milljarðanna fyrir þann tima. I lok máls sins sagöi Stein- grimur aö mynd sú sem hann heföi dregið upp af Flugleiöum væri mjög ljót. Hins vegar vildi hann aö til- raun yröi gerö til aö bæta úr þessu i samráöi viö stjórn og starfsliö félagsins og aö sú til- raun yröi gerö i góöri trú. — En ég hef ekki miklar vonir um aö þaö takist nema þvi aö- eins aö starfsandinn innan félagsins batni, sagöi Stein- grimur— þaö hlýtur aö vera ein af aöalforsendum málsins" —Sjá nánar á bls 2. Reykjavikurbúum hafa gefist mörg tækifæri nú f haust til þess aö fylgjast meö þvl frá Ægisiöunni er himinn og haf renna saman I rauö- gullinn bjarma. Slik sjón þreytir ekki augaö, og er óskandi aö dagar sem þessir veröisem flestir, áöur en skammdegiö leggst yfir meö öll- um sinum drunga. Timamynd — Róbert. Sárafá félög ekki með — segir blaðafulltrúi ASl um þátttöku i verkfallinu 29. okt. HEI — ,,Ég hef ekki tölur um þátttöku, en þaö er óhætt aö segja aö þaö séu aöeins sárafá verkalýösfélög sem ekki eru meö”, sagöi Haukur Már Har- aldsson, hjá ASl er hann var spurður hve eins dags verkfalliö 29. október nk. yröi vfötækt. En verkfallsboöun átti sem kunnugt er í siöasta lagi aö hafa borist fyrir miönætti i nótt er leiö. Verðlagsgrundvöllur tilbúinn: BÚVÖRUR HÆKKA EKKI HEI — Samkvæmt áreiöanlegum heimildum Timans, mun gerö verölagsgrundvallar nú vcra lok- ið. Hinn nýi grundvöllur mun ekki leiöa til veröhækkana á útsölu- J tfar nei kvæi ð v iðl bröj gð m . ASÍ Og ; ríki sst tjó irni: nni” — Stjórnin hafnaði þríhliða viðræðum og ASl vill ekkert ræða nema sáttatillöguna, segir Þorsteinn Pálsson HEI — ,,1 ljósi neikvæöra svara bæöi frá ASt og rikisstjórninni sá- um viö ekki grundvöll til aö halda viöræöum áfram i dag”, svaraði Þorsteinn Pálsson i gær spuröur um árangur af fundi ASl og VSl meö sáttasemjara i gær. Form þess fundar var þannig, aö ASl og VSÍ sátu hvort lít af fyrir sig en sáttasemjari bar boö á milli. 1 framhaldi af bréfi VSI til sáttasemjara sl. föstudag þar sem farið var fram á að hann kannaði möguleika á þrihliða við- ræöum VSl, ASI og rikisins, sagði Þorsteinn, aö þeir hafi i dag innt hann eftir viðbrögðum þessara aðila. Komið hafi fram að rikis- stjórnin hafi á fundi sinum i gær- morgun hafnað að taka þátt i slik- um viðræðum, svo og að engin ný viðhorf væru af hálfu ASÍ, þar væru menn einungis reiðubúnir til viðræðna um sáttatillöguna og ekkert annað. Þetta sagöi Þorsteinn, að þeim VSÍ-mönnum þættu afar neikvæð viðbrögð. Ljóst væri, að ef sam- komulag ætti að nást, yrðu báðir aðilar að hreyfa sig eitthvað. VSI teldi að um verulega opnun hefði verið aö ræöa i ályktun sam- bandsstjórnarfundar VSI sl. mið- vikudag þar sem bent hefði verið á ýmsar leiðir sem opnað gætu nýja fleti i viðræðunum. M .a. lýsti VSÍ sig þá reiöubúið til samninga á þeim grundvelli að allir hópar innan ASI fengju þá 14.000 kr. kauphækkun, sem BSRB-sam- komulagið hljóðaði upp á. VSI hefði hins vegar ekki getað metiö stöðuna öðruvisi i gær en að lokað hefði verið fyrir þær leiðir. Þorsteinn sagði það hafa valdið VSI-mönnum miklum vonbrigð- um, að ekki skyldi vera hægt að koma á þrihliða viðræðum og hefði afstaða rikisstjórnarinnar enn frekar komiö mönnum spánskt fyrir sjónir, i ljósi þess, að hún hefur, sem kunnugt er, fallist á að taka upp viðræður viö ASI. Það kom fram, að mikil áhersla verður nú lögð á að reyna að finna lausn á prentaradeilunni af hálfu VSI og hafði verið boðað til fund- ar með Félagi prentiðnaðarins og HIP i gærkvöldi. veröi búvara frá þvi samkomu- lagi sem varö um bráöabirgöa- verölagningu í byrjun september sl. Ætti þvi ekki aö veröa um neina veröhækkun á búvörum aö ræöa fyrr en vegna visitöluhækk- unar 1. des. nk. Grafískir taka forystuna Sjá Baks. Eftirlitsmenn og Flugleiöamenn ósammála um tapið á félaginu á þessu ári: 5 milljarða mismunur FRI — i skýrslu eftirlitsmanna meö Flugleiöunt, Birgis Guö- jónssonar og Baldurs Óskars- sonar, sem birt var sem fylgi- skjal meö skýrslu samgöngu- ráöherra er aö finna ýmsar at- hyglisverðar tölur. Þar segir m.a. aö bókfærö staöa eigin fjár Flugleiöa hf. pr. 30.6. 1980 þar með taliö hlutafé var neikvæö um 8.342.000 dollara en einu og hálfu ári fyrr, eöa 31.12.1978 var eigið fé fyrirtækisins 23.235.000 dollarar og haföi þvl versnaö um 31 millj. dollara eöa um 16.6 milljaröa kr. á þessum tima. Ennfremur segir I þessari skýrslu, að alls séu eignir fé- lagsins veðsettar fyrir um 43 milljarða kr. og að flugvélar (DC-10 undanskilin) fyrirtækis- ins séu metnar á 63,7 millj. doll- ara en veðsetningar þessara véla séu rúmar 65 millj. dollara eöa yfir 100%. 1 þessari skýrslu er leitt getum að þvf, að tap félagsins á þessu ári sé væntanlega um 7 milljarðar kr. en félagið hefur Framhald á bls 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.