Tíminn - 15.11.1980, Page 8
8
Laugardagur 15. nóvember 1980.
SJÓRINN
OG ÞORPIÐ
frelsi, og nú er það vist alveg
hömlulaust. Hver getur gert það
sem hannlystir, en bannfæring-
ar frá þeim er leggja til viður-
kenningar i listum og það kem-
ur lika á daginn að margir sem
truastir voru kennisetningunni
eru nú að þreifa sig áfram i ljós-
inu og eru byrjaðir að mála
figurativt aftur.
Ég hirði ekki um að nefna
nöfn
Ég hygg að þessi trúarbrögð
hafi meðal annars orðið til þess
að Kjartan Guðjónsson var um
tima svo til hættur að mála. Var
áhugalaus um myndlist á vissu
skeiði, en nú á siðustu árum hef-
ur áhugi hans vaknað og rekur
nú hver sýningin aðra, og sýn-
ingin er hann hélt á Kjarvals-
stöðum fyrir tveimur árum er
liklega ein besta sýning sem
hann hefur haldið um dagana.
Kjartan Guðjónsson er i hópi
reyndari málara okkar og til-
heyrir þeirri kynslóö málara, er
eigi áttu aögang aö hinu skandi-
naviska og noröurþýska
málverki, er lagt hefur grund-
völiinn aö Islenskri myndlist svo
lengi, því stríö var i Evrópu,
þegar hann hóf listnám, eöa
framhaldsnám i myndlist, og
þvi hélt hann til Bandarikjanna,
en I þeim hópi eru fleiri er eins
var ástatt um, og má þar nefna
Kristján Daviösson, örlyg
Sigurösson, Valtý Pétursson og
ýmsa fleiri á þessum aldri.
Abstraktmaðurinn
Kjartan Guðjónsson
Eftir heimkomuna gekk
Kjartan siöan i hið lokaða
klaustur abstraktmanna, þar
sem enga skimu var að finna, og
Jónas Guðmundsson
MYNDLIST
má segja að hann hafi látiö þar
meira af hendi rakna en margir
aðrir, er hurfu frá figurativum
myndum, þvi Kjartan var og er
afburða teiknari bæði i stil-
færslu og myndbyggingu, sem
og i eftirhermuteikningu, þar
sem keppt er viö ljósmyndina.
Slikur maður færir nefnilega
stærri fórnir en þeir, sem að
upplagi eru myndlistarmenn
tengdari abstraktvinnu hvort
eö er en almennri teikmngu.
En heimurinn breytist og
mennirnir með. Hinn haröi agi
abstraktlistarinnar er ekki
lengur til. Eftir strangtrúarlegt
meinlætalif i listum, kemur
Kjartan Guöjónsson viö eitt verka sinna.
(Timamynd GE)
Þar voru abstraktmyndir, en
einnig tekiningar yið fornrit og
ýmsar lærðar, bækur, er hann
haföi gert á liðnumárum.
Það má þó með nokkrum rétti
segja aö fátt nýtt hafi komið
fram á þessari sýningu, nema
að þarna voru mörg góö og
skemmtileg verk, gjörð af heill-
andi gleði og áhuga.
En nú er annað uppi á ten-
ingnum. Málarinn hefur brotið
blað i sögu sinni og sýnir nú
figurativar myndir, mismun-
andi mikiö stilfærðar, og
sýninguna nefnir hann SJOR-
INN OG ÞORPIÐ og fer nafn-
giftin i kjölfarið á þeim mynd-
um er á sýningunni eru, en
myndefnið er frá sjónum.
Sjórinn og þorpið
tslenska fiskiþorpið, útgerðin
og manneskjan þar, ásamt
veðurfari, fugli og fiski, hefur
lengi verið yrkisefni isienskra
skálda og málara. Jón úr Vör
sótti föng sin i þorpið, það sama
gerði Þorvaldur Skúlason
Snorri Ainbjarnar og Gunnlaug-
ur Scheving, og eru þá fáir tald-
ir af öllum þeira aragrúa lista-
manna er fengist hafa við þetta.
Það er þvi ekki i svo litið ráðist
að gjöra sjálfstæða sýningu um
þetta efni, án þess aö þiggja af
nesti forveranna.
Þetta tekst Kjartani býsna
vel, eða furðu vel, ef við það er
miðaö, hvað áður hefur verið
unnið. Hin stilfærða teikning og
einföldunin, ásamt sjálfstæði i
lit, gefur sérstöðuna.
Ef til vill eru þó teikningarnar
(rauö og svört krit og vatnslit-
irnir) persónulegri en málverk-
in, en gæfa þeirra og gengi virð-
ist einkum ráðastaf þvi, hversu
sterkt þau tengjast eldri mynd-
um listamannsins, eða þeim
myndum er við sáum fyrir
tveim árum.
Góð dæmi um tengingu viö
fyrri verk eru myndir eins og
Leikur í fjörunni, Útmánuöir og
Mæðgurnar, sem svo verða
einnig til nýir hlutir, nýr tónn og
vil ég þar nefna myndirnar úti á
Nesi og Dagmál og nokkrar
fleiri mætti nefna.
Kjartani er lagið að finna
smámuni til að lifga myndir,
þvottur á snúrum og margt ann-
að verður til þess að skreyta
myndir og uppörva þær, og
lifga.
Þá teiknar Kjartan áhöfnina á
Arsæli Sigurðssyni frá Hafnar-
firði og eru það skemmtilegar
myndir og sýna menn i sinu
rétta umhverfi, og loks eru
vatnslitamyndir þar sem fjallað
er um sjómennsku og útveg á
myndrænan hátt.
Alls eru 75 myndir á sýning-
unni.
Það er margt sem gerir þessa
sýningu áhugaverða. Kjartan er
sjómannssonur, en faðir hans
var bryti á strandferðaskipun-
um, kunnur maður á sinni tið,
Guðjón bryti. Þá gerði Kjartan
sér litiö fyrir og skrapp til sjós
meðan hann var að vinna að
þessum myndum, og það sýnir
einlægni, og vist má telja að
málaranum liði betur i þessari
myndvinnu, þvi þarna nýtir
hann teiknikunnáttu og form-
gáfu sina mun betur en i hinu
abstrakta verki.
Sjórinn og þorpið stendur þvi
vel undir nafni.
Sýningunni lýkur á sunnu-
dagskvöld.
Jónas Guömundsson.
Af hókamarkaðnuni
Sunnefumálin
Bókaútfáfan örn og örlygur hf.
hefur nú sent frá sér bókina
SUNNEFUMALIN eftir breska
rithöfundinn Dominic Cooper. Rók
þessi, sem er skáldsaga, hefur aö
uppistööu eitt þekktasta sakamál
á Islandi, hin svokölluðu Sunnefu-
mál, sem áttu sér stað á lslandi
um miöja átjándu öld. Höfundur-
inn, Dominic Cooper dvaldi hér-
lendis meöan hann vann aö ritun
bókarinnar, og kynnti sér stað-
hætti og þau gögn sem til eru i
málinu. Verður ekki annað sagt
en að honum takist að bregða upp
mjög trúverðugri mynd af þvi
ömurlega ástandi sem rikti á Is-
landi á þessum árum, eldgosa og
drepsótta, og þeim áhrifum sem
hiö óbliöa náttúrufar haföi á
mannlif og lifsbaráttu i landinu.
Sunnefa Jónsdóttir þótti bera af
öðrum konum á sinni tiö. Það
varö henni örlagarikt, ekki siöur
en mörgum öörum sem henni
kynntust. Hún eignaðist tvö börn,
og enn er það spurning hvort hún
átti þau bæöi meö Jóni bróður sin-
um, eöa hvort Hans Wium sýslu-
maöur átti annað barniö. Dauða-
dómur voföi sifellt yfir Sunnefu
og Jóni bróður hennar, og þau
lentu milli steins og sleggu valds-
manna I Múlasýslu. Uröu leik-
soppar sem kastaö var til og frá.
A þessum árum skiptu meö sér
hlutverkum harkan og grimmdin,
hungriö og drepsóttir, mannlegar
tilfinningar og mannlegur
breyskleiki.
Sunnefumálin, er saga miKina
átaka i umhverfi sem markað er
af hinni hörðu og miskunnarlausu
lifsbaráttu.
Sunnefumálin komu út i heima-
landi höfundar, Bretlandi, um
siöustu áramót, og vakti bókin
þar mikla athygli og fékk góöa
dóma. Hún nefnist á frummálinu:
Men at Axlir. Þýðandi bókarinnar
er Franzica Gunnarsdóttir.
skáldsaga eftir
Dominic Cooper
I þýöingu
Franzicu
Gunnarsdóttur
Sunnefumálin eru sett, filmu-
unnin og prentuð i Prentsmiðj-
unni Hólum h.f. og bundin i Arn-
arfelli. Káputeikning er eftir
Ernst Backmann.
Nokkrir þeirra muna, sem Aýndir eru á heimilisiönaöarsýningunni á
Kjarvalsstööum.
Heimilisiðnaðarsýning á
Kjarvalsstöðum
KL — Heimilisiðnaðarfélag ts-
lands hefur opnað sýningu á is-
lenskum heimilisiðnaði i vestur-
gangi Kjarvalsstaða.
A sýningunni eru sýnishorn af
gerð hins forna islenska refil-
saums og augnsaums, bæði eldri
og nýrri verk.
Heimilisiðnaðarfélag Islands er
meðlimur I Norræna heimilisiðn-
aðarsambandinu, en það heldur
þing sin og sýningar þriðja hvert
ár til skiptis i einhverju Norður-
landanna. Sl. sumar var þingið
haldið i Tromsö i Noregi og voru
munirnir, sem nú eru sýndir á
Kjarvalsstöðum, framlag ts-
lands á þeirri sýningu, sem þá
var haldin.
Sýningin mun standa fram i
miöjan nóvember og er opin dag-
lega kl. 14-22.
/o-d m| umferðar Uráð