Fréttablaðið - 13.06.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 13.06.2007, Síða 12
 13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR4 fréttablaðið verk að vinna Hinar dönsku HTH-innréttingar hafa verið gríðarlega vinsælar hér á landi undanfarin ár og þykja mjög góðar. Skúli Her- steinn, sölustjóri HTH hjá Orms- son, segir ástæður þessara vin- sælda fjölmargar. „HTH hefur verið sterkt merki á markaðnum í fjölmörg ár og hefur fengist hér á landi í þrjátíu ár,“ segir Skúli en Ormsson tók við umboðinu árið 1999. „Síðan þá höfum við náð mjög góðu sam- komulagi við marga af stærstu byggingaverktökum landsins. Helstu ástæðurnar fyrir því eru að við erum með góða vöru á fínu verði og afgreiðsluöryggi,“ bætir hann við. Skúli segir HTH-merkið vera tvískipt. „Það er annars vegar rauða línan sem verktakar kaupa og eru samsettar einingar en hins vegar gula línan sem fæst í Ormsson í Smáralind og fólk setur saman sjálft,“ segir Skúli og tekur fram að sömu gæði séu í skápunum þó að útlitið geti verið eitthvað breytilegt milli línanna. Innréttingarnar frá HTH eru mjög þægilegar í notkun og segir Skúli þær vera með öllum þeim búnaði sem prýði góðar inn- réttingar. „Það eru skúffur með dempurum og útdraganlegar einingar í skápum. Síðan er það mikill kostur að við bjóðum upp á innréttingar í öll herbergi hússins,“ segir Skúli og nefnir þar eldhúsinnréttingar, fata- skápa, innréttingar í þvottahús og fleira. Skúli tekur fram að verktakar séu mjög ánægðir með þá aðstöðu sem þeir geti boðið viðskiptavin- um sínum upp á í Ormsson. „Fólk getur komið til okkar, gengið um salinn og skoðað bæði innrétt- ingar og raftæki. Síðan er per- sónuleg þjónusta við hvern við- skiptavin fyrir sig. Hver og einn getur gert breytingar frá þeirri staðalinnréttingu sem verktakinn leggur upp með og margir not- færa sér þann möguleika,“ segir Skúli og bætir því við að það hafi líka mjög mikið að segja að fyr- irtækið standi við allt sem sagt er varðandi afhendingartíma og annað slíkt. „Við erum einfald- lega með góða vöru, gott verð og góða þjónustu,“ segir Skúli. sigridurh@frettabladid.is Vinsælar í þrjátíu ár Skúli Hersteinn er sölustjóri HTH hjá Ormsson. Hann segir innréttingarnar frá HTH hafa notið vinsælda hér á landi frá því þær komu hingað fyrst en vinsældirnar aukist mjög á undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fram undan eru húsbygging- ar í Hólmavík eftir því sem fram kemur á fréttavefsíðunni www. strandir.is. Þar segir að skortur hafi verið á íbúðarhúsnæði í þorp- inu. Nýlega hafi sveitarstjórn Strandabyggðar úthlutað síðustu skipulögðu einbýlishúsalóðinni við Lækjartún og einnig sé fyrirhugað að stofnað verði félag sem hefur á stefnuskránni að reisa einingahús á Hólmavík. Að því félagi standi Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmadrangur ehf., Sparisjóður Strandamanna og Trésmiðjan Höfði ehf. Eru taldar líkur á að félagið hefjist handa við að reisa tvær til fjórar íbúðir strax á þessu ári sem fyrirhugað sé að selja. Byggt í Hólmavík Skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði á Hólmavík. Skeifan 3 108 Reykjavík Sími 588 5080 www.dynjandi.is Eigum á lager bensín- og dieseldrifnar rafstöðvar 1-60 kw. Einnig fáanlegar í hljóðeinangruðum húsum. Eigum á lager öflugar bensín- eða dieseldrifnar dælur til allra verka – fyrir verktaka og aðra. Afkastageta: 500-1800 lítrar á mínútu, 2-4 tommu. Stuttur afgreiðslutími á sérpöntunum ÖFLUGAR RAFSTÖÐVAR OG DÆLUR PGV ehf. ı Bæjarhrauni 6 ı 220 Hafnafjörður ı Sími: 564 6080 ı Fax: 564 6081 ı www.pgv.is GLUGGI TIL FRAMTÍÐAR … • ENGIN MÁLNINGAVINNA • HVORKI FÚI NÉ RYÐ • FRÁBÆR HITA OG HLJÓÐEINANGRUN • FALLEGT ÚTLIT • MARGIR OPNUNARMÖGULEIKAR • ÖRUGG VIND- OG VATNSÞÉTTING

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.