Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 11
„Við erum að opna nýja
og glæsilega verslun og vildum
vekja athygli á því,“ segir
Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri
Krónunnar.
Verslunin dreifði á þriðjudag-
inn umslögum með einni krónu á
20 þúsund heimili frá Seltjarnar-
nesi, í Vesturbæ og að Háaleitis-
hverfi í tilefni af opnun nýrrar
verslunar á Granda. Á umslögun-
um stóð eingöngu „á morgun...“ og
vakti þetta eðlilega forvitni
margra.
Björgvin G. Sigurðsson
viðskiptaráðherra opnaði verslun-
ina í gær í formlegri athöfn.
Ein króna á 20
þúsund heimili
Bandaríski
öldungadeildarþingmaðurinn
Barack Obama segist staðráðinn í
að senda hermenn til Pakistans til
að elta þar uppi hryðjuverka-
menn, nái hann kjöri til forseta-
embættis Bandaríkjanna.
„Ef við höfum upplýsingar um
mikilvæg hryðjuverkaskotmörk,
sem hægt er að grípa til aðgerða
gegn, og Musharraf ætlar ekkert
að aðhafast, þá munum við grípa
til okkar ráða,“ sagði Obama.
Svo virðist sem hann vilji með
þessu sýna styrk andspænis
gagnrýni frá mótherja sínum,
Hillary Clinton, þess efnis að
hæfileikar hans í utanríkismálum
væru takmarkaðir.
Segist senda her
til Pakistans
Alþjóðadómstóll um
þjóðarmorð í Kambódíu óttast að
til óeirða geti komið í landinu í
tengslum við réttarhöld yfir Kaing
Guek Eav, 64 ára gömlum rauðum
khmera, sem á sínum tíma var yfir-
maður hins alræmda S-21 fangelsis
þar sem um 16 þúsund manns voru
pyntaðir og myrtir.
Kaing Guek Eav, sem er 64 ára
gamall og gengur einnig undir
nafninu Duch, er fyrsti leiðtogi
ógnarstjórnar rauðu khmeranna
sem ákærður er fyrir aðild sína að
fjöldamorðunum, sem framin voru
á árunum 1975 til 1979.
Einungis er talið að sextán
manns hafi lifað af fangavist í S-21.
Þar er nú til húsa safn um
þjóðarmorðið í Kambódíu.
Dómstóllinn, sem hefur mál hans
nú til meðferðar, sendi í gær frá sér
viðvörun um að glæpir ógnarstjórn-
arinnar hefðu verið svo alvarlegir
að upprifjun þeirra við réttarhöld-
in gæti valdið því að almenningur
gripi til ofbeldisverka. Meðal ann-
ars þess vegna hefði dómstóllinn
ákveðið að láta Duch ekki lausan
gegn tryggingu. Einnig þykir hætta
á að hann reyni að ógna vitnum.
Mikil og djúpstæð reiði ríkir í
Kambódíu í garð rauðu khmeranna,
sem alla tíð hafa staðfastlega neit-
að því að neinir glæpir hafi verið
framdir á vegum stjórnar þeirra.
Dómstóll varar við óeirðum
Sextán hópar af 137
sem skiluðu fullgildum tillögum í
samkeppni um framtíðarskipulag
Vatnsmýrarinnar hafa verið valdir.
Þeir munu vinna áfram úr
hugmyndum sínum og skila
útfærslum í lok október. Þetta
kemur fram á vefsíðu Dags B.
Eggertssonar, borgarfulltrúa
Samfylkingarinnar.
Dómnefndin velur næst sex til
átta tillögur úr framhaldskeppninni
og af þeim verða tvær til fjórar
tilgreindar sem framúrskarandi.
Að minnsta kosti ein þeirra mun
hljóta samning um skipulagningu
hluta af Vatnsmýrarsvæðinu.
Sextán hópar
komust áfram
Frelsi stöðvar
tímann
Þú borgar bara fyrir fyrstu 3 mínúturnar
en getur svo talað og talað fyrir 0 kr.*
Fylltu á Frelsi með GSM símanum og njóttu þess að vera í gefandi samböndum í sumar.
Til að geta fyllt á Frelsi með símanum þínum þarftu bara að skrá debet- eða kreditkortið
þitt einu sinni á Mínu Frelsi á siminn.is eða í verslunum Símans.
*Eftir 3 mínútna símtal talar þú fyrir 0 kr. næsta hálftímann innan kerfis Símans. Nánari upplýsingar á siminn.is. 800 7000 – siminn.is
SONY ERICSSON K610i
Léttkaupsútborgun
1.900 kr.
1.500 kr. á mánuði í 12 mánuði.
Verð aðeins 19.900 kr.
á su
mar
tilbo
ðisím
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
8
5
8
9