Fréttablaðið - 13.06.2007, Page 16

Fréttablaðið - 13.06.2007, Page 16
 13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR Mest hefur hafið sölu á granít- steypu sem hefur ýmsa kosti umfram hefðbundna steypu. „Í fyrsta lagi eru eingöngu innflutt fylliefni í steypunni, sem upp- fylla íslenska staðla um fylliefna- framleiðslu. Þessi efni eru þéttari í sér og sterkari en hefðbundin ís- lensk fylliefni,“ segir Daði Þor- björnsson, hjá rannsóknar- og þróunardeild Mest, um nýja gerð af steypu, svokallaða granít- steypu, sem fyrirtækið hefur nú hafið sölu á. „Þetta skilar sér í því að tölu- vert minna vatn þarf í steypuna,“ heldur Daði áfram. „Efnin eru því líklegri til að geta framleitt eins- leitari steypu á milli daga, vegna þess að breytileikinn í fylliefn- unum er minni en í hefðbundinni steypu.“ Minna vatn þýðir enn fremur að minna magn er af fínefnum í granítsteypunni. Rýrnun í steyp- unni verður þar af leiðandi minni, sem dregur töluvert úr líkum á sprungum. Eins og Daði bendir á þornar granítsteypan fyrr vegna minna vatnsinnihalds. Það flýtir aftur fyrir ferlinu, þegar standsetja á húsnæði. Hægt er að leggja gólf- efni og mála veggi mun fyrr en væri um venjulega steypu að ræða, svo dæmi séu nefnd. „Síðan er svo sem ekkert sér- staklega hollt að búa í glænýju húsi, með rennblautri steypu,“ bendir Daði síðan á. „Maður er að miklu leyti laus við allan þann raka sem fylgir nýjum húsum, með notkun granítsteypunnar, þannig að þetta er ein besta steypa sem völ er á í heilsufarslegu tilliti.“ Að lokum nefnir Daði til sög- unnar gott veður- og slitþol granít- steypunnar, en það þykir sannað með rannsóknum að hún henti ein- staklega vel við íslenskar aðstæður og þoli mikla áníðslu. Bendir síðara tilvikið til þess að granítsteypan henti vel á svæðum eins og bíla- stæðum þar sem umferð er mikil. roald@frettabladid.is Engin venjuleg steypa Daði Þorbjörnsson segir granítsteypu hafa ýmsa kosti umfram hefðbundna steypu. Þess má geta að verið er að framleiða 340.000 rúmmetra af steypunni á Reyðarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sími 557 9300 Fax 567 9343 www.jso.is Netf: jso@jso.is í i .j .i j j .i

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.