Fréttablaðið - 02.08.2007, Side 36
2. ÁGÚST 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið byggingaiðnaðurinn
Kopar hefur verið notaður um aldir til
að klæða þök og veggi. Hann endist
lengi þrátt fyrir að útlitið breytist ef
ekki er um forveðrað efni að ræða.
Einn þeirra sem vanir eru að meðhöndla
kopar sem klæðningarefni er Eyjólfur Ingi-
mundarson, blikksmíðameistari hjá Blikk-
smiðjunni Vík í Kópavogi. Hann kveðst
kaupa kopar hjá Sindra eða Áltaki og sníða
hann eftir þörfum, til dæmis í flísar, boga
eða strýtur, og leggja hann á þök og veggi.
Efninu segir hann fyrst rennt í gegnum vél
sem formar brúnir þess þannig að þær læs-
ist saman og síðan þurfi að klippa alla enda.
„Það er dálítil handavinna við koparinn en
þó fer það eftir lögun platnanna hversu
mikil hún er.“
Eyjólfur segir kopar aldagamalt, traust
og sígilt klæðningarefni. „Ég skal ekki
segja hversu langt er síðan fyrstu þökin
voru klædd hér á landi með kopar en hann
hefur verið notaður í hundruð ára á þök er-
lendis. Hingað kemur hann meðal annars
frá Danmörku.“
Heldur hefur þó dregið úr notkun kop-
ars til klæðningar, að sögn Eyjólfs, eink-
um vegna úrfellinganna. „Stundum koma
grænir taumar úr koparnum og mönnum
líkar ekki vel að fá þá niður í jarðvatnið.
Vinsældir áls og sinks hafa hins vegar verið
vaxandi.“
Koparinn endist í margar kynslóðir en
útlit hans breytist með tímanum. „Hér á Ís-
landi fellur fyrr á koparinn en víðast ann-
ars staðar. Það er seltan og brennisteinninn
sem hjálpast þar að,“ segir Eyjólfur. „En
hægt er líka að kaupa hann forveðraðan.
Þá fer hann í efnameðferð áður en hann er
settur á og heldur útliti sínu.“
Sígilt efni og
endingargott
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu er ein þeirra bygginga sem bera koparþak. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hús Brimborgar á Bíldshöfða er klætt forveðruðum kopar og því er hann alltaf eins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hér hefur koparinn verið beygður til svo hann myndar rúnnuð form. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Kopar og gler falla vel saman. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Okkar forna Alþingishús ber koparþak. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Forveðraður kopar er lítt forgengilegur. Hús Hæstaréttar er klætt honum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI