Fréttablaðið - 13.06.2007, Side 20

Fréttablaðið - 13.06.2007, Side 20
 13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR12 fréttablaðið verk að vinna Byggingariðnaður, mannvirkja- gerð, skipulags- og orkumál verða í fyrirrúmi á sýningunni Verk og vit sem verður haldin í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal dag- ana 17.-20. apríl 2008. Þetta er í annað sinn sem Verk og vit verður haldið á Íslandi, en síðast gerðist það 2006 og var hún þá sett upp á sama stað. Vegna þess hve vel tókst til, var ákveðið að endurtaka leikinn en þó með fá- einum breytingum. Sem dæmi um breytingu verð- ur sýningarsvæðið með öðruvísi sniði og má í því samhengi nefna breytt gólfskipulag, eftir ábend- ingu frá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins. Þeim sem tóku þátt í fyrri sýn- ingunni verður boðið að forskrá sýningarsvæði að þessu sinni, áður en sýningin verður kynnt. Forskráningu lýkur 10. júlí 2007, en þá tekur við almenn skráning. Tíu prósenta afsláttur er veittur af fermetraverði á sýningarými þeim sem skrá sig fyrir 1. október 2007. Nánar á verkogvit.is - rve Efnt til stórsýningar Sýningin Verk og vit verður haldin í annað sinn í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Ljósastaurar gegna stóru hlutverki í borg- um og bæjum. Fyrirtækið Sandblástur og málmhúðun á Akureyri er eini framleiðandi slíkra staura hér á landi. „Form ljósastaur- anna hefur aðeins breyst í tímans rás,“ segir Tómas Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Sandblástur og málmhúðun að Árstíg 6 á Akureyri. „Staurarnir voru lengi vel samsettir úr nokkrum mismunandi sver- um rörum en nú mjókka þeir jafnt og þétt upp þannig að smíðin er aðeins einfaldari.“ Í Sandblæstri og málmhúðun eru um 50 manns við störf. „Þetta er framleiðslufyrirtæki, stálheildsala, sandblástur og zinkhúðun,“ segir Tómas Ingi. „Við þjónustum málmiðn- aðinn frá a til ö. Það helsta sem við framleið- um eru ljósastaurarnir en líka vegrið og iðn- aðargirðingar.“ Hann segir aðal samkeppnina í ljósa- staurabransanum koma frá innflutningi eins og staðan sé í dag. „Nú er til dæmis dálítið stór pakki í útboði hjá Samorku, innkaupa- fyrirtæki rafveitna. Við buðum í hann ásamt fimmtán erlendum aðilum og verðum bara að vona það besta.“ - gun Lýsa upp heiminn Smiðirnir í fyrirtækinu Sandblástur og málmhúðun kunna lagið á ljósastaurunum enda eru þeir einir um að framleiða þá hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS Handbók byggingariðnaðarins, www.habygg,is, veitir upplýsingar um heimilisstörf, heimilistæki og heimilishald á rafrænu formi, fyrir atvinnumenn jafnt sem fagaðila. Um ræðir gagnsafn sem byggir á niðurstöðum úr rannsóknum, at- hugunum og efni unnu úr ýmsum gögnum Iðnaðarráðuneytisins. Bókin er hluti af verkefni iðnaðarráðuneytisins „Opnir gagnagrunnar í þágu atvinnulífs, almennings og skóla“. Tilgangur- inn með handbókinni var meðal annars að gera áður birtar upplýs- ingar frá ráðuneytinu enn aðgengi- legri en áður, samtímis því að gefa út nýtt efni sem hentaði betur á rafrænni útgáfu. Á síðunni má þannig finna greinagóðar upplýsingar um við- hald húsa, húsbyggingatækni, lagnir, vegagerð og svo framvegis. Sjá www.habygg.is Handhægar upplýsingar Á vefsíðunni www.habygg.is er handbók byggingariðnaðarins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.