Tíminn - 12.12.1980, Blaðsíða 4
Wii'f'il'!
•••í spegli tímans
Eins og myndin ber meft sér, er Mary bráöfalleg stúlka. En hún er ekki siöur vel gefin. —Þegar ég var þriggja ára, var ég bæði
læs og skrifandi, segir hún.
Dóttir Bings gerir það gott
Undanfarið ár hafa milljónir
manna bæði austan hafs og
vestan lifað sig inn i sjón-
varpsframhaldsþætti, sem
bera nafnið Dallas. Snúast
þeir um oliuauðkýfing,
J.R.Dallas að nafni, sem eft-
ir lýsingum að dæma er rak-
inn skithæll, og liðið i kring-
um hann, sem allt er meira
og minna brenglað. Svo
gerðist það i einum þætti,
J.R. var skotinn og áhorf-
endur biðu i ofvæni eftir þvi
að komast að þvi, hver hefði
gerst svo djarfur, þvi að allir
lágu undir grun. En þá vildi
hvorki betur né verr til en
svo, að i Ameriku skall á
leikaraverkfall, og aðdáend-
ur þáttanna urðu að biða i 8
mánuði eftir þvi að komast
að þvi, hver var hinn seki.
En nú er málið upplýst, svo
að fari svo, að þessir þættir
verði einhvern tima sýndir i
islenska sjónvarpinu, förum
við á mis við hina kitlandi
óvissu. Tilræðismaðurinn
var enginn annar en mág-
kona J.R., sem hann hafði
átt vingott við en forsmáð
siðan. Leikkonan, sem leikur
mágkonuna, er engin önnur
en Mary Crosby, einkadóttir
Bing Crosby (hún á tvo al-
bræður og 4 hálfbræður). —
Pabbi var alveg óvanur
stelpum og vissi ekkert
hvernig ætti að umgangast
þær, svo að hann ól mig bara
upp eins og strákana, segir
Mary. En Bing þótti mikið
vænt um dóttur sina oggerði
strangar kröfur til hennar.
Er til þess tekið, að Bing
lýsti þvi yfir i sjónvarpsvið-
tali, að hann myndi afneita
sinni eigin dóttur, ef hún tæki
upp á þvi að liía i óvigðri
sambúð. Um þær mundir var
Mary i þann veginn að hefja
búskap með Eb Lottimer, án
allrar löggildingar. Nú eru
þau gift og lifa i hamingju-
sömu hjónabandi og Mary
segistekki geta imyndað sér
annað en að pabbi hennar
hefði sætt sig við gang mála,
ef honum hefði enst lif til.
— Viö höfum góö áhrif hvort á annaö, segir Mary um hjónaband
sitt og Eb Lottimer. — Hann er sá, sem ég vil eidast meö. Eb er
upprennandi tónskáld.
Föstudagur 12. desember 1980.
krossgáta
3468. Krossgáta.
Lárétt
I) Grýtt land. 6) Verkfæri. 7) Tini. 9) Spý.
II) 501. 12) Keyrði. 13) Fljót. 15) Röð. 16)
Fæða. 18) Sjúkdómur.
Lóðrétt
1) Myrk. 2) Svei. 3) Ónotuð. 4) Sjó. 5)
Leggur saman. 8) Stök. 10) Fugl. 14) Bit.
15) Lærði. 17) Tónn.
Ráðning á gátu No. 3467
Lárétt
1) Jólamat. 6) Áta. 7) Pat. 9) Rám. 11)
Ak. 12) LL. 13) Nam. 15) Hlæ. 16) AAA.
18) Refsaði.
Lóðrétt
1) Japanir. 2) Lát. 3) At. 4) Mar. 5) Tóm-
læti. 8) Aka. 10) All. 14) Máf. 15) Háa. 17)
As.
bridge
Veikar grandopnanir hafa marga kosti.
Þær geta haft visst hindrunargildi og
einnij afmarka þær punktasviðið þannig
að áframhaldandi sagnir verða auðveia-
ari. En ókostirnir koma i ljós ef andstæð-
ingarnir ná samningnum.
Norður.
S. 432
H. 73
T. 643
L. K10543
Austur.
S. 6
H. 109842
T. 9752
L.D72
Suður.
S. KDG1098
H. ADG5
T. AG
L.A
Vestur. Norður. Austur Suður
(13-15)
lgrand pass pass dobl
pass 2 lauf pass 4spaðar,
Vestur.
S. A75
H.K6
T. KD108
L. G986
Vestur spilaði út tigulkóng. Suður tók á
ásinn og athugaði málið. Þaö var augsjá-
anlega engin hætta i spilinu ef spaði var
2-2. En ef spaðinn lá 3-1 var hætta á að
gefa tvo slagi á hjarta auk tigul og spaða-
slags ef vestur átti aðeins 2 hjörtu, sér-
staklega þarsem vestur var merktur með
hjartakóng eftir opnunina. Suður mátti
þvi ekki spila spaða strax áður en hann
spilaði hjarta þvi þegar vestur kæmist
inná hjartakóng gat hann tekið trompið úr
blindum. Og ekki mátti heldur taka strax
hjartaás og spila hjartadrottningu ef
vestur átti hjartakónginn annan þvi hann
gæti sfðan trompað hjartað yfir blindum.
En opnun vesturs hafði bent á bestu spila-
leiðina. Opnunin neitaði einspili og fimm-
lit i hálit. Suður tók þvi laufás i öðrum
slag og spilaði hjartaás og siðan hjarta-
fimmu. 1 þetta sinn var suður laus úr
vandræðunum þegar hjartakóngurinn
birtist. En ef suður hefði átt t.d. fjórlit i
hjarta hefði suður getað trompað næsta
hjarta i blindum og hent þvi siðasta niður
i laufkónginn.