Fréttablaðið - 02.08.2007, Blaðsíða 18
taekni@frettabladid.is
Áskrift að útvarps- og sjónvarpsþáttum
BBC býður áhorfendum
upp á að hala niður
sjónvarpsþáttum og horfa
á þá hvenær sem þeim
hentar. Þjónustan er ein
mesta byltingin í dreifingu
sjónvarpsefnis í mörg ár.
Breska ríkissjónvarpið, BBC,
hleypti af stokkunum nýrri
þjónustu á dögunum þar sem
áhorfendur geta halað niður
sjónvarpsþáttum síðustu viku og
horft á hvenær sem er.
Sjónvarpsstöðin Channel 4 býður
nú þegar upp á svipaða þjónustu.
Breskir áhorfendur geta einir nýtt
sér þjónustuna.
Þjónustan, sem kallast iPlayer
hjá BBC, þykir bylting í miðlun
sjónvarpsefnis. Í stað þess að þurfa
að haga eigin sjónvarpsáhorfi eftir
dagskrá sjónvarpsstöðvanna geta
áhorfendur nú horft á uppá-
haldsþætti sína þegar þeir vilja. Í
sjö daga eftir sýningu geta
áhorfendur náð í sjónvarpsþætti á
netið og horft á þá allt að þrjátíu
dögum eftir að náð var í þá.
Eyjólfur Valdimarsson, forstöðu-
maður þróunarsviðs hjá Ríkis-
útvarpinu, segir ekki búið að
ákveða hvort RÚV muni bjóða upp
á svipaða þjónustu, en nú þegar
geti áhorfendur horft á mikið af
sjónvarpsefni í gegnum netið á ruv.
is. Það er þó aðeins hluti efnisins
sem sýnt er á sjónvarpsrásinni og
eingöngu hægt að streyma því af
netinu en ekki hala því niður og
horfa á hvenær sem er.
Magnús B. Sveinsson, tæknistjóri
hjá Skjánum, tekur í svipaðan
streng og segir enga ákvörðun hafa
verið tekna um svona þjónustu þar.
„Eins og er bjóðum við upp á
þætti sem við framleiðum á netinu,
en til að sýna aðra þætti þyrftum
við að borga mun meira vegna
réttinda. Þetta er samt mjög sniðug
þjónusta, og ef neytendur kalla
eftir henni er ég viss um að það
verður skoðað hjá okkur. Eins og er
sé ég ekki þörfina fyrir þetta.“
Gestur G. Gestsson, fram-
kvæmdastjóri tæknisviðs hjá
Vodafone, segist eiga von á að
þjónustan, sem kallast „catch-up
TV“ í sjónvarpsbransanum, verði í
boði hjá fyrirtækinu í haust. Þá
muni áskrifendur hafa kost á því
að horfa á þætti í þrjá eða fjóra
daga eftir að þeir eru sýndir.
Byrjað var að þróa iPlayer-
þjónustuna árið 2003, og hét hún þá
Integrated Media Player. Síðan þá
hefur hún breyst þó nokkuð og var
opnað fyrir fyrstu skráningar
áhorfenda hinn 27. júlí.
Viðtökurnar hafa verið að mestu
leyti góðar, en sumir hafa kvartað
yfir tæknilegum vandræðum við
að sækja sjónvarpsþætti á netið.
Forritið sem notað er hefur
einnig verið gagnrýnt fyrir að
virka aðeins á Windows XP
stýrikerfinu, en ekki Windows
Vista eða OS X stýrikerfinu fyrir
Macintosh-tölvur. BBC hefur lofað
að helstu hnökrarnir verði lag-
færðir á næstu mánuðum.
Bylting í dreifingu og
miðlun sjónvarpsefnis
Óvíst er að verði af YouTube-kapp-
ræðum milli þeirra sem sækjast
eftir forsetatilnefningu Repúb-
likanaflokksins í Bandaríkjunum.
Aðeins þrír frambjóðendur hafa
staðfest þátttöku sína í kapp-
ræðunum, aðrir afþökkuðu boðið
eða sögðust ekki komast vegna
tímaskorts, þar á meðal fyrrum
borgarstjóri New York, Rudolph
Giuliani. Þetta kemur fram á
fréttavef Reuters.
Sams konar kappræður voru
haldnar með frambjóðendum
Demókrataflokksins um daginn,
og þóttu takast mjög vel. Almenn-
ingur gat sent inn spurningar á
myndbandi í gegnum YouTube-
myndbandsvefinn og voru tæp-
lega fjörutíu valdar fyrir útsend-
inguna. Spurningarnar þóttu mun
beittari og hreinskilnari en í hefð-
bundnum kappræðum, sem fleiri
horfðu á en nokkru sinni fyrr.
Þar sem Repúblikanaflokkurinn
skikkar frambjóðendur sína ekki
til þess að taka þátt í kappræðun-
um, eins og Demókrataflokkurinn
gerði, er alls óvíst hvort nógu
margir taki þátt til að þær verði
haldnar. Ótti við að þurfa að svara
óþægilegum spurningum frá
almenningi er talinn vera mögu-
leg ástæða fyrir dræmum við-
brögðum frambjóðendanna.
Óttast YouTube-kynslóðina