Tíminn - 12.12.1980, Qupperneq 6

Tíminn - 12.12.1980, Qupperneq 6
6 Föstudagur 12. desember 1980. Ctgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt- ir. Afgreiöslustjóri: Siguröur Brynjóifsson. — Ritstjórar: Þórar- inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrfmsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefánsdóttir,, Friörik Indriöason, Frlöa Björnsdóttir (Heimilis-Tíminn), Heiöur Helgadóttir, Jónas Guömundsson (Alþing) Kristln Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (Iþróttir),. Ljósmyndir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Agústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: FIosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavlk. Simi: 86300. Auglýsingaslmi: 18300. Kvöldslmar: 86387, 86392. — Verö I lausasölu: kr. 350. Askriftargjald á mánuöi: kr. 7.000. — Prentun: Blaöaprent h.f. Prófsteinn Sú deila sem upp er komin um viðskiptaháttu i bóksölu milli samtaka bókaverslana og stór- verslunar einnar i Reykjavik hefur að vonum vak- ið mikla athygli,enda er nú hafinnaðalbóksölutimi ársins. Ekki verður það dregið i efa heldur að miklir hagsmunir i þessari grein verslunarstarf- seminnar i landinu eru i húfi. Á hitt er jafnframt að lita að hér er um að ræða nokkurs konar prófstein á þau lög um verðlagn- ingu og samkeppnishömlur sem sett voru fyrir fá- um árum og áttu að miða að þvi að auka sam- keppni og frjálsræði i viðskiptum i þvi skyni að bæta þjónustu við almenning og tryggja hóflegt vöruverð. Um árabil hefur verið i gildi samkomulag milli bókaútgefenda og bókaverslana um dreifingu og sölu bóka. Þetta samkomulag hefur i meginatrið- um falið það i sér að bókum væri þegar við útgáfu dreift um land allt og að þær væru seldar við sama verði hvarvetna. Jafnframt hefur samkomulagið miðað að þvi að tryggja stöðu bókaverslunar sem sérverslunar og að þvi að treysta stöðu litilla bókaverslana i hverfum þéttbýlis og fámennari stöðum i dreifbýli. Segja má, að þessir hafi verið kostir samkomu- lagsins, en þvi er ekki að leyna að þetta hefur verið keypt þvi verði að bækur hafa þá ekki verið á boð- stólum i stórverslunum innan um annan varning og um verðsamkeppni hefur alls ekki verið að ræða. i sambandi við hið siðast nefnda hafa t.d. sérstakar ráðstafanir verið gerðar til þess að tryggja að svo nefndir bókamarkaðir með niður- settu verði hefðu ekki nýjar bækur á boðstólum. Þá hafa i samkomulaginu verið ákvæði sem hindra hvern sem er i þvi að hefja bóksölu án tillits til þeirra sem fyrir eru, og þannig hafa þeir sem mesta hagsmuni hafa haft að verja á hverjum stað fengið að hafa úrslitaáhrif á tækifæri nýs aðila i bóksölunni. Það er vitanlega augljóst að i samkomulagi sem þessu eru ákvæði sem hindra að nokkru leyti þá viðskiptaháttu sem stefnt er að i lögunum sem nú eru i gildi. Þess vegna er það ekki að undra að samkeppnisnefndin, sem starfar á grundvelli lag- anna, heíur komist að þeirri niðurstöðu að þetta samkomulag um bóksöluna i landinu standist ekki fyrirmæli laganna. Samkvæmt lögunum verður nú næsta skrefið i þvi fólgið að fram fari viðræður milli málsaðila um breytingar á bóksölukerfinu til þess að kanna möguleikana á nauðsynlegum breytingum. Ef til vill finnst einhverjum að þetta sé ekki neitt stórmál, en slikt er misskilningur. Lögunum um þessi efni er ætlað að hafa i för með sér miklar breytingar á samkeppnisaðstæðum og viðskipta- háttum i landinu, og hér er um að ræða prófstein á framkvæmd þeirra. Þá er það og ljóst að bóksala skiptir allan almenning verulegu máli eins og á hverju ári sannast af vinsældum bóka hér á landi. Af öllum ástæðum þarf þvi að huga vel að öllum þáttum þessa máls. JS. Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Skipar Deng hann skógarvörð eða rafveitustjóra? Hua og Deng. ÞÓTT sitthvaö sé ólikt meö réttarhöldum þeim, sem fóru fr^in i Moskvu á fjórða áratug aldarinnar, þegar Stalin var að útrýma keppinautum sinum, virðlst ærið margt keimlikt. Ekki sizt eru hin sameigin- legueinkenni þau, að tilgangur- inn með réttarhöldunum er að ryðja andstæðingum úr vegi og breyta sögunni þeim i óhag. Margt bendir lika oröið til þess, að þeim sé ekki aðeins beint gegn fjórmenningunum, heldur ef til vill fyrst og fremst gegn Hua Guofeng, sem enn er formaður . Korhmúnistaflokks- ins, og félögum hans. Völd Hua hófust fyrst aö ráði i menn- ingarbyltingunni svonefndu og hann var um lengra skeið sam- starfsmaður fjórmenninganna ákærðu. Hann naut slikrar hylli Maós og fjórmenninganna, að Maó útnefndi hann sem eftir- mann sinn. Ef fjórmenningarnir verða dæmdir til þyngstu refsingar, jafnvel lifláts, er erfitt aðsjá, að jafn náinn samverkamaður þeirra og Hua, geti haldið áfram völdum á sama hátt og áður. Það er lika orðið mat margra fréttaskýrenda, að það eigi eftir að koma i ljós, að réttarhöldun- um sé i raun meira beint gegn Hua en fjórmenningunum, sem búið er að gera valdalausa með öllu og engum stafar lengur hætta af. FRÉTTARITARAR i Peking skýra frá þvi, að þar gangi nú um Hua formann alls konar sög- ur, sem bendi til þess, að valda- ferill hans muni brátt á enda. Ein sagan er sú, að Hua for- maöur búi i villu, sem Jiang Qing lét byggja handa sér, þeg- ar veldi hennar var mest. önnur sagan er sú, að Hua sé haldinn þeirri ástriðu Brésnjefs að safna bilum. Alls konar sögur ganga orðið um bila þá, sem hann hefur til afnota. Þriðja sagan er sú, að Hua sé sjálfur búinn að undirrita fyrir- mæliumaö allar myndir af hon- um verði fjarlægðar úr opinber- um skrifstofum. Hann muni þó engan veginn hafa gefið þessi fyrirmæli af fúsum vilja. Þá er mjög vitnað til þeirra ummæla Dengs, sem nú er vold- ugasti maður Kina, að brátt muni Hu Iaobang hækka i tign, en hann er nú aðalfram- kvæmdastjóri flokksins og tal- inn liklegasti eftirmaður Hua. Deng lét ekki ósvipuð ummæli falla alllöngu áður, en Zhao Ziyang tók við forsætisráð- herraembættinu af Hua. Deng lét þá hafa eftir sér, að þess yrði skammt að biða að Zhao færðist upp i valdastiganum. Gizkað hefur verið á, að Deng stefndi aö þvi að láta formanns- skiptin fara fram á þingi Kommúnistaflokksins, sem ráð- gert hefur verið að halda i janú- ar, en nú er talið, að það geti dregizt fram i mai eða júni. Sumir fréttaritarar i Peking telja, að formannsskiptin muni ekki dragast svo lengi. Deng muni 'vinna skipulega að þvi, að Hua sjálfur segi af sér og hljóti að launum einhverja minni háttar stöðu i fjarlægum lands- hluta. Deng muni beita svipuð- um vinnubrögðum og Krústjoff, þegar hann gerði Malenkoff að rafveitustjóra i Siberiu. Annað fordæmi er frá Tékkóslóvakiu, þegar Dubcek var sviptur völd- um og gerður að skógarverði i afskekktu héraði i Slóvakiu. Veggspjald I Peking, sem sýnir óþokkana fjóra á griliteini. Taliö frá vinstri: Jao, Wang, Zhang og Jiang Qing. RÉTTARHÖLDIN i Peking yfir þorpurunum fjórum og sex mönnum öðrum halda áfram. Fátt hefur komið nýtt fram. Flestir hinna ákærðu hafa játað .meint afbrot sin, nema Jiang Qing. Jiang Qing neitar yfirleitt öllu,eðasvarará þá leið,aðhún hafi farið eftir fyrirmælum eiginmanns sins, Maós for- manns. Mörgum fréttaskýrendum, sem hafa gert réttarhöldin að umtalsefni, finnst lika, að þeim sé raunverulega beint gegn Maó, þótt litið sé minnzt á hann og reynt sé að láta lita þannig út, að hann hafi ekki vitað um glæpi fjórmenninganna, eða að hann hafi verið orðinn svo sljór, að hann var verkfæri i höndum þeirra. Margir erlendir stjórnmála- menn og blaðamenn áttu við- ræður við Maó á þessum tima og siðar, og báru frásagnir þeirra af viðræðum við Maó ekki merki þess, að þeir teldu hann neitt sljóan eða andlega vanheilan, þvert á móti virtist Maó mjög skýr i hugsun og hafa sizt minna vald á umræðuefninu en við- mælendur hans. Þeir fréttaskýrendur, sem hafa reynt að réttlæta réttar- höldin yfir fjórmenningunum, hafa reynt að gera samanburð á ' þeim og Niirnbergréttarhöldun- um yfir leiðtogum nazista. Þar virðist þó greinilega óliku saman að jafna. Þar var ekki farið dult með, að þau væru ekki sizt haldin til að gefa sem rétt- asta mynd af nazismanum, sem væri uppspretta þeirra glæpa, sem hinir ákærðu hefðu framið. Hua sagður sækjast um of eftir bílum

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.