Fréttablaðið - 04.09.2007, Side 18
Beinþéttnimæling er sársaukalaus rannsókn
sem metur kalkmagn í beinum og gefur vísbend-
ingar um brothættu.
„Fólk kemur oft hingað að eigin frumkvæði og lækn-
ar senda líka fólk í auknum mæli til okkar. Þessi rann-
sókn hefur heilmikið gildi.“ segir Díana Óskarsdóttir
geislafræðingur sem starfar að beinþéttnimælingum
á Landspítalanum í Fossvogi. Þar þarf sem sagt að
panta tíma með fyrirvara en mælingin tekur stutta
stund og munnleg niðurstaða liggur fyrir strax að
henni lokinni. Síðan gefst fólki kostur á símaviðtali
við Gunnar Sigurðsson sérfræðing. En hvað er til
ráða ef niðurstöður úr beinþéttnimælingunni eru
óhagstæðar?
„Það er auðvitað læknir sem ákveður hvað þá verð-
ur gert,“ ansar Díana. „En það fyrsta sem við bend-
um á er hollt mataræði og inni í því er kalkrík fæða.
D-vítamínið skiptir miklu máli og þá nefnum við lýsið
fyrst því inntaka þess er auðveld leið til að nálgast D-
vítamínið. Hreyfingin skiptir máli líka. Reglubundin
líkamsþjálfun er mikilvæg til að fyrirbyggja bein-
þynningu. Síðan eru til beinþéttnilyf og það eru lækn-
arnir sem taka ákvarðanir um notkun þeirra.“
Díana segir konur vera í meirihluta þeirra sem
komi í mælingu, enda sé þeim þrefalt hættara við
beinþynningu en körlum. Bæði sé hámarks bein-
þéttni kvenna yfirleitt minni en karla og eftir tíða-
hvörf verði bein þeirra brothættari en áður. „Konur
sem fara snemma í tíðahvörf eru í aukinni hættu svo
og konur sem gengist hafa undir legnám. Hér á landi
er talið að rekja megi um eitt þúsund til tólf hundruð
brot til beinþynningar á ári hverju og að önnur hver
kona yfir fimmtugt beinbrotni einhvern tímann,“
segir hún.
Þess má geta að fullkomnir beinþéttnimælar eru á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Landspítalan-
um í Fossvogi en víðar hægt að fara í mæla sem gefa
vísbendingu um beinheilsuna, svo sem hjá Lyfju,
Gigtarfélagi Íslands og Beinvernd.
Vísbending um þéttni
beinanna og brothættu
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103
YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunaræfingar
slökun og hugleiðsla
Sértímar fyrir barnshafandi
og kraftyoga
Allir yoga unnendur velkomnir
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
BYRJENDANÁMSKEIÐ ERU AÐ HEFJAST
Upplýsingar eru veittar í síma 551 4003
og á heimasíðu félagsins www.thorshamar.is
Matvörur
Á Náttúrumarkaðinum
finnur þú gott úrval
af gæðavörum á góðu
verði til heimilisins...
...vistvænar
vörur...
...beint
heim....heilsu- og
hollustuvörur...
...opið alltaf,
allsstaðar...
www.natturan.is
09
-2
00
7
N
át
tú
ra
n
.is
Borðaðu
þig granna(n)
Nánari upplýsingar
Sími 865-8407
www.vigtarradgjafarnir.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki