Fréttablaðið - 13.06.2007, Síða 8
MARKAÐURINN 13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR8
Ú T T E K T
ó að öllu jöfnu fari lítið fyrir hugtak-
inu vörustjórnun er það mikilvægt
fyrir fyrirtæki, ef ekki lífsnauðsyn-
legur hluti af rekstri þeirra.
Lítið hefur farið fyrir vörustjórnun í ís-
lensku viðskiptalífi. Einungis þrír Íslend-
ingar flagga doktorsgráðu í þessum geira.
Tveir þeirra skipulögðu árlega ráðstefnu
á sviði vörustjórnunar (www.nofoma.org) í
síðustu viku, þeir dr. Árni Halldórsson, dós-
ent við háskólann í Southampton í Bretlandi
og stundakennari við Háskólann í Reykja-
vík, og dr. Gunnar Stefánsson, dósent við
verkfræðideild Háskóla Íslands og stunda-
kennari við Chalmers-háskólann í Gauta-
borg í Svíþjóð. Sá þriðji heitir Sveinn Viðar
Guðmundsson og starfar í Toulouse í Frakk-
landi og hefur meðal annars unnið að ráð-
gjafastörfum fyrir flugvélasmiðjur Airbus
í Evrópu. Nofoma-ráðstefnan var haldin í
samvinnu HR og HÍ og kynntar voru tæp-
lega 100 ritrýndar greinar eftir fræðimenn
frá ýmsum háskólum Norðurlandanna ásamt
fræðimönnum frá Kanada, Bandaríkjunum,
Portúgal, Austurríki, Bretlandi og Þýska-
landi.
VÖRU HVAÐ...?
Með vörustjórnun er átt við stjórnun á flæði
birgða og upplýsinga. Hugtakið er nokkuð
víðtækt enda getur það átt við allt frá kaup-
um fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum á
vöru frá birgjum til dreifingar vörunnar með
sem hagkvæmustum hætti. Að sama skapi
getur hugtakið sömuleiðis náð til stjórnunar
á hjálparsendingum frá einu landi með sem
skjótustum og skilvirkustum hætti til þeirra
sem eru í nauð. Þótt vörustjórnun hafi ekki
verið ofarlega í hugum fólks upp á síðkast-
ið er hún ævaforn og, líkt og svo margt annað
sem þarf að ganga með sem skilvirkustum og
árangursríkustum hætti, upprunnið í hernaði.
Talið er að sögu vörustjórnunar megi rekja
allt til daga Grikkja og Rómverja en í þá daga
voru uppi sérstakir herforingjar, logistikas,
sem höfðu þann starfa einan að sjá um birgða-
stýringu á fjármagni og fæðu handa hermönn-
um á meðan á stríði stóð.
Mikilvægi stjórnunar sem þessarar í hern-
aði hefur síst minnkað eftir því sem nær nú-
tímanum hefur dregið. Það kom vel í ljós í
seinni heimsstyrjöldinni. Tafir á afhendingu
stríðstóla gátu haft alvarlegar afleiðingar
enda skiptu þar mannslíf máli. Með góðri
vörustjórnun tókst því að koma í veg fyrir
óþarfa mannfall úr röðum hermanna.
VÖRUSTJÓRNUN Í NÝJUM HÆÐUM
Brautargengi vörustjórnunar óx mjög í kjöl-
far heimsstyrjaldarinnar og festi rætur í við-
skiptalífinu á sjötta og sjöunda áratug síðustu
aldar. Upp frá því hefur það þróast talsvert,
ekki síst vegna tilkomu betri samgangna í lofti
sem á láði og alþjóðavæðingarinnar sem hefur
orðið til þess að þrýst er á fyrirtæki að þau
leiti allra leiða til að lækka kostnað eða heyra
ella sögunni til.
Efalítið á alþjóðavæðingin og þróun í upp-
lýsingatækni stóran þátt í sívaxandi mikil-
vægi vörustjórnunar. Þörfin fyrir lækkandi
rekstrarkostnað hefur kallað á flutning á
framleiðslu fyrirtækja til staða og landa þar
sem vinnuafl er ódýrara. Það hefur aftur kall-
að á viðamikla skipulagningu og skilvirkari
afgreiðslu. Þetta fer þó allt eftir stærð fyrir-
tækjanna og umfangi þeirra.
Algengasta merking vörustjórnunar í nú-
tímanum er komin langt út fyrir herfræðileg-
an þankagang og einskorðast nær eingöngu
Vörustjórnun - Blóðrás f
Ýmist má kalla vörustjórnun hjarta eða lífæð fyrirtækja. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson leit inn á norræna á
vörustjórnun og drakk í sig þekkingu á því sem skilur á milli feigs og ófeigs í rekstri fyrirtækja. Þar frædd
sem er fyrirtækjum nauðsynleg ætli þau að komast af í hörðum og síbreytilegum heimi.
Að öðrum fyrirtækjum ólöstuð-
um hefur bandaríski verslanar-
isinn Wal-Mart markað braut á
sviði vörustjórnunar í rúm fjöru-
tíu ár. Fyrirtækið hefur staðið sig
vel við innleiðingu á upplýsinga-
tækni til að fylgjast með birgða-
flæði í vöruhúsum auk þess sem
miðlægt dreifikerfi fyrirtækis-
ins þykir til fyrirmyndar. Hafa
mörg stórfyrirtæki fetað í fót-
spor bandaríska risans jafnt hér-
lendis sem í Evrópu.
Dreifikerfi Wal-Mart er þannig
að fyrirtækið hefur byggt upp
sínar eigin dreifingastöðvar.
Vörur eru keyrðar inn í vöruhús
fyrirtækisins í Bentonville í Ark-
ansas í Bandaríkjunum og dreift
þaðan áfram til smærri miðstöðva
og verslana. Með flutningi á eigin
vörum falla niður margir milli-
liðir, svo sem heildsalarnir. Með
því að selja vöruna svo í stór-
um einingum fæst enn meiri hag-
kvæmni. Mörg fyrirtæki í smá-
sölugeiranum hafa tekið þetta
upp eftir Wal-Mart, svo sem Að-
föng, stærsta og fullkomnasta
birgða-og dreifingarstöð landsins
sem kaupir inn og sér um birgða-
hald og dreifingu fyrir matvöru-
verslanir Haga.
TÆKNIVÆTT WAL-MART
Árið 1987 varði Wal-Mart
háum fjárhæðum í fjárfestingar
á tæknibúnaði til að samtengja
allar starfsstöðvar og vöru-
hús keðjunnar um allan heim.
Nýtti keðan sér gervihnetti til
að tengjast höfuðstöðvunum í
Bentonville. Með þessu móti var
hægt að hafa auga með vöru-
veltu og koma skilaboðum áleið-
is á augabragði.
Tækninni hefur fleytt fram og
í dag er vörustjórnun í vöruhúsi
Wal-Mart í Bentonville sjálfvirkt
kerfi sem nemur strikamerkingar
á vöru frá þeim þúsundum birgja
sem keðjan verslar við. Vörur
frá birgjum fara úr flutningabíl-
um inn á rúllubretti sem flytur
þær innar í vöruhús Wal-Mart.
Annað rafauga nemur þær og
flytur þær á sinn stað. Svona
gengur ferlið þar til varan endar
í hillu verslunar.
En þar með er aðeins hálf sagan
sögð því þegar viðskiptavinur
kaupir fyrir vöruna er henni
rennt framhjá enn einu rafaug-
anu við kassann. Þaðan fara skila-
boð um kerfi Wal-Mart og enda á
borði birgisins, sem byrjar á ný
að senda vörur áleiðis til Wal-
Mart. Kerfið er hárnákvæmt og
sér til þess, að nokkuð jafnt vöru-
flæði skapast í vöruhúsum Wal-
Mart og verslunum.
Wal-Mart: Leiðandi í dreifingu og tækni
Þótt vörustjórn-
un hafi ekki
verið ofarlega í
hugum fólks upp
á síðkastið er
hugtakið æva-
fornt og, líkt og
svo margt annað
sem þarf að
ganga með sem
skilvirkustum og
árangursríkustum
hætti, upprunnið
í hernaði. Talið
er að sögu þess
megi rekja allt
til daga Grikkja
og Rómverja en
í þá daga voru
uppi sérstakir
herforingjar,
logistikas, sem
höfðu þann starfa
einn að sjá um
birgðastýringu
á fjármagni og
fæðu handa her-
mönnum á meðan
á stríði stóð.