Fréttablaðið - 02.08.2007, Page 80
Nei, nú nenni ég ekki þessari endalausu neikvæðni lengur,
að vera eitthvað fúll þótt frábært
fólk sé orðið svo ógeðslega ríkt
að svokölluðu venjulegu fólki
hreinlega blöskri. Ég nenni held-
ur ekki heimsendaspánum, að allt
sé að fara til fjandans út af meng-
un. Neikvæðnin er slítandi og
þess vegna er ég alvarlega að spá
í að gerast gallharður frjáls-
hyggjumaður. Það er mun væn-
legra til árangurs (árangur:
hámarks hamingja til æviloka, ef
ekki lengur) en að velta sér upp
úr svartagallsrausinu sem má
endalaust fá hjá flestum öðrum.
jákvæðni ein-
kennir frjálshyggjuna, til dæmis
á netsíðunni Andríki. Þar er alls
ekkert allt að fara til fjandans,
heldur þvert á móti: það má dúlla
sér áfram í unaðslegri neyslu-
sælu út í hið óendanlega og
gróðurhúsaáhrifin eru eintómt
rugl. Eða það skilst mér – ekki
eins og ég nenni að lesa þetta.
Hólmsteinn er
heldur aldrei með svartagalls-
raus. Hann hélt gott gigg um dag-
inn og fékk einhvern útlending til
að segja okkur að ef skattar yrðu
lækkaðir þá myndu allir vinna
miklu meira því þá slyppu þeir
við að láta hirða af sér fúlgur til
að púkka upp á börn, gamal-
menni, sjúklinga og listafólk. Það
var lagið! Það er akkúrat það sem
þessi letingjaþjóð þarf, að vinna
meira. Skítt með það þótt við
eigum Evrópumet í vinnu bæði
utanhúss og innan, ef við lækkum
skatta, eða afnemum þá bara
alveg, þá verður sko fyrst stritað
fyrir alvöru. Sjálfur myndi ég
vinna allan sólarhringinn á pill-
um frá lækninum ef ég þyrfti
ekki að láta mitt af hendi rakna
til þurfalinga.
segir að það sem
við þurfum núna séu fleiri ríkir.
Því fleiri ríkir, því meiri mylsna
dettur á gólfið til hinna, segir
hann. Ef nógu margir ríkir koma
upp hlýtur til dæmis fyrr eða
síðar einhverjum ríkum að finn-
ast ég skemmtilegur, en ekki
endalausar bunur af ríkum sem
fíla bara eitt lag í öllum heimin-
um sem er Nína með Stebba og
Eyva, eða strákunum í Buff ef
Stebbi og Eyvi eru uppteknir. Ef
hér fyllist allt af ríkum með
almennilegan smekk kemur
örugglega einhver á endanum
sem vill fá mig með kassagítar-
inn í veiðikofann til að spila
gömul Bless-lög fyrir sig á 200
þúsund kall stykkið. Ég bíð
spenntur.
Frjálshyggju ég Fít
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
2
4
6
4
Vertu í góðu
sambandi
um helgina
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Nokia 6151
Einfaldur og sérlega handhægur 3G sími sem kemur þér í
samband þegar á þarf að halda. Myndavél (1,3mp), Mp3 spilari,
útvarp, EGDE gagnaflutningur og tenging við Vodafone live!
tryggja að þér leiðist ekki með þennan síma við höndina.
Sharp GX-17
Ódýrasti myndavélarsíminn á markaðnum, stílhreinn og
þægilegur. Fyrir þá sem eru að leita að traustum talsíma
með litlum aukabúnaði. VGA myndavél, Bluetooth,
tölvupóstur og tenging við Vodafone live! tryggja gott
samband um allt land.
Meistaradeildarboltar
Hinir vinsælu meistaradeildarboltar fást í verslunum
okkar og eru á sérstöku tilboði fyrir Og1 viðskiptavini.
Almennt verð 1.990 kr.
Til að gera helgina sem eftirminnilegasta finnur þú réttu
ferðafélagana hjá Vodafone. Skoðaðu veðurspá helgarinnar
með Vodafone live! Komdu við í verslunum okkar eða hringdu
í 1414 til að fá nánari upplýsingar.
19.900 kr.
9.900 kr.
990 kr.
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is