Tíminn - 15.11.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.11.1980, Blaðsíða 1
íslendingaþættir fylgja blaöinu í dag Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Missa tvö stór trygging- afélög starfsleyfi sín? Utlit er fyrir að þau verði undir lágmarksgjaldþoli JSG— Tryggingaeftirlit rikisins hefur aO undanförnu unniö aö útreikningi á gjaldþoli trygg- ingafélaga landsins, en leyfi fyrir áframhaldandi starf- rækslu tryggingafélaganna er bundiö þvi skilyröi aö gjaldþoliö nái ákveönu lágmarki. Þó ekki hafi veriö hægt aö fá upplýst hvert gjaldþol hinna einstöku tryggingafélaga er nú, má af ársreikningum þeirra fyrir næsta ár, sem þegar liggja fyrir og gjaldþolsútreikningarnir eru byggöir á ,álykta aö I þaö minnsta tvö af stærstu trygg- ingafélögunum standí nú afar veikt og geti þvi átt i miklum erfiöleikum meö aö fá fram- lengt starfsleyfi sitt strax á næsta ári. Þessa ályktun má draga af hlutfalli bókfærös fjár og eigin iögjalda tryggingafélaganna, en Erlendur Lárusson, forstööu- maöur Tryggingaeftirlitsins staöfesti i samtali viö Timann aö sterk fylgni væri yfirleitt milli þessa hlutfalls og gjald- þolsins, þó duldir varasjóöir gætu sett strik i reikninginn. Ef reiknaö er meö aö 25% hlutfall sé nálægt lágmarkinu, eins og láta mun nærri, þá viröast tvö stór tryggingafélög, Trygging h.f. og Almennar tryggingar h.f., standa afar illa um þessar mundir, meö um 12% og 8% hlutfall. Hins vegar kemur I ljós aö önnur félög, t.a.m. Brunabóta- félag Islands, Hagtrygging h.f. og Tryggingamiöstööin, standa mjög vel. Nokkur félög, s.s. Samvinnutryggingar og Sjóvá, viröast státa af mjög sæmilegri stööu. Nokkur ágreiningur hefur veriö milli tryggingafélaganna og Tryggingaeftirlitsins, um hvernig gjaldþoliö skuli reikn- aö, og hafa sum félögin veriö ósátt á aö stuöst er eingöngu viö fasteignamat, þegar verömæti eigna er ákveöiö. Samkvæmt reglugerö er félögunum gefinn kostur á aö gera athugasemdir viö útreikninga eftirlitsins, áöur enendanleg niöurstaöa er dreg- in um stööu þeirra, en aö sögn Erlends Lárussonar hafa at- hugasemdir þeirra viö hina nýju útreikninga ekki borist, og þvi ekki aö vænta aö niöurstööur veröi ljósar fyrr en um næstu mánaöamót. Reglugeröin kveöur einnig á um aö félögum sem eru undir tilsettu gjaldþolslágmarki skuli gefinn frestur, sem ráöherra ákveöur nánar, til aö bæta stööu sina. Takist þeim þaö halda þeir aö sjálfsögöu leyti sinu. Hins vegar er ekki liklegt aö félögum sem tæpt standa reynist auövelt aö selja ný hlutabréf i björgunarskyni. Stórt tap gegn heims meisturum islendingar og V-Þjóöverj- ar léku f gærkvöldi landsleik i handknattleik og lauk lciknum meö sigri Þjóöverj- anna 16-9. islendingarnir byrjuöu ieikinn mjög vel og áhorf- endur voru vel nteö á nótun- um og hvöttu landann óspart en þaö dugöi ekki, Þjóöverj- arnir voru betri á enda- sprcttinum og sigruöu. Sigur þeirra var þó i stærra lagi þvi islendingarn- ir áttu ntörg gullin tækifæri sem fóru forgöröum fyrir niikinn klaufaskap. Umsögn urn leikinn ásamt viötölum eru aö venju á iþróttasiöu á bls. 15. Báta rak á land á Borgar- firði eystra AM — Aöfaranótt fimmtudgs siitnuöu tveir bátar upp frá smá- bátabryggjunni innan viö Hafnarhólma á Borgarfiröi eystra og rak þá á land. Voru þetta þeir Björgvin og Högni 11 og 10 tonna, og mun sá siöarnefndi ónýtur, en hinn talinn viögeran- legur. Hefur Biörgvin nú veriö dreginn á land og er veriö aö kanna skemmdir á honum nánar. Bátarnir slitnuöu upp i norö- austan illviöri um nóttina, en fjórir bátar lágu viö bryggjuna og högguöust tveir þeirra ekkert, enda mun þaö þrátt fyrir allt hafa komiö mönnum á óvart aö bátum gæti veriö hætta búin um nóttina, aö sögn Magnúsar Þorsteinsson- ar, oddvita. Nokkrir bátar hafa róiö á lfnu frá Borgarfiröi eystra i haust og aflaö all vel. Siguröur Sveinsson var tvimælalaust besti maöur islenska liösins I gærkvöldi og gnæfir hér hátt yfir varnarmenn Þjóövcrja og skorar. Tlmamynd G.E. OLAFUR VEKUR AT- HYGLI í MADRID Kás — ólafur Jóhannesson utan- rikisráöherra, vakti mikla at- hygli er hann hélt i gær ræöu á Madridfundinum um öryggi og samstarf i Evrópu. Talaöi hann á eftir fulltrúa Sovétrikjanna, sem haföi haldiö því fram aö Afgan- istanmáliö skipti litlu máli sem forsenda fyrir kólnandi sambúö austurs og vesturs. Sagöi ólafur aö ihlutun Sovétrikjanna I Afgan- istan heföi haft afar óheppileg áhrif á slökunarstefnuna og alla viöleitni til aö bæta sambúö þjóöa. Ólafur sagði i ræöu sinni: „Þessi hernaöarihlutun er ósamræmanleg anda og grund- vallarmarkmiðum lokasam- þykktarinnar. Mikill meirihluti þjóða heims lýsti sig andvigan innrásinni meö stuöningi viö ályktun allsherjarþings Samein- uöu þjóöanna 14. jan. sl. Leysa veröur Afganistanmáliö sem allra fyrst fyrst á viöunandi hátt, ef viðeigumaökoma aftur á þeim jákvæöu aöstæöum sem stuölaö geta aö slökun. Ef langtimasjónarmiö eru höfö i huga ætti viöhald slökunarstefn- unnar aö vera aðalviöfangsefni okkar, hversu erfið sem staöan i alþjóöamálum kann aö vera. Viö veröum aö vona aö þrátt fyrir erfiöar aöstæöur muni hreinskilnar umræöur hér I Mad- rid beina okkur aö nýju inn á rétt- ar brautir þannig aö viö getum tekiö til viö þar sem frá var horfiö aö auka og bæta samskipti þjóöa j okkar. Arangur starfs okkar hér kann ! aö veröa visbending um þaö, ! hverjar likur séu á árangri i viö- j leitni okkar til aö tryggja áfram- ! haldslökunarstefnunnar. A sama I hátt myndi batnandi ástand i al- þjóðamálum auka mjög likurnar á aö raunhæfur árangur veröi af þessari ráöstefnu. Markmiö okkar hlýtur aö vera aö vinna aö framkvæmd allra i þátta Helsinkisamþykktarinnar og semja um leiöir er tryggi framgang hennar á öllum sviöum. Viö þurfum aö geta tryggt betri og markvissari fram- kvæmd á öllum meginreglum og ákvæöum samþykktarinnar. Jafnvel þótt viö viðurkenndum öll aö undirritun lokasamþykktar Helsinkifundarins hafi veriö sögulegur viöburöur, þá er staöreyndin engu aö siöur sú, aö raunverulegt gildi lokasam- þykktarinnar er komiö undir framkvæmdinni. Nokkurárangur hefur náöst á vissum sviöum, en þaö veröur hins vegar aö viöur- kennast aö of mörg ákvæöi hafa ekki veriö framkvæmd á viöun- andi hátt”.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.