Fréttablaðið - 02.08.2007, Side 66

Fréttablaðið - 02.08.2007, Side 66
Erfidrykkjur Smurt brauð Kaffihlaðborð Tímaritið Vanity Fair hefur birt hluta lista síns yfir best klædda fólk heims. Char- lotte Gainsbourg þykir best klædda konan. Á hverju ári birtir tímaritið Van- ity Fair lista yfir best klæddu manneskjur heims. Listinn verður birtur í september-tölublaði af tímaritinu en hægt er að sjá hluta af honum á netinu. Listanum er skipt í sex hluta; konur, karlmenn, pör, tískufröm- uði, frumlegheit og sérstakan „hall of fame“-lista yfir þá sem hafa oft náð sæti á listanum. Á kvennalistanum er það hin franska Charlotte Gainsbourg sem hlýtur fyrsta sætið en einnig eru þær Fran Lebowits, Bee Shaffer, Tilda Swinton og Alexandra Grikk- landsprinsessa ofarlega. Tiki Barber íþróttafréttamaður situr efst á karlalistanum en á eftir koma til dæmis Jon- athan Becker, Lenny Kra- vitz og Richard E. Grant. Paralistann leiða þau David og Victoria Beck- ham en auk þeirra eru Damon Dash og Rachel Roy á listanum en einnig Demi Moore og Ashton Kutcher auk fleiri stílíseraðra para. Í hópi tískufrömuða eru þau Jefferson Hack, Margherita Missoni, Amy Astley hjá Teen Vogue og Hedi Slimane. „Hall of fame“-listinn hlýtur svo að vera fjölbreyttastur enda má þar sjá nöfn eins og Sofia Coppola, Anna Piaggi, Jemina Khan í sama hóp og George nokk- ur Clooney. Hljómsveitin Bermúda hefur sent frá sér lagið Dansaðu. Um er að ræða hressandi sumarlag eftir gítarleikarann Ómar Örn Ómarsson. Fyrr í vor gaf sveitin út lagið If You sem fékk ágætar viðtökur en nú er glænýtt lag sem sagt farið í loftið. Bermúda, sem spilar næst á Síldarævintýrinu á Siglufirði næstkomandi laugardagskvöld, stefnir á útgáfu sinnar fyrstu plötu í haust. Dansaðu frá Bermúda Simpsons æði ríður yfir heimsbyggð- ina þessa dagana, eftir því sem mynd- in er frumsýnd í fleiri og fleiri lönd- um. Frændur okkar í Noregi fara ekki varhluta af því. Á dögunum fagnaði norska ríkisútvarpið komu Hómers og félaga til landsins með því að flytja landsmönnum fregnir af því að Matt Groening, skapari þátt- anna sívinsælu, væri hálf-norskur. Móðir hans, Margaret Wiggum Groening, ku nefnilega vera norsk að uppruna. Groening sjálfur flaggar ætterni sínu ekki mikið. Þó hefur hann ein- hvern tíma viðurkennt að hann sé af norskum og þýskum ættum, og bætti við að þar væru á ferð „tvö ófyndn- ustu þjóðarbrot í sögu heimsins“. Þó að Groening básúni ekki smáat- riði ættartrés síns hefur fjölskylda hans haft mikil áhrif á Simpson-heim- inn allan. Faðir hans heitir nefnilega Hómer, og móðirin Margaret, eins og áður sagði. Yngri systur Groening heita Lísa og Margaret, eða Maggie. Groening fannst þó of langt gengið að nefna gemlinginn í gulu fjölskyld- unni eftir sjálfum sér, og lét hann því hafa nafnið Bart. Eldri systirin, Patty, varð að systur Marge í Simpson-fjöl- skyldunni, á meðan bróðirinn Mark var Groening innblástur að karakter óþekktarormsins Bart. Groening lét þar ekki staðar numið, heldur gaf lögreglustjóranum Clancy Wiggum ættarnafn móður sinnar, og nefndi fjöldann allan af öðrum persónum í þáttunum eftir götum í heimabæ sínum, Portland í Oregon-ríki. Groening af norskum ættum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.