Tíminn - 15.11.1980, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.11.1980, Blaðsíða 4
4 í spegli tímans Heimili Zsa Zsa Gabor og 7. eigin- manns hennar, Michael O’- Hara er ekk- ert slor. Þau snæöa hversdags af guildiskum. Zsa Zsa Gabor tók nýlega þátt i stórkostlegri skraut- sýningu i sjónvarpinu i Ham- borg. Þar, eins og ann- ars staöar, þar sem hún sýnir sig, lagöi hún alla karl- menn að fótum sér, en náttúrlega fór stjórnandi sýningarinnar, Ilja Richter, meö sigur af hólmi, og fór svo aö hún bauð honum að koma til Hollywood að heim- sækja sig. Ef hann lætur af veröa, verður honum ekki i kot visað, eins og meöfylgj- andi myndir bera meö sér. Zsa Zsa býr i mikilli glæsi- höll með 7. eiginmanni sinum, Michael O’Hara, sem er virtur lögíræðingur. Zsa Zsa, sem er þekktari fyrir marga eiginmenn en sem frábær leikkona, hefur lýst þvi yfir, að eiginmenn hennar verði aö vera eldri en hún, hún liti ekki við sér yngri mönnum. Best sé, að þeir séu u.þ.b. 2 árum eldri en hún. Þar sem vitað er, að núverandi eiginmaður Fina einbýlishúsiö keypti Zsa Zsa af milljóna- mæringnum Howard Hughes á sinum tima. hennar er 52ja ára, þykir hún gefa i skyn, að hún sjálf sé ekki nema fimmtug. Það segja þeir, sem kunnugir eru, algerlega útilokað. Styðjast þeir við allan þann tima, sem Zsa Zsa hefur verið i sviðsljósinu, öll hjónaböndin og liflengd þeirra o.s.fr.v. og komast að þeirri niöurstöðu að hún geti alls ekki verið yngri en 65 ára! En hvaða máli skiptir hvað árin eru mörg? Viö sjáum á myndunum glæsi- lega konu á „óákveðnum ” aldri, og er það ekki nóg? Liklega er Zsa Zsa hér aö bjóöa stjórnanda sjónvarps- upptökunnar, Ilja Richter, i heimsókn. Þaö allra helgasta I 30 herbergja einbýiishúsi Zsa Zsa er músikherbergiö. Þar sest Zsa Zsa oft niður viö pianóið og leikur ljúfa tónlist. Hin síunga Zsa Zsa býður gestum heim Laugardagur 15. nóvember 1980. -------1-------------------- krossgáta 3445. Lárétt 1) Drykkur. 6) Miði. 8) Rit. 9) Auð. 10) Bára. 11) Vond. 12) Fljót. 13) Hljóm. 15) Drepa. Lóðrétt 2) Fljót. 3) Bar. 4) Gen. 5) Andúð. 7) Óvirða. 14) Bar. Ráðning á gátu No. 3444 Lárétt 1) Kjaft. 6) Áta. 8) Tær. 9) Sæl. 10) Nót. 11) Nem. 12) Ask. 13) Eir. 15) Ullin. Lóðrétt 2) Járnmél. 3) At. 4) Fastari. 5) Stund. 7) Slaka. 14) II. bridge Nr. 228. Þó furðulegt væri hafði suöur allnokkuö sér til málsbóta þegar hann þurfti að verja þaö fyri óánægðum sveitarfélögum aö hafa fariö niður á 3 gröndum. Norður. S. 3 H. KG5 T. KG10763 L. 863 Austur. S.KDG8654 H. 10642 T. 5 L. 10 Suður. S. A107 H. AD T. 982 L. AD974 Suður spilaði 3 grönd eftír að austur haföi komið inná á 3 spöðum og vestur spilaöi út spaðaniu. Suður gaf fyrstu tvo slagina en tók þriðja spaöann með ásnum. Það er von að einhverjir spyrji hvernig hægt sé að fara niður á spilinu eftir þessa byrjun. Austur kemst jú aldrei inn og þó suður spili tigli á kóng fær vörnin samt aðeins 4 slagi. Suöur var lika nokkuð von- góður þangað til vestur henti tigulásnum i spaðaásinn. Nú fór i verra. Það leit allt út fyrir að vestur hefði átt tigulásinn annan í upp- hafi og væri búinn aö búa tíl hugsanlega innkomu á drottninguna i austri. Suður lagöi þvi alla von um tigulslagi á hilluna en fór þess i staö inni borð á hjartakóng og svinaði laufi. Vestur drap á kóng og spil- aöi auðvitað tigli og suður fór upp meö kóng. Vestur fékk svo seinna á tigul- drottninguna og laufagosann en suöur fékk bara skömm i hattinn. Vestur. S. 92 H.9873 T. AD4 L.KG52

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.