Fréttablaðið - 13.06.2007, Side 22
13. JÚNÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR14 fréttablaðið verk að vinna
Smiðjuvegi 1
200 Kópavogur
sími: 544 5700
http://www.polyhudun.is
Þegargæðin
skipta öllu
máliþá
vinnum
við
fyrir þig!
Það er mikilvægt fyrir endingu allra málmhluta að þeir séu
rétt meðhöndlaðir. Duftlökkun okkar veitir bestu fáanlegu
vörn gegn tæringu auk þess sem áferð verður eins og best
verður á kosið. Í boði eru hundruðir lita í mismunandi
áferðum.
Hafðu samband við okkur og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
Ekki mála þig út í horn...
Við Gullengi 4 í Grafarvogi eru Ís-
lenskir aðalverktakar að byggja
þriggja hæða fjölbýlishús.
Nýlega voru settar í sölu íbúðir við
Gullengi 4. Húsið er þriggja hæða
fjölbýlishús með þremur íbúðum á
hverri hæð. Íbúðirnar eru þriggja
til fimm herbergja og á bilinu 100
til 140 fermetrar að stærð. Þær
verða afhentar tilbúnar án gólfefna
nema á baðherbergi og þvottahúsi,
sem verða flísalögð. Sér þvottahús
er í hverri íbúð og einnig rúmgóð
geymsla í kjallara. Innréttingar í
íbúðunum eru spónlagðar og hægt
að velja um þrjár viðartegundir.
Heimilistæki eru frá AEG.
Burðarkerfi hússins er forsteypt
að stærstum hluta. Útveggir eru
forsteyptar einingar og verða með
steiningaráferð og klæddir harð-
viði að hluta. Gluggar eru álklæddir
timburgluggar. Húsið er því við-
haldslítið.
Sameign og lóð verða fullfrá-
gengin og leiksvæði er á lóðinni.
Hver íbúð hefur sérinngang og
bílastæði við húsið verða átján.
Byggingar- og söluaðili er Ís-
lenskir aðalverktakar og húsið er
hannað af Tekton arkitektum. Íbúð-
irnar verða afhentar í maí 2008. - þeb
Fjölbýlishús í
grónu hverfi
Hægt er að fá viðhaldslitla ein-
ingabústaði sem veita ákveðið
frelsi í hönnun þeirra. Smellinn
hf. er eitt af þeim fyrirtækjum
sem býður upp á slík hús.
Einingahús verða sífellt vinsælli.
Þetta á einnig við um sumarbústaði
en Halldór G. Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Smellins hf., segir
að það færist stöðugt í vöxt að
fólk velji sér steypt einingahús í
stað hefðbundinna sumarbústaða.
„Þetta er stöðugt að aukast en
kröfur sumarbústaðabyggjenda
eru að verða hinar sömu og þeirra
sem eru að byggja íbúðarhúsnæði.
Þeir eru að fara út í eitthvað sem
er viðhaldsfrítt eða viðhaldslítið
og þá er sá möguleiki skoðaður að
byggja bústað úr forsteyptum ein-
ingum,“ segir Halldór. „Fólk hefur
stöðugt minni tíma til að sinna við-
haldi og vill ekki fara beint í það að
bera fúavörn á veggi er það kemur
í bústaðinn. Það vill heldur eyða
tímanum í eitthvað annað skemmti-
legra.“
Einingarnar frá Smellnum eru
steyptar og kostar bústaður úr
slíku efni meira en hefðbundinn
timburbústaður. „Það er líka mik-
ill gæðamunur á þeim og það þarf
ekki annað en að horfa á hefðbund-
inn sumarbústað og íbúðarhús
til að sjá muninn,“ segir Halldór.
„Fólk eyðir stöðugt meiri tíma í bú-
staðnum og það er farið að gera þá
kröfu að hann sé jafn að gæðum og
íbúðarhúsið sem það býr í heima.
Þar að auki getur fólk leyft sér
ýmsa hluti með einingahús sem
annars væri ekki hægt.“
Þarna á Halldór við það frelsi í
hönnun sem einingahús geta veitt.
„Fólk er að láta arkitektúrdrauma
sína ræatast,“ segir Halldór. „Það
getur haft húsin sexhyrnd eða með
fídusum sem það myndi aldrei hafa
í bænum.“
Smellinn býður einnig upp á
forsteypta sökkla sem hægt er að
nota í grunn hefðbundinna sumar-
bústaða. „Það getur verið ákveðið
vandamál að fá fólk til að slá upp
mótum og koma steypu lengst uppi
í sveit,“ segir Halldór. „Þá er þetta
ákveðinn kostur því þegar búið er
að koma malarpúðanum undir bú-
staðnum fyrir er sökklunum komið
fyrir á sínum stað sem lokaverk-
efni.“
Nánari upplýsingar um Smellinn
er að finna á www.smellinn.is.
tryggvi@frettabladid.is
Framhlið hússins. Átján merkt bílastæði verða við Gullengi 4 en myndin er af sams
konar húsi við Gullengi 6.
Arkitektúr draumar rætast
Forsteyptir einingabústaðir verða
sífellt vinsælli en þeir hafa það fram yfir
hefðbundna bústaði að viðhald er mun
minna. MYND/THORSTEN HENN