Tíminn - 22.10.1980, Blaðsíða 16
Gagnkvæmt
tryggingafélag
WSIGNODE
Sjálfvirkar bindivélar
Sjávarafurðadeild
Sambandsins
Simi 28200
Miðvikudagur 22. október 1980
Grafiskir ákveða atkvæðagreiðslu um allsherjarverkfall frá 5. nóv. n.k.:
„Grafiskir ætla að taka
að sér forystuna”
— „og taka upp merkið þar sem hinir skildu það eftir”, segir formaður félagsins
HEI — Stjórn og trúnaöar-
mannaráö Grafiska sveinafé-
lagsins samþykkti i gær aö láta
fara fram allsherjaratkvæöa-
greiöslu innan félagsins um
hvort boöa skuli til verkfalls frá
og meö 5.nóvember n.k. Þar
meö fara grafiskir ekki i verk-
fall 2!t.okt. frekar en hin tvö
prentiönaðarfélögin.
Félagsfundur i Grafiska
sveinafélaginu i fyrradag hafði
samþykkt áskorun til stjórnar
og trúnaöarmannaráðs um að
boða til allsherjarverkfalls frá
og með 29. des. auk þess að fella
niður áður samþykktan fyrir-
vara um að fara þvi aðeins i
verkfall, að hin prentiðnaðarfé-
lögin geröu það lika. En þar sem
ekki var nema um helmingur
félagsmanna á fundinum i
fyrradag og margir þeirra sátu
hjá, var þessi ákvörðun um alls-
herjaratkvæðagreiðslu tekin, að
sögn formanns Grafiskra, Ar-
sæls Ellertssonar.
Arsæll var spurður hvort ekki
væri slæmt að rjúfa samstöðu
þessara þriggja prentiðnaðar-
féíaga, sem til stendur að sam-
eina endanlega i eitt félag um
n.k. áramót.,,Hugmyndin er
alls ekki að kljúfa neitt. Þetta er
eingöngu spurning um það,
hvaða félag hefur mestu stétt-
arvitundina. Það er ljóst að for-
ysta HIP er ekki nógu samstiga
og þvi ætlar Grafiska sveinafé-
lagið með þessu að taka að sér
forystuna og taka upp merkið
þar sem hinir hafa skilið það
eftir”, sagði Arsæll.
Arsæll benti á, að sameigin-
legur fundur allra þriggja félag-
anna fyrir nokkru hafi sam-
þykkt að standa fast á þeim
þrem punktum, sem mest hafa
verið ræddir i sambancu vio
skermavinnuna á dagblöðun-
um, þ.e. um takmarkaða inn-
skriftblaðamanna á skerma um
að útlitshönnun á skerma heyri
alfarið undir prentara og að fólk
sem vinnur á skermum i
auglýsingadeildum sé prent-
iðnaðarfólk. Taldi hann öruggt
að prentiðnaðarfólk standi ekki
upp frá samningum nema að
þessir punktar verði „allir okk-
ar megin” eins og hann sagði.
Minnst var á, að sumir teldu
þegar búið að semja um a.m.k.
1. punktinn, varðandi blaða-
menn. Það sagði Arsæll nú
kannski mesta glæpinn, að sum-
ir samningamannanna virðast
hafa gengið þvert á vilja hins al-
menna félagsmanns. Það laus-
lega samkomulag sem lægi
fyrir varðandi innskrift á
skermana væri i algerri óþökk
alls Grafiska sveinafélagsins og
áreiðanleg meirihluta HÍP, þótt
samninganefndin virðist hafa
ætlað að versla með þetta atriði.
Vegna þessa máls mun
Magnús E. Sigurðsson, sem val-
inn var sem talsmaður allra
prentiðnaðarfélaganna i samn-
ingaviðræðunum hafa sagt
þeirri stöðu af sér.
Arsæll sagði ljóst.af málflutn-
ingi Magnúsar i Iðnó i fyrradag,
að ef ekki verði farið i allsherj-
arverkfall jafngildi það þvi, að
ekki verði gengið fram af fullum
krafti i þvi að ná fram fyrr-
nefndum þrem punktum. Magn-
ös telji sig ekki geta unnið með
þeim mönnum sem séu reiðu-
búnir til þeirra „spönsku versl-
unarhátta” að prðtta og versla
með þá.
BANDARÍSKT
FYRIRTÆKI
METUR VÉLAR
FLUGLEIÐA
FRI — 1 máli Ragnars Arnalds
fjármálaráðherra um skýrslu
sa mgöngum á la ráöherra á
Alþingi I gær kom fram aö fengnir
hafa veriö menn frá bandarísku
fyrirtæki til þess aö meta flugvél-
ar fyrirtækisins og komu þessir
menn til landsins á mánudags-
morguninn.
Jafnframt þvl sem þeir kanna
flugvélar, og varahlutaeign
félagsins munu tveir menn,
Sveinbjöm Hafliðason lögfræö-
ingurúrSeðlabankanumog Pétur
Stefánsson verkfræöingur hafa
verið fengnir til þess að meta
aðrar eignir félagsins.
Fjármálaráðherra sagði að von
væri á þvl aö þessari úttekt lyki
um næstu mánaðamót.
Andstæöingar Höfðabakkabrúar:
Hafa kært byggingu
hennar til ráðherra
Aðstandendur
undirskriftarsöfnunar-
innar gegn Höfðabakka-
brúnni hafa enn ekki
gefið upp alla von um að
geta komið i veg fyrir
byggingu brúarinnar,
þrátt fyrir að borgar-
stjórn hafi samþykkt
hana, þvi nú hafa þeir
kært byggingu hennar til
Svavars Gestssonar, fé-
lagsmálaráðherra, sem
æðsta stjórnvalds skipu-
lagsmála i landinu.
Telja þeir að með byggingu
brúarinnar séu borgaryfirvöld að
fara af ásetningú I kringum Aðal-
skipulag Reykjavikur sem hlaut
staðfestingu skipulagsyfirvalda
rikisins árið 1967 og sem þeir telja
nú i fullu gildi. Vitna kærendur
m.a. til ákvæða skipulagslaga um
aðfélagsmálaráöuneytinu beri aö
hlutast til um að mannvirki, sem
tvimælalaust brjóti i bága viö
gildandi skipulag, veröi fjarlægö
á kostnað sveitarsjóðs.
1 yfirlýsingu frá andstæöingum
Höföabakkabrúarinnar segir
m.a.:
„Þeir aðilar hjá Reykjavikur-
borg, sem að skipulagsmálum
vinna hafa sterklega og itrekaö
Framhald á bls 19
\ ist er oröiö haustlegt i Reykja-
vík, þó aö Reykvikingar hafi ekki
þtirftaöglima viö snjóþyngsli enn
scnt koinið er. Þegar hafa veriö
nokkrar frostnætur og dugir þaö
til þess, að á Tjörnina er koniiö
mvndarlegasta skautasvell. A
sólfögrum oglygnum dögum, eins
og þeint, sent Reykvikingar hafa
átt aö fagna aö undanförnu, er
alveg kjörið aö fá sér smáskauta-
sprett á Tjörninni. Það er ekki viö
þvi að búast, að fólk sé komið i
æfingu á fyrsta skautasvelli
vetrarins, en það er um aö gera
aö gefast ekki upp, þó aö stundum
vilji jafnvægið bregöast.
Timamvnd: Róbert
Fleiri og fleiri fá sér
TIMEX
mest selda úrið