Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.09.2007, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 04.09.2007, Qupperneq 1
Þriðjudagar *Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í júlí 2007 Lestur meðal 18–49 ára á höfuðborgarsvæðinu 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 35% B la ð ið M o rg u n b la ð ið F ré tt a b la ð ið D V 42% 68% 6% D VV D V DD Heiðarleiki, kjarkur, þor, vitundarvakning og flottari kroppur er það sem fæst með ástundum rope-yoga. „Rope-yoga er öflugt heilsuræktarkerfi sem byggist á vaxtarmótandi æfingum, hugleiðslu og kenningum um hinn gífurlegan mátt hugans,“ segir Elín Sigurð- ardóttir, íþróttafræðingur og rope-yoga meistara- kennari, sem í gær opnaði glæsilega rope-yoga stöð á Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði.„Hugmyndafræði rope-yoga byggir á ábyrgð hvers og eins á eigin tilveru M ðer hægt ð b upp á innfrarauðan hitaklefa til meðferðar við vöðva- bólgu, gigt og til almennrar vellíðunar. „Rope-yoga mótar líkamann á fallegan hátt og brennir fitu hratt þótt æfingakerfið sé rólegt. Það þarf ekki að hamast og hlaupa frá sér allt vit til að brenna. Við áreynslu eykst innöndun og brennsla. Í rope-yoga notum við sjávarfallsöndun sem sexfaldar lífaflið. Þá hitnar líkaminn og bæði andleg og líkam- leg melting stórbatnar. Fólki eykst kjarkur og orka til að framkvæma drauma sína; það drífu i skiptir um vinnu o bM Wii-leikjatölvan trónir á toppnum Opnar nýja rope-yoga stöð Rjúkandi gangur á Reðasafni tölvur og tækniÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2007 OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16 DELTALIGHT Lögreglumenn úr sérsveit Ríkislögreglustjóra munu ganga vaktir við hlið lögreglu höfuðborgarsvæðisins að næturlagi í miðborginni á næstunni. Þessi aukna löggæsla hefst um næstu helgi og verða sérsveitarmenn á miðborgarvöktum aðfaranætur laugardaga og sunnudaga. „Við höfum boðið fram aðstoð sérsveitarinnar til að styrkja lög- gæsluna í miðborginni um helg- ar,“ segir Jón Bjartmarz, yfir- lögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. „Það er ljóst að með því verður bætt verulega í mannafla við lög- gæslu, sérstaklega í miðborg- inni.“ Jón segir hlutverk sérsveitar Ríkislögreglustjóra tvíþætt. „Annars vegar er hún sérsveit, sem sinnir margvíslegum verk- efnum sem slík,“ útskýrir hann. „Þar á meðal er að bregðast við vopnamálum sem koma upp, sinna handtökum hættulegra manna, svo og húsleitum við slík tilvik, kafarastörfum, sprengjueyðingu og öryggisgæslu þegar um erlenda þjóðhöfðingja er að ræða. Að auki sinnir hún að sjálfsögðu þjálfun sem sérsveit. Hins vegar er sérsveitin stoð- deild við lögregluliðin í landinu. Sem slík er hún hreyfanlegur liðs- styrkur til aðstoðar þar sem á þarf að halda hverju sinni og hefur á þessu ári lagt við viðbót- arliðsafla víða um land.“ Jón segir enn fremur að sér- sveitin manni merkta lögreglu- bíla og sé úti í hefðbundinni lög- gæslu daglega. „Að lágmarki mannar sérsveit- in eina útkallsbifreið á höfuðborg- arsvæðinu og nágrenni. En í ljósi fyrirliggjandi verkefna hverju sinni og mannafla þá mannar hún allt að þrjá bíla í almennri lög- gæslu á höfuðborgarsvæðinu, enn fremur einn bíl á Akureyri og annan í Keflavík.“ Jón útskýrir að 25 ára reynsla hafi sýnt og sannað að betra sé að sérsveitin sé sjálfstæð deild, sem sé viðbót við hina almennu lög- reglu. „Þegar við tökum hana í sértæk verkefni eða æfingar þá erum við ekki að raska hinni svæðisbundnu almennu löggæslu. En þegar mannaflinn er til reiðu til að sinna almennri löggæslu þá kemur hann inn sem styrking og viðbót. Þegar sérsveitin var efld og færð undir Ríkislögreglustjóra var um eðlilega skipulagsbreyt- ingu að ræða því sérsveitin starf- ar á landsvísu. Einstakir lögregl- ustjórar eiga ekki að sinna verkefnum á landsvísu. Það er hlutverk Ríkislögreglustjóra. Sérsveitin í dag er því hrein við- bót við hina almennu svæðis- bundnu löggæslu.“ Sérsveitin sinnir löggæslu í miðbænum um helgar Sérsveit Ríkislögreglustjóra verður við löggæslustörf í miðborg Reykjavíkur að næturlagi um helgar, frá og með næstu helgi. Lögreglumönnum verður fjölgað verulega á næturvöktum á þessum tímum sólarhrings. „Það hlýtur að vera réttur einstaklings- ins að fá að halda þessum upplýsingum fyrir sjálfan sig,“ segir Ármann Gylfason, lektor við Háskólann í Reykjavík. Ármann vísar hér til reglna um skattheimtu, en samkvæmt þeim er heimilt að láta vinnuveitendur innheimta fjármagnstekjuskatt fyrir tollstjórann í Reykjavík, eða sýslumenn utan borgarinnar. Vinnuveitendur fá þá sendar upplýsingar um fjármagnstekjur starfsmannanna. Aðstoðartollstjóri, Sigurður Skúli Bergsson, segir þetta fyrirkomulag byggt á gömlum merg. Árið 2001 hafi hins vegar verið sett ný reglugerð sem skyldar atvinnurekendur til að halda eftir allt að þremur fjórðu hluta launa þeirra starfsmanna sem skulda tekjuskatt, útsvar eða gjald í Fram- kvæmdasjóð aldraðra. „Þetta hefur verið talin nokkuð þægileg og örugg leið til að innheimta gjöldin,“ segir Sigurður. Einhverjir launagreiðendur hafi þó kvartað yfir því að þurfa að sinna þessu verki fyrir ríkið án þess að fá greitt fyrir. Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir að þar sem enginn hafi kvartað undan þessu geti Persónuvernd ekki tekið afstöðu til vinnu- lagsins. Hæstiréttur Kenýa hefur fengið það erfiða verkefni að skera úr um hvort Pontíus Pílatus hafi framið mannréttinda- brot þegar hann fyrirskipaði krossfestingu Jesú Krists fyrir tvö þúsund árum. Á fréttavef NBC kemur fram að hópurinn „Vinir Jesú“ hefur beðið dómstólinn um að túlka lög Móse til að meta hvort Jesús hafi hlotið sanngjarna málsmeðferð þegar hann var dæmdur fyrir guðlast. Málið hefur vakið fjölda lagalegra spurninga á borð við hvort tvö þúsund ára gamalt brot hafi ekki fyrnst fyrir löngu, og hvort hæstiréttur Kenýa hafi yfir höfuð eitthvert dómsvald yfir fjarstöddum embættismönnum Rómarveldis. Málsmeðferð hefst að loknum sumarleyfum. Mál Jesú Krists loks tekið fyrir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.