Fréttablaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 1
Rekjanleiki sjávarafurða Skiptir stöðugt meira máli 14 Bjórframleiðandinn Fuller Kemur reykinga- fólki til hjálpar 4 Sögurnar... tölurnar... fólkið... F R É T T I R V I K U N N A R Vörustjórnun Blóðrás fyrirtækjanna 8-9 Fá A+ | Japanska matsfyrirtækið Rating and Investment Informat- ion (R&I) hefur gefið Kaupþingi banka hf. lánshæfiseinkunnina A+. Að mati fyrirtækisins eru horfur fyrir lánshæfiseinkunn bankans stöðugar. Eignast þriðjung | Sander- son ehf., félag í eigu Tryggva Jónssonar, fyrrverandi eiganda og forstjóra bifreiðaumboðsins Heklu, hefur keypt 28 prósenta hlut í Humac sem meðal annars rekur Apple á Íslandi. Mikil velta | Mest velta var með hlutabréf Glitnis á fyrstu fimm mánuðum ársins. Heildarvelta með bréf félagsins nam um 334 milljörðum króna, ríflega helm- ingi hærri upphæð en hjá Kaup- þingi sem er í öðru sæti. Kaupa Innovate | Eimskip hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Innovate Holdings. Kaupverð er um fjórir milljarðar króna. Greitt er með útgáfu nýs hlutafjár og verða eigendur Innovate meðal stærstu hluthafa Eimskips. Magnús stærstur | Eignar- haldsfélagið Imon, sem er í eigu athafnamannsins Magnúsar Ár- manns, er orðið stærsti stofnfjár- eigandinn í Byr sparisjóði með um 9,59 prósenta hlut. Hlutur þessi er metinn á rúma 3,4 millj- arða króna. Vilja Vinnslustöðina | Bræð- urnir Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir í Stillu hafa lagt fram samkeppnistilboð í allt hlutafé Vinnslustöðvarinnar. Til- boðsgengið hljóðar upp á 8,5 krónur á hlut. Of lágt | Stjórn Actavis telur yfirtökutilboð Björgólfs Thors Björgólfssonar í félagið of lágt. Það endurspegli hvorki virði né framtíðarmöguleika þess. Stærstu hluthafar hafa ekki tekið ákvörðun um hvort þeir selji. Líklegt er að hluthöfum í Actavis muni berast nýtt yfirtökutilboð frá Novator fyrir vikulok. Form- legt tilboð Novators tók gildi 5. júní og stendur opið til 3. júlí. Í skilmálum þess kemur fram að ef breyta eigi tilboðinu innan til- boðsfrestsins verði að gera það á fyrstu tveimur vikum hans. Ella bætist tvær vikur við heildar- frestinn. Talið er að Novator vilji síður lengja ferlið um tvær vikur. Lagt verði kapp á að ákvarða næstu skref sem fyrst. Á föstudaginn gaf stjórn Acta- vis út álit þar sem hún réði hlut- höfum frá því að samþykkja til- boð Novators á þeim grundvelli að verðið væri of lágt. Byggði hún álit sitt á ráðgjöf alþjóðlega fjár- festingabankans JP Morgan. Á milli Novators og bankans standa nú yfir viðræður um forsendur þeirrar ráðgjafar. Gengi bréfa Actavis hefur hækkað um rúm tólf prósent frá því fréttir af yfirtökuáhuga bár- ust. Mikil viðskipti með bréfin gefa til kynna að margir fjárfestar búist við að hærra tilboð eigi eftir að berast frá Björgólfi. Tilboð Novators hljóðaði upp á 0,98 evrur á hlut, sem nemur um 84 krónum. Sérfræðingar telja líklegt að nýtt tilboð verði á bilinu níutíu til 95 krónur á hlut. Líkurn- ar á að þriðji aðili komi inn í ferlið og geri hærra tilboð í félagið eru taldar hverfandi. - hhs / sjá síðu 6 Líkur á nýju tilboði í vikunni Sími 511 1234 • www.gudjono.is Vistvæn prentun www.trackwell .com Flotaeftirlit – tækjanotkun og aksturslagsgreining FORÐASTÝRING Fagfjárfestum og öðrum stórum fjárfestum býðst að kaupa um 80 prósent þess hlutafjár sem fær- eyska landsstjórnin ætlar að selja í hlutafjárútboði Føroya Banka sem hófst í þremur löndum á mánudaginn. Almenningur og aðrir smærri fjárfestar fá því um fimmtungsskerf í sinn hlut en ís- lenskum fjárfestum stendur til boða að kaupa hlutabréf í útboð- inu í gegnum Landsbankann. Jakob Fink, verkefnastjóri hjá Handelsbanken Capital Markets í Kaupmannahöfn, segir það al- vanalegt fyrirkomulag við frum- skráningar að meira falli í skaut fagfjárfestum en almennum fjár- festum. „Að jafnaði fá almennir fjárfestar um 10-15 prósent í sinn hlut við frumútboð í Vestur-Evr- ópu og Skandinavíu. Þannig að 20 prósent er því nokkru meira en venjan er.“ Færeyska ríkið hyggst selja allt að 6,6 milljónir hluta eða um 66,6 prósent hlutafjár. Heildar- virði útboðsins gæti því orðið allt að 14,3 milljarðar íslenskra króna miðað við að útboðsgengi verði 189 danskar krónur að lokinni áskriftasöfnun (book-building). Tæpir 2,9 milljarðar koma því til skiptanna hjá almennum fjár- festum í þremur löndum ef allt hlutafé Føroya Banka selst. - eþa Fagfjárfestar sitja að hluta- fjárútboði í Føroya Banka Tuttugu prósent hlutafjár munu falla almennum fjárfestum í skaut. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Vísitala neysluverð hækkaði um 0,52 prósent frá maí og jafngildir því að verðbólga lækkar úr 4,7 prósentum í 4,0 prósent á ársgrundvelli í þessum mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands sem birtir voru í gær. Hækkunin er í lægri kantin- um en spár flestra greiningardeilda viðskiptabank- anna hljóðuðu upp á en þær gerðu ráð fyrir allt frá 0,4 til 0,8 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs á milli mánaða. Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,9 prósent á milli mánaða og skrifast það á hækkun markaðsverð á húsnæði. Þetta er samhljóða spám greiningardeildanna, sem sögðu óvissuþættina verða húsnæðisliði og verð á eldsneyti, sem geti sveiflast á milli mánaða. Bankarnir spá því að verðbólga muni lækka nokkuð á haustdögum en mjakast svo upp á ný. Verðbólga muni þó vera yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands fram á næsta ár. Þetta er nokkuð samhljóða áliti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðu efnahagsmála sem kynnt var í byrjun vikunnar. Í álitinu segir að þvert á væntingar hafi ekki dregið nægilega úr innlendri eftirspurn. Er því búist við 2-3 prósenta hagvexti á árinu og eins prósents hagvexti á næsta ári. Verði hann drifinn áfram af einkaneyslu og stórauknum útflutningi. Samdráttar muni svo gæta á næsta ári og greiðslu- byrði aukast. Lúðvík Elíasson, sérfræðingur hjá greiningar- deild Landsbankans, segir eftirspurnarhliðina á markaðnum ótrúlega sterka, ekki síst á fasteigna- markaði. Þótt öðru hverju sé útlit fyrir að draga ætli úr eftirspurn sé ætíð eitthvað sem hamli. „Það kemur alltaf eitthvað nýtt inn,“ segir hann og bendir á ýmsa lánamöguleika sem fasteigna- kaupendum bjóðist, jafnt í innlendum og erlendum gjaldmiðlum. Ekki bæti Íbúðalánasjóður úr skák en hann hafi komið til móts við hugsanlega hægingu á fasteignamarkaði með ýmsum aðgerðum. Lúðvík undrast engu að síður þær tölur sem Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn setur fram. „Ég veit ekki hvar þeir sjá hagvöxtinn,“ segir Lúðvík en grein- ingardeild Landsbankans gerir ráð fyrir 0,5 pró- sentustiga hagvexti á þessu ári. Ég held að þeir séu að reikna með því að krafturinn í innlendu eftirspurninni haldi áfram. Við reiknum hins vegar með að aðeins fari að kreppa að hjá fólki og draga úr neyslu á þessu ári,“ segir hann. Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá greiningar- deild Glitnis, er sammála Lúðvík að annað hljóð sé í strokki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en heyrst hafi fram til þessa. Greiningardeild Glitnis spáði 1,5 prósenta hagvexti á þessu ári en 3,5 prósenta á næsta ári. „Þeir gætu hæglega haft nokkuð til síns máls því okkur sýnist að miðað við þróunina frá í mars hafi hagkerfið kólnað hægar en gert hafi verið ráð fyrir. Þá má gera ráð fyrir að lok hagsveiflunnar færist aftar í tíma en við spáðum,“ segir Jón og bætir við að óvissan í hagspám árs- ins sé upp á við. Því geti hagvöxtur hæglega orðið meiri en upphaflega var talið. Ólík sýn á hagvöxt Verðbólga lækkaði í takt við spár greiningardeilda bank- anna. Þær segja spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins veglega.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.