Fréttablaðið - 13.06.2007, Qupperneq 6
MARKAÐURINN 13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A S K Ý R I N G
inn 10. maí tilkynnti Björgólf-
ur Thor Björgólfsson, stjórn-
arformaður Actavis, að hann
vildi yfirtaka félagið. Sagðist
hann ætla að formbreyta Act-
avis. Hann ætlaði að stytta og einfalda
ferli ákvarðana. Félagið yrði meðal annars
skráð af markaði. Þetta teldi hann félag-
inu mikilvægt svo það héldi áfram að vaxa
hratt og vera samkeppnishæft á grimmum
markaðnum með samheitalyf.
Yfirtökutilboð Novators tók gildi 5.
júní og stendur opið til 3. júlí. Það hljóð-
aði upp á 0,98 evrur á hlut sem nemur um
84 krónum á hlutinn. Miðað við það gengi
yrði heildarkaupverðið rúmir 174 millj-
arðar króna.
Síðastliðinn föstudag mælti stjórn Act-
avis gegn því að hluthafar tækju tilboði
Novators í félagið. Það kom af stað nýrri
bylgju vangaveltna um hvernig þeirri at-
burðarás lyktar sem svo margir fylgjast
nú náið með.
SÖGUR Á KREIKI
Ómögulegt er að loka augum og eyrum
fyrir öllum þeim sögum sem sprottið hafa
upp í kringum tilboðsferlið. Margir álíta
ferlið allt eitt stórt sjónarspil. Telja þeir
ekki ólíklegt að Björgólfur Thor hafi vitað
frá upphafi að hann yrði að hækka upphaf-
legt boð sitt í félagið.
Meðal margra fjárfesta gætti efasemda
um hæfi stjórnar Actavis til að meta til-
boðið frá Novator, jafnvel þótt hún hygð-
ist leita til óháðs banka eftir hjálp. Þeir
Andri Sveinsson, fjármálastjóri Novators,
Róbert Wessman forstjóri og að sjálfsögðu
stjórnarformaðurinn Björgólfur sögðu sig
frá því ferli af skiljanlegum ástæðum.
Eftir stóðu þeir Sindri Sindrason, Magn-
ús Þorsteinsson og Baldur Guðnason. Allir
hafa þeir á einn eða annan hátt töluverð
viðskiptatengsl við Björgólf. Magnús fjár-
festi meðal annars með þeim Björgólfs-
feðgum í bjórverskmiðjunni Bravo í Rúss-
landi sem lagði grunninn að auðæfum
þeirra. Þá er hann jafnframt stærsti hlut-
hafi í Eimskipafélaginu þar sem Björgólf-
ur Thor er einnig stór hluthafi. Baldur
er forstjóri Eimskipafélagsins. Sindri er
fyrrverandi forstjóri Pharmaco og náinn
viðskiptafélagi föður Björgólfs Thors,
Björgólfs Guðmundssonar. Það kom því
mörgum á óvart að stjórnarmennirnir þrír
skyldu hafa metið yfirtökutilboð Björgólfs
Thors of lágt og ráðlagt fjárfestum frá því
að samþykkja það. Jafnvel eftir það heyr-
ast þó þær raddir að álit stjórnarinnar sé
enn eitt útspilið í yfirtökuleik Björgólfs.
FENGU GÖGNIN AFHENT
Mat stjórnarinnar virtist jafnvel koma
Novator-mönnum á óvart. Þegar þangað
var leitað eftir viðbrögðum við áliti stjórn-
arinnar fyrir helgi fengust þau svör að fé-
lagið skorti upplýsingar til að tjá sig frek-
ar um álit stjórnarinnar og næstu skref.
„Okkur hefur ekki gefist tækifæri til að
ræða við stjórn Actavis. Yfirlýsingin frá
henni er ekki mjög ítarleg. Þar kemur
ekki fram hvaða forsendur liggja að baki
ákvörðuninni,“ sagði Ásgeir Friðgeirsson,
talsmaður Novators, við það tækifæri.
„Við munum skoða stöðuna þegar þær
upplýsingar liggja fyrir.“
Sindri Sindrason, einn stjórnarmannanna
þriggja, segir aftur á móti að Novator
hafi borist gögn og forsendur frá stjórn-
inni og JP Morgan, áður en álitið var gert
opinbert á föstudag. „Við vorum búin að
hittast og fara yfir málin. Ég tel því að
ekkert hafi átt að koma þeim á óvart í út-
gáfu álits okkar. Það lá fyrir að okkur
þætti þetta tilboð ekki ásættanlegt.“
STJÓRNIN FYLGIR JP MORGAN
Sindri segir stjórnina hafa verið samstiga
í áliti sínu sem gefið var út á föstudaginn.
Einhugur hafi ríkt allt frá byrjun meðal
allra stjórnarmanna um að leita ráðgjafar
erlends matsaðila sem væri vel þekktur. Í
kjölfarið hafi verið samið við JP Morgan.
Eins og komið hefur fram mat bankinn til-
boðið svo að verðið sé ekki nægilega hátt
og endurspegli ekki virði félagsins.
Sindri segir að berist annað tilboð frá
Novator muni sama ferli fara í gang.
Stjórnin muni áfram fylgja ráðlegging-
um JP Morgan. „Það tilboð sem við getum
mælt með verður að hafa fengið jákvæða
umsögn frá JP Morgan. Bankinn telur að
verðið þurfi að liggja á ákveðnu bili. Það
er ljóst að tilboðið sem nú liggur fyrir
hefur ekki legið á því.“ Hann segir álit JP
Morgan ekki hafa komið stjórninni sér-
staklega á óvart og hafa verið í ætt við
það sem hún sá fyrir.
NÝTT TILBOÐ Í VIKUNNI?
Á milli Novators og JP Morgan standa nú
yfir viðræður um forsendur þess mats
sem stjórnin byggði álit sitt á. Almennt
er búist við að þær viðræður muni ekki
taka langan tíma. Formlegt tilboð Novat-
ors tók gildi 5. júní og gildir til 3. júlí. Í
skilmálum þess kemur fram að ef breyta
á tilboðinu innan tilboðsfrestsins verður
að gera það á fyrstu tveimur vikum hans.
Ella bætast tvær vikur við heildarfrest-
inn. Við því er að búast að Novator vilji
síður lengja ferlið um tvær vikur og leggi
því kapp á að ákvarða næsta skref fyrir
lok þessarar viku.
HÆRRA TILBOÐS VÆNST
Gríðarmikil velta hefur verið með bréf
í Actavis á undanförnum vikum. Gengi
bréfanna hefur hækkað úr 78,2 krónum
á hlut, sem var lokagengi daginn áður
en óformlegt tilboð var lagt fram þann
9. maí, í 88 krónur á hlut, sem var upp-
hafsgengi bréfa félagsins í Kauphöll Ís-
lands í gær. Það er rúmlega tólf prósenta
hækkun.
Viðskiptin með Actavis gefa til kynna
að margir fjárfestar búist við því að
hærra tilboð eigi eftir að berast frá Björ-
gólfi. Viðbrögð stærstu hluthafa í félag-
inu hafa að öllum líkindum styrkt fjár-
festa í trúnni um að tilboðið hafi verið of
lágt. Enginn þeirra hefur lýst yfir bein-
um stuðningi við það. Nokkrir af lífeyris-
sjóðunum sem halda utan um stóra hluti
hafa sagt að tilboðið þyrfti að vera tölu-
vert hærra til að þeir séu tilbúnir að segja
skilið við Actavis.
Sérfræðingar hjá greiningadeildum
bankanna, innlendum sem erlendum,
virðast einnig búast við að næsti kafli
Actavis-sögunnar muni snúast um hærra
tilboð frá Novator. Er talið líklegt að það
verði á bilinu níutíu til 95 krónur á hlut.
Líkurnar á að þriðji aðili komi inn í ferl-
ið og geri tilboð í félagið eru taldar hverf-
andi. Sjálfur hefur Björgólfur Thor sagt
að hann muni ekki selja sinn 38,5 prósenta
hlut, berist annað tilboð í félagið. Staða
hans er sterk. Virðast flestir sammála um
að hann stjórni ferðinni í raun.
Hærra tilboðs vænst frá Novator
Allt annað en lognmolla hefur ríkt í kringum Actavis frá því yfirtökutilboð barst frá Novator í maí. Ákvörðun stjórn-
ar félagsins á föstudag um að mæla gegn tilboðinu glæddi umræðuna og viðskipti með bréf í félaginu nýju lífi.
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir spáir í næstu kafla Actavis-sögunnar.
G
ra
fik
a