Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 12

Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 12
Allt að 23 metra hús geta risið við hlið húss Morgunblaðsins við Rauðavatn eftir að borgarráð samþykkti að selja þremur fyrirtækjum byggingarrétt í Hádegismóum fyrir samtals 591 milljón króna. Lóðirnar sem um ræðir eru við Hádegismóa númer 1, 3 og 5. Léttkaup ehf. kaupa stærstu lóðina, samtals 17 þúsund fermetra fyrir 296,5 milljónir króna. Bakarameistarinn kaupir byggingar- réttinn á tæplega tíu þúsund fermetra lóð á 172,6 milljónir og Límtré Vírnet ehf. kaupir sjö þúsund fermetra lóð á 122 milljónir. Í söluverðinu eru innifalin gatnagerðargjöld fyrir samtals 16.950 fermetra byggingar. Þess má geta að Léttkaup ehf. reka Europris- verslanirnar svonefndu. Eins og áður segir mega húsin vera allt að 23 metrar á hæð. Tekið er fram í skipulags- skilmálum fyrir Hádegismóa að við hönnun bygginganna verði að taka tillit til þess hversu áberandi svæðið sé í umhverfi sínu, ásamt því hversu nálægt það er útivistarsvæðinu við Rauðavatn, golfvellinum á Grafarholti og heiðarlöndunum þar fyrir ofan. „Hönnuðum er sérstaklega bent á að meirihluta mannvirkja í Hádegismóum ber við himin, bæði séð frá Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi,“ segir í skilmálunum. Forsætisráðherra Bret- lands, Gordon Brown, reyndi að slá á væntingar um að hann myndi kalla til snemmbúinna kosninga í Bretlandi í samtali við fréttastofu BBC í gær. Brown sagði kosningar ekki tímabærar nú en vildi þó ekki úti- loka að hann kynni að boða til kosn- inga fyrr en ráðgert er. Frá því að Brown tók við af Tony Blair sem forsætisráðherra 27. júní síðastliðinn hefur honum og Verkamannaflokknum vegnað vel í skoðanakönnunum. Þessi sterka staða hefur komið af stað orðrómi um að Brown kunni að kalla til kosninga fyrr en áætlað er. Næstu kosningar eiga að fara fram í júní árið 2010. Segir kosningar ótímabærar nú Á sunnudaginn staðfesti þýska innanríkisráðu- neytið að ætlunin væri að lækka lágmarksaldur fyrir vopnaeign úr 21 ári niður í 18, eins og þýska tímaritið Spiegel hafði skýrt frá. Strax daginn eftir kom tilkynning frá ráðuneytinu um að hætt væri við þessi áform. Áformin voru það harðlega gagnrýnd strax eftir að um þau fréttist að Wolfgang Schäuble innanríkisráð- herra, sem hafði haft forgöngu um þau, sá sér ekki annað fært en að hætta við allt saman. Snarlega hætt við ný vopnalög George W. Bush Banda- ríkjaforseti hélt í óvænta heim- sókn til Íraks í gær ásamt Robert Gates utanríkisráðherra og fleiri háttsettum embættismönnum. Til- gangurinn var sagður að leggja mat á ástandið í Írak, nú þegar óðum styttist í uppgjör á banda- ríska þinginu um stríðsrekstur- inn. Bush og fylgilið hans fóru þó ekki til höfuðborgarinnar Bagdad, heldur á afskekktan herflugvöll í Anbar-héraði. Þar er mun frið- sælla en í Bagdad. Bush og Gates hittu að máli bæði Nouri al-Maliki forsætisráð- herra og Jalal Talabani forseta. Einnig hittu þeir David Petreus herforingja, sem er yfirmaður bandaríska heraflans í Írak, og Rayan Crocker, sendiherra Banda- ríkjanna í Írak. Í næstu viku gerir Petreus Bandaríkjaþingi grein fyrir ástandinu í Írak. Einnig mun þing- ið spyrja Crocker sendiherra spjörunum úr. Loks mun Bush for- seti leggja fram fyrir 15. septemb- er skýrslu sína um það hver árang- ur hefur orðið af fjölgun í bandaríska herliðinu á síðustu mánuðum, sem Bush fór fram á síðastliðinn vetur. Mat þeirra Petreus og Crocker á ástandinu ásamt skýrslu forsetans mun ráða miklu um það hvert næsta skrefið verður í stríðinu í Írak. Demókratar, sem hafa meiri- hluta á þinginu, vilja að herinn verði kallaður heim hið fyrsta, en Bush hefur jafnan staðið fastur á því að herinn fari hvergi fyrr en raunveruleg batamerki sjást. Bush stoppaði í sex tíma í Írak og hélt síðan áfram til Ástralíu á leiðtogafund Asíu- og Kyrrahafs- ríkja. Sex vikur eru síðan ákveðið var að hann færi til Íraks, en af öryggisástæðum var ekki skýrt frá því fyrr en hann var kominn á staðinn. Nú eru 162 þúsund bandarískir hermenn í Írak. Þeim hefur fjölg- að um 30 þúsund frá því í febrúar, þegar Bush fór fram á aukafjár- veitingu til að auka herstyrkinn svo draga mætti úr ofbeldi í land- inu. Andstæðingar forsetans gagn- rýndu Íraksferðina; sögðu hana sýndarmennsku eina, til þess ætl- aða að auglýsa stefnu forsetans varðandi Írak. Fulltrúar forsetans í Hvíta húsinu í Washington voru hins vegar fljótir til að andmæla því. Bush hafi viljað tala við al- Maliki augliti til auglitis og hitta yfirmenn hersins á staðnum. Bush kynnir sér ástandið Bush Bandaríkjaforseti brá sér í heimsókn til Íraks. Upp úr miðjum mánuðinum stefnir í uppgjör á Bandaríkjaþingi um framhald stríðsrekstrar í Írak. HLUTHAFAFUNDUR HJÁ ICELANDAIR GROUP HF. Á DAGSKRÁ FUNDARINS ERU: 1. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins, sem felur það í sér að aðalstjórnarmönnum er fækkað úr sjö í fimm. 2. Tillaga um stjórnarkjör, með fyrirvara um að tillaga skv. 1. tl. verði samþykkt. 3. Tillaga stjórnar um ákvörðun þóknunar til varastjórnarmanna. 4. Önnur mál löglega upp borin. Dagskrá hluthafafundarins og endanlegar tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins á Reykjavíkur- flugvelli til skoðunar fyrir hluthafa frá og með 4. september 2007. Aðgöngumiðar, fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað frá kl. 15.30 á fundardegi, miðvikudaginn 12. september 2007. Stjórn Icelandair Group hf. A. Tillaga um breytingar á 1. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins felur það í sér að stjórnarmönnum er fækkað úr sjö í fimm. Verði tillagan samþykkt, þá verður málsgreinin svohljóðandi: „Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og þremur til vara, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Um hæfi stjórnarmannanna fer að lögum. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal.“ B. Með fyrirvara um að ofangreind tillaga um breytingar á samþykktum um fækkun stjórnarmanna verði samþykkt, sem óhjákvæmilega kallar á nýtt stjórnarkjör, þá skal skila framboðum til aðal- og varastjórnar skriflega fyrir kl. 16.00 föstudaginn 7. september 2007 til skrifstofu félagsins á Reykjavíkurflugvelli. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnar- störf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. C. Stjórn gerir tillögu um að varastjórnarmönnum skuli greidd sama þóknun og aðalstjórnarmönnum frá aðalfundi félagsins í mars sl. til hluthafafundarins sem nú er haldinn. Fyrir tímabilið frá þessum hluthafafundi fram að næsta aðalfundi leggur stjórn til að varastjórnar- mönnum verði greiddar 100.000 kr. fyrir hvern setinn stjórnarfund. Stjórn Icelandair Group hf. boðar til hluthafafundar hjá félaginu miðvikudaginn 12. september 2007 kl. 16.00 síðdegis. Fundurinn er haldinn á Nordica hóteli, Reykjavík. NÁNAR: ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 3 54 90 1 2/ 06

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.