Fréttablaðið - 13.06.2007, Síða 27

Fréttablaðið - 13.06.2007, Síða 27
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 S K O Ð U N Margir hafa lent í þeim aðstæð- um að svo mikið er að gera við vinnu að ekki gefst tími til þess að borða hádegismat. Þá er e.t.v. gripið í samloku eða skyrdós við skrifborðið og hádegishléð jafn- vel stytt í tíu mínútna hlé með litlum samræðum við samstarfs- menn. Þessi menning er víða í Evrópu og hafa þá rannsóknir vísindamanna um að á skrifborð- um sé 400 sinnum meira af bakt- eríum en á meðalklósetti lítið að segja því að 47 prósent af að- spurðum Bretum vilja borða há- degismatinn við skrifborðið. Starfsmenn í Austur-Evrópu virðast helst leyfa sér að fara í hádegismat og eiga þar góða stund. Yfir 60% starfsmanna í Tékklandi taka sér góðan hádegismat og kemur á óvart að í löndum þar sem matarhefð er mikil eins og á Ítalíu, Frakk- landi og Sviss vilja 53%, 47% og 46% af starfsmönnum koma sér þægilega fyrir í hádeginu og borða góðan mat. Aðeins 20% breskra starfsmanna koma sér vel fyrir í hádeginu, 8% sænskra og aðeins 6% af dönsk- um starfsmönnum hafa tíma til að setjast niður og borða góðan hádegisverð. Alls voru um 17.302 evrópskir starfsmenn spurðir spurningar- innar: „Hvað felst í því að fara í hádegismat?“ Svarmöguleik- arnir voru: Samloka við borðið/ Göngutúr til að ná sér í bita/ Setjast niður og koma sér vel fyrir með hádegisverð/ Ég borða ekki hádegismat. Þeir sem helst sleppa því að borða hádegismat eru Pólverjar (21%) og Ungverjar (18%) en þeir sem eru síst líklegir til að sleppa há- degismat eru Bretar (9%), Hol- lendingar (5%) og Frakkar (4%). Í rannsókninni kemur í ljós að þó að siðir og vinnuhefðir geti verið álíka í mörgum Evrópu- ríkjum er menningin í kringum matinn ólík, einkum þegar um er að ræða að fara frá vinnustað og borða annars staðar. Þeir sem eru duglegastir að hreyfa sig í hádeginu og fara í göngutúr um leið og þeir finna sér bita eru Finnar (58%) og kemur fram í rannsókninni að hollt sé öllum starfsmönnum að hreyfa sig í hádeginu. Það auki líka úthald starfsmanna að vera vel nærðir og þeir verði skil- virkari fram eftir degi eftir úti- veru og góða næringu. Bent er á að þeir sem aldrei sjá sér fært að fara frá skrifborðinu og í há- degismat gætu líka farið á nám- skeið til að bæta stjórnunarhæfi- leika sína. (Heimild: www.onrec. com) Sif Sigfúsdóttir MA í mann- auðsstjórnun Hádegismaturinn við skrifborðið? S T A R F S M A N N A M Á L Ég hef setið sveittur við það þessa vikuna að skrá hvert ein- asta andskotans snitti í allri ætt- inni fyrir hlut í Færeyjabank- anum. Meira segja þeir sem eru óstaðsettir í hús samkvæmt þjóð- skrá ætla að kaupa. Þetta verður fínt, en þeir í Lans- anum hafa ekki verið að auðvelda manni lífið við þetta. Krafan um að menn eigi vörslureikning hjá þeim fyrir rafrænu viðskiptin var algjörlega fáránleg og kost- aði þvílíka aukavinnu fyrir greið- vikna menn eins og mig sem eru að kaupa fyrir heilu ættirnar. Jæja, allavega á maður von á því að gengið á þessu hækki og ekki ólíklegt að kjölfestan í bank- anum myndist fljótt. Kæmi mér ekki á óvart að einhverjir móg- úlar með vörslureikning í Lands- bankanum yrðu fljótir að koma sér í lykilstöðu. Ég er ekki viss um að Færeyingar muni eiga bankann lengi í viðbót. Nema svona kallar eins og Jákúp í Rúm- fatalagernum og einhverjir slíkir sem hafa grætt pening í útlönd- um láti til sín taka. Jæja, þá græðir maður bara á því eins og því að hafa keypt áfram í Actavis. Það kemur pott- þétt hærra tilboð frá Bjögga í bréfin. Ég held að þetta sé leikrit þar sem löngu er búið að skrifa handritið. Bjöggi mun svo senni- lega skuldsetja félagið hraustlega og selja það síðan með góðum hagnaði. Hann er fjandi glúrinn strákurinn, en hlutverk manna eins og mín er að vera glúrnir líka og græða á því þegar þeir stóru leika leikina sína. Þannig virkar maður eins og verndar- hjúpur fyrir litlu hluthafana, sem er hlutverk sem fellur vel að minni manngerð. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N Frændgarður í Færeyjum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.