Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 2
„Nýliðunin er ekki nógu mikil. Margir sem hafa
komið til starfa hjá okkur hafa síðan farið til
höfuðborgarinnar eða í skóla og koma ekki aftur,“
segir Sveinbjörn Már Birgisson, varaformaður
björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli.
Um helgina auglýsti Slysavarnafélagið Lands-
björg eftir sjálfboðaliðum til starfa. Leitað er að
áhugasömu fólki á öllum aldri til starfa í björgunar-
sveitum félagsins.
Sveinbjörn Már segir aðsóknina í björgunarsveit-
ina vera dræma og álagið á þeim sem eru í við-
bragðsstöðu sé mikið. „Þetta er alltaf sami hópurinn
sem er að störfum,“ segir Sveinbjörn Már og bendir
á hvernig breyttar forsendur varðandi skóla og
atvinnutækifæri hafi haft mikil áhrif á hvernig
gangi að manna í björgunarsveitirnar. „Fólk fer
frekar eitthvert annað heldur en að stoppa hér. Það
er ekki gott að segja hvað er til ráða. Þetta er ekki
stórt vandamál núna á meðan þeir sem mæta alltaf
eru ennþá með okkur en þetta gæti orðið vandamál
í framtíðinni,“ segir Sveinbjörn Már.
Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarna-
félagsins Landsbjargar, segir björgunarsveitirnar
vera vel mannaðar í dag en það sé alltaf pláss fyrir
fleira fólk. Hann segir álagið hafa aukist síðustu
árin. „Í dag eru fleiri samfélagsleg verkefni sem
björgunarsveitirnar koma að. Við höfum verið að
aðstoða á tjaldstæðum og sinnt sjúkragæslu á
bæjarhátíðum en þeim fjölgar ár frá ári. Síðan eru
Íslendingar alltaf að verða duglegri að leita til
fjalla.“ Kristinn segist finna fyrir miklum áhuga hjá
almenningi á starfinu. „Breiddin í umsækjendahóp-
num er að aukast. Við erum að fá eldra fólk inn í
félagið eins og fólk sem er búið með nám, búið að
koma sér fyrir og langar að sinna einhverjum
félagsmálum.“
Björgunarsveitir eru með kynningarfundi um allt
land. Kristinn bendir áhugasömum á að mæta á
fundina eða hafa samband við þá björgunarsveit
sem er í næsta nágrenni. Þar fást upplýsingar um
hvernig hægt er að sækja um og gerast sjálfboðaliði
hjá björgunarsveitum Landsbjargar.
Alltaf sama fólkið
við björgunarstörf
Álagið á björgunarsveitarmönnum eykst með fleiri útköllum. Gæti orðið
vandamál í framtíðinni, segir varaformaður Dagrenningar. Mikill áhugi á
störfum björgunarsveitanna, segir framkvæmdastjóri Landsbjargar.
Magnús, heldur Eimskip ykkur
á floti?
Hæstiréttur hefur staðfest með dómi að
saksóknari efnahagsbrota megi ekki gefa út ákærur
í eigin nafni. Ákærur í tveimur málum voru því
ranglega gefnar út að mati Hæstaréttar.
Hæstiréttur staðfesti frávísun Héraðsdóms
Norðurlands eystra í máli fjögurra manna sem
ákærðir voru fyrir að nýta sér kerfisvillu í heima-
banka Glitnis og náð sér þannig í á þriðja tug
milljóna króna.
Hæstiréttur staðfesti einnig dóm Héraðsdóms
Reykjaness í máli gegn tveimur mönnum sem
ákærðir voru fyrir ýmis fjárhagsbrot en máli þeirra
hafði verið vísað frá á sömu forsendu og málinu í
Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Ákærur verða hér eftir gefnar út í nafni saksókn-
ara efnahagsbrota hjá embætti ríkislögreglustjóra
en ekki einungis saksóknara efnahagsbrota eins og í
fyrrnefndum málum.
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahags-
brota hjá embætti ríkislögreglustjóra, segir nýjar
ákærur verða gefnar út í málunum sem hefur verið
vísað frá og það sama eigi við um þrjár ákærur sem
eru til meðferðar í dómskerfinu. „Framvegis verður
farið eftir þessari niðurstöðu Hæstaréttar og hún
væntanlega notuð sem viðmið við endurskoðun
laga,“ segir Helgi Magnús.
Menntamálaráðherra
viðurkenndi afmörkuð fræðasvið
nokkurra háskóla í gær. Lista-
háskóli Íslands var þó viðurkenndur
í heild sinni, fyrstur íslenskra
háskóla.
„Við erum afar stolt af þessu og
ég hef verið að grínast við hina
rektorana að ef þá vanti ráðlegg-
ingar geti þeir komið til okkar,“
segir Hjálmar H. Ragnarsson,
rektor LHÍ og hlær.
„Þarna er opinber stjórnsýsla að
viðurkenna að háskólinn standist
ákveðna staðla og að hann standist
samanburð við það sem þekkist
erlendis,“ segir hann, en LHÍ var
viðurkenndur í heild sinni, því allt
listnámið var tekið fyrir sem eitt
fræðasvið.
„Þetta kemur að góðum notum í
samstarfi við erlenda háskóla sem
gera kröfu til svona viðurkenn-
inga,“ segir rektor. Fræðasvið
hugvísinda, guðfræði, náttúru-,
verk- og tæknivísinda við Háskóla
Íslands hlutu viðurkenningu. Einn-
ig fræðasvið verk- og tæknivísinda
við Háskólann í Reykjavík ásamt
fræðasviðum náttúruvísinda við
Landbúnaðarháskólann.
LHÍ viðurkenndur í heild sinni
Flugskeyti frá Palest-
ínumönnum lenti og sprakk rétt
hjá leikskóla í bænum Sderot, bæ
sem oft verður fyrir árásum frá
Palestínumönnum. Foreldrar barn-
anna brugðust ókvæða við og
segjast ekki ætla að senda börnin
sín í skóla fyrr en nýr skóli rís
fyrir utan bæjarmörkin.
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, segir að nú muni Ísraelar
„hvergi halda aftur af sér
varðandi árásir á þá sem skjóta
upp flugskeytunum og þá sem
útvega þeim þær“.
„Við tökum þessar hótanir
alvarlega,“ segir Taher Nunu,
talsmaður Hamas á Gaza-strönd.
„Við höfum gefið út viðvaranir um
komandi fjöldamorð á fólki í
Gaza.“
Olmert hótar
hefndarárásum
Frestur til að lýsa kröfu
í hlutafé í fjárfestingarfélaginu
Gift, dótturfé-
lagi Samvinnu-
trygginga, rann
út á miðnætti í
nótt. Í júní var
ákveðið að
leggja Sam-
vinnutrygging-
ar niður og að
þeir sem
tryggðu hjá
félaginu yrðu
hluthafar í Gift.
Kristinn Hallgrímsson,
formaður skiptanefndar félags-
ins, segir töluverðan sprett hafa
verið í gær, áður en fresturinn
rann út. „Við teljum að við náum
utan um þetta allt saman með
upplýsingar okkar um þá sem
tryggðu,“ segir hann. „Flestar
kröfurnar koma frá fólki sem er
bara að minna á sig.“
Of seint að lýsa
kröfu í hlutafé
Stjórn Straums-
Burðaráss Fjárfestingabanka
ákvað á fundi sínum í gær að
skrá hlutafé bankans í evrum í
stað íslenskra króna frá og með
20. september næstkomandi.
Straumur er fyrsti íslenski
bankinn og jafnframt fyrsta
íslenska félagið sem skráð er í
Kauphöllina sem skráir hlutafé
sitt í erlendri mynt.
Bankinn segir skráninguna lið
í stefnu hans að auka hlutfall
erlendra fjárfesta í bankanum og
í rökréttu framhaldi af því að
bankinn hóf að birta uppgjör sín
í evrum á síðasta ári.
Kastar krónum
fyrir evrur
Níu ára barnshafandi
stúlka dvelur nú í mæðrahúsinu í
Bluefields í Níkaragva, sem
Þróunarsamvinnustofnun Íslands
lét byggja og var opnað fyrir
nokkrum vikum. Stúlkunni var
nauðgað af frænda sínum.
Fóstureyðingar eru bannaðar
með öllu í Níkaragva, og því
kemur ekki annað til greina en að
stúlkan eignist barnið. Sam-
kvæmt tilkynningu frá Þróunar-
samvinnustofnun er hún komin
fimm mánuði á leið og mun dvelja
í mæðrahúsinu fram að fæðingu
þar sem sjúkrahús bæjarins
hefur ekki aðstöðu til að hýsa
hana.
Hýsir barn með
barn undir belti