Fréttablaðið - 04.09.2007, Page 36
Fyrstu myndir birtar af Titanic
Violeta Smid er búlgörsk að uppruna
en hefur búið á Íslandi í yfir þrjá-
tíu ár og í 25 þeirra hefur hún verið
stjórnandi Söngfélags Skaftfellinga í
Reykjavík. „Þetta er orðin löng og góð
samleið, einn fjórði úr öld,“ segir hún
brosandi. „En nú er þetta líka orðið
ágætt og kominn tími á að nýr stjórn-
andi taki við. Jón Ísleifsson sem var
á undan mér var orðinn fullorðinn
þegar hann hætti og honum leist ekk-
ert á mig í byrjun. „Einhver stelpa!
Hún verður búin að drepa niður kór-
inn eftir ár,“ spáði hann. En síðan varð
hann sáttur við mig og kórinn er enn
í fullu fjöri. Í vor höfðum við hátíð-
artónleika í tilefni af afmælinu og þá
komu nokkrir til liðs við okkur aftur
sem voru hættir. Það var skemmti-
legt.“
Violeta segir gott fólk og góðan anda
í Söngfélagi Skaftfellinga og kveðst
alltaf hafa verið vel sett með karla í
kórnum. „Ég monta mig oft af strák-
unum mínum því margir kórar stríða
við skort á karlaröddum. Hjá mér hafa
þær alltaf verið þéttskipaðar,“ segir
hún ánægð en hvernig skyldi hún hafa
kynnst kórnum upphaflega. „Ég var á
Eskifirði og Reyðarfirði fyrst eftir að
ég flutti til landsins og stjórnaði þar
Eskjukórnum. Einn góðan veðurdag
eftir að ég flutti til Reykjavíkur 1982
kom systir konu í Eskjukórnum til
mín og bað mig að stjórna Söngfélagi
Skaftfellinga. Ég lét ganga á eftir mér
í viku en sagði svo „allt í lagi, ég skal
prófa“ og sú prufa stóð í 25 ár.“
Söngfélag Skaftfellinga hefur starf-
að síðan 1974 og gefið út tvær plöt-
ur, þá seinni undir stjórn Violetu. Hún
heitir Brimströndin og vísar titillinn
til átthaga kórfélaganna. En skyldi
söngstjórinn eitthvað hafa innleitt
búlgarska tóna í kórnum? „Nei, en
við höfum sungið eitt lag á tékknesku
sem hér heitir Kátir dagar. Ég fór ung
til Tékklands að læra og kórinn hefur
sungið í Prag. Flestar söngferðir hafa
samt verið um Skaftafellssýslurnar.“
Violeta er þekkt fyrir að segja
skemmtisögur hvar sem kórinn hefur
komið fram. „Ég er alin upp við brand-
ara,“ útskýrir hún brosandi. „Heima
voru alltaf gestir og gangandi og
þegar kaffið var komið á borðið var
byrjað að segja brandara. Sumar sög-
urnar mínar eru tvíræðar en ég nota
samt aldrei gróf orð þannig að ef ein-
hver sakar mig um dónaskap get ég
sagt. „Það ert bara þú sem hugsar
svona!“
Þó Violeta sé að hætta með Skaft-
fellingakórinn ætlar hún að búa áfram
á landinu og er með fulla kennslu í
Söngskólanum við Snorrabraut. „Ég
vil hvergi vera nema á Íslandi enda er
ég orðinn hálfgerður Skaftfellingur,“
segir hún að lokum.
„Listamaðurinn þarf að
lúta skrímslinu sem býr
í ímyndunarafli hans.“
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann
30. ágúst, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 6. september kl. 12.00.
Kristján Möller Hólmfríður Karlsdóttir
Birgir Möller Þórstína Sigurjónsdóttir
Ragnheiður Möller Sigurður Sigurbjörnsson
barnabörn
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi,
Einar Möller
vélstjóri
Heiðarholti 40, Keflavík
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Þorbjörg Ragna
Björnsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þann 31. ágúst síðastlið-
inn. Útför fer fram frá Lágafellskirkju fimmtudaginn
6. september kl. 13.
Pétur J. Magnússon
Björn Pétursson
Magnús Pétursson
Pétur R. Pétursson Ólöf A. Þórðardóttir
Björn Hlynur Pétursson Alexander Glói Pétursson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Lovísa Þorgilsdóttir
Kirkjuvegi 1, Keflavík,
lést á Dvalarheimilinu Hlévangi, Keflavík, föstudaginn
31. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 7. september kl. 14.00.
Unnur Þorsteinsdóttir Þórður Kristjánsson
Guðný Helga Þorsteinsdóttir Halldór Fr. Olesen
Hrönn Þorsteinsdóttir Magnús Jónsson
Magnea Þorsteinsdóttir Johan D. Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og vinarhug, við
andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Ástu Ólsen
áður til heimilis að Hamarstíg 6.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Reynihlíðar á
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Jakob V. Kárason Herborg Herbjörnsdóttir
Guðrún J. Káradóttir
Jóhannes Kárason Sólveig B. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Svava Ólafsdóttir
frá Hruna, Klausturhólum 2
Kirkjubæjarklaustri,
lést á Landspítalanum Fossvogi 2. september. Hún
verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju föstudaginn
7. september klukkan 14.00.
Andrés S. Einarsson og fjölskylda
Elskulegur sonur okkar, dóttursonur og
bróðir,
Hilmar Már Gíslason
verður jarðsettur í dag 4. september í Fossvogskirkju
kl. 13.00.
Gísli Sigurgeir Hafsteinsson Heiður Sverrisdóttir
Ragnheiður Hilmarsdóttir Steinar Jónsson
Hilmar Mýrkjartansson
systkyni hins látna
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengamóðir, amma og langamma,
Erla Sigurgeirsdóttir
Engihjalla 17, Kópavogi,
lést á Gjörgæsludeild Landspítalans 1. september.
Útför auglýst síðar.
Sigurður Jónsson
Guðrún Auður Hafþórsdóttir Gunnlaugur Valtýsson
Rögnvaldur Ingi Eiríksson Jónína Jónsdóttir
Eiríkur Ásbjörn Carlsen
barnabörn og barnabarnabörn.