Tíminn - 16.11.1980, Blaðsíða 25

Tíminn - 16.11.1980, Blaðsíða 25
Sunnúdagur 16. nóvémber 1980. gert fyrir mig og mina verour ekki upp taliö og aldrei full- þakkað að verðleikum. Allar ferðirnar þeirra til hennar mömmuog allir biltúrarnir, sem þau hafa farið með hana i. Það sannast á þeim að þeir, sem minnst eiga gefa oftast mest. Ég veit þau yrðu alveg bál- vond ef þau vissu aö ég væri að skrifa eitthvert hól um þau, það er svo sannarlega ekki i þeirra anda. Ekki get ég þó stillt mig um að geta hér um atvik sem er kannske eitt hið mikil- vægasta i minu lifi. Þegar ég kom hér i bæinn árið 1967 var al- mennt atvinnuleysi og ekki hlaupið i vinnu, allra sist fyrir sveitastelpu utan af landi. Þá út- vegaði Bobba mér vinnu og ég frétti seinna hvernig henni tókst það. Vinnuveitandi minn hugsaði með sér að hann þekkti fáar ráð- vandari og betri konur og það sem frá henni kæmi og væri henni skylt hlyti aö vera gott. Ekki veit ég hvort mér hefur tek- ist að uppfylla þær vonir, en þetta sýnir betur en margt annað hvers trausts hún nýtur, hjá þeim er hana þekkja. Börn þeirra Bobbu og Palla eru þrjú: Daniel Jakob f. 3 mai 1953 K. Dagrún Linda Garðars- dóttir frá Akranesi f. 26. október 1956þau eiga einn son Pál Þóri f. 7. janúar 1979, Ólöf Gerður f. 2. október 1954. M. Gunnar Albert Ottósson f. 20. júli 1945, þau búa i Ólafsvik og eiga tvö börn er heita Þorbjörg Kristin f. 6. júli 1977 og Arni Freyr f. 27. ágúst 1979, Unnur Björg f. 2. október 1954 hún á einn son Sigurþór Dan f. 11. janúar 1972. Hann hefur alist upp hjá þeim Bobbu og Palla. Ég vil enda þessar linur með þvi að árna Bobbu og Palla allra heilla nú og um alla framtið og biðja þess aö sú gæfa, sem þau hafa skapað sér, þrátt fyrir erf- iða lifsbaráttu, megi vara sem lengst. Rúna Knútsdóttir. um rödd okkar hljóma hærra en nokkru sinni fyrr.” Avarpi þessu fylgdi svolátandi ákall til Noröurlandaþjóða frá norrænum fulltrúum á friöar- þinginu: ,,Við norrænir þátttakendur á heimsþingi friðarsinna i Sofiu, Búlgariu, 23,—27. september 1980, viljum vekja athygli Norður- landabúa á þeirri alvarlegu þróun sem á sér stað um þessarmundir og snertir öryggi okkar heims- hluta. Löngum hefur verið litið á Norðurlöndin sem friðsamlegan og rólegan hluta Evrópu. Hin nýja þróun mála ógnar þessu. Hið óörugga ástand sem nú rik- ir og áætlanirnar um að staðsetja ný kjarnorkuvopn i Evrópu, gera tillögu Kekkónens Finnlandsfor- seta um kjarnorkulaus Norður- lönd brýnni en nokkru sinni fyrr. Akvörðun NATO um að framleiða og staðsetja nýjar og fullkomnar meðaldrægar eldflaugar i Vestur- Evrópu hefur einnig mjög nei- kvæð áhrif á öryggismál Noröur- landa, þar sem þessar eldflaugar fara um loftiö yfir löndum okkar. Bandarikin þrýsta nú á Noreg og Danmörku um að fá að stað setja i þessum löndum bandarísk kjarnorkuvopn og herdeildir, — einnig á friðartimum. Bandarikin krefjast þess einnig að þessi lönd auki hernaöarútgjöld sin. NATO- lierstöðin á íslandi hefur einnig skipt um eðli. Hún er nú stjórn- stöð fyrir kjarnorkuvigbúnaö Bandarikjanna i Norður-Atlants- hafi og þar meö skotmark fyrir kjarnorkuárás ef til styrjaldar kemur. Þjóðir Norðurlanda verða að sameinast i baráttu gegn þvi að utanaðkomandi öfl breyti heims- hluta okkar i vigvöll hernaöar- legrar ævintýramennsku. Þess vegna heitum viö á þjóöir Norðurlanda: Við verðum aö stööva þessa þróun, sem felur I sér ógnun við framtið okkar. Það sem við þörfnumst nú er breiðara samstarf einstaklinga og sam- taka. Þess vegna skorum við á Norðurlandabúa: Til sameigin- legrar baráttu til að: — halda Norðurlöndum utan við áætlanir um kjarnorkustrið, — gera hugmyndir Kekkónens um kjarnorkulaus Norðurlönd að raunveruleika. Tökum til okkar ráða — áður en vopnin taka af okkur ráðin!!! 33 Mesum vic5 l<ynna stretch-flannel buxur frá Terra. Stretch-flannel er nýjung, sem flæðir yfir alla Evrópu. Efnið hefur þá eiginleika að laga sig eftir líkamanum. Það gefur eftir og teygist án þess að pokar eða hrukkur myndist. Situr þétt og þægilega og heldur brotum mjög vel. \m\m SNORRABRAUT 56 - SlMI 13505 Sem blandað er í yfirboð gólfsins um !eið og það er pússað. THORO STÁLGÖLF margfaldar slitþol gólfsins og höggstyrkur eykst um 50%. Hentar þetta efni best á gólf, þar sem er t.d. þungaiðnaður, á verksmiðjur, bifreiðaverkstæði, bílageymslur, vélsmiðjur, hleðslupalla, brýr, hafnargarða ofl. THORO KVARS (hraðsteypa) er hentar best fyrir matvælaiðnað og léttan iðnað, s.s. frystihús, fiskvinnslu- stöðvar, sláturhús.mjólkurstöðvar o.fl. P&W GÓLFHERÐIR er settur á gólfið eftir að þau hafa verið steypt. Hann þrefaldar slitþol gólfsins og högg- styrkur eykst um 25%. THORO GÓLFHERSLUEFNIN fást í litum. Leitið nánari upplýsinga, það er þess virði að kynnast THORO efnunum nánar. Smiðshöfða 7, gengið inn frá Stórhöfða, sími 83340 VARIST STEIN- SKEMMDIR OG LEKA KLÆÐIÐ MEÐ BLIKKI. FRAMLEIÐUM ALLAR GERÐIR BLIKKHLÍFA. &BUKKVE. 2)hp Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Sími: 44040. Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040 Sérð þú < það sem ég sé? Börn skynja hraða og fjarlægðir á annan hátt en fullorðnir. yUMFEROAR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.